12.02.1974
Sameinað þing: 55. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2140 í B-deild Alþingistíðinda. (1921)

122. mál, nýting jarðhita

Steingrímur Hermannsson:

Herra forseti. Ég vildi gjarnan segja örfá orð um þetta mikilvæga mál. sem eðlilega er hér á dagskrá. Mér er tjáð, að hv. frsm. hafi sýnt þessum hitaveitumálum fyrr áhuga, fyrir 15 árum hafi hann lagt á þetta ríka áherslu, og að vonum hefur honum þótt heldur lítið gerast á því sviði í hans kjördæmi á þessu 15 ára tímabili, þar sem segja má, að hver íbúi gæti fengið jarðvarma til upphitunar.

Heilmikið hefur verið sagt hér um samanburð á upphitunarkostnaði með jarðhita annars vegar og olíu hins vegar. Hv. frsm. fór þar með tölur, sem mér þóttu að vísu nokkuð háar, og ég gat ekki fengið sömu útkomu. Upplýsingarnar, sem mþn. í byggðamálum fékk frá hagrannsóknastjóra, sýna, þegar rætt er eingöngu að vísu um upphitun íbúðarhúsnæðis, að mismunur, miðað við 12.35 kr. á hvern lítra, sem reiknað er með, að olían verði í mars, og því verði, sem jarðvarmi í Reykjavík fer upp í með þeirri hækkun, sem nú hefur verið leyfð, er um 978 millj. 582 þús. kr. fyrir þann hluta landsmanna, sem hafa olíuhitun, en það eru 101 370 manns samkv. þessum sömu upplýsingum eða tæplega helmingur landsmanna. Sé þetta reiknað í hlutfalli, verður þarna um 2000 millj. kr. sparnaður, eins og kallað hefur verið, fyrir landið allt, ef jarðhita mætti nota til upphitunar alls staðar. Þetta er dálítið lægri tala, en það út af fyrir sig skiptir engu máli, því að þetta eru miklar upphæðir og undirstrikar, að hér þarf að gera stórt átak. Ég hef einnig fengið uppgefinn olíulítrafjölda, sem er notaður til upphitunar. Mér er sagt, að það séu 165 millj,lítra. Þá fæ ég að vísu nokkru hærri tölu yfir sparnað en ég nefndi áðan, en þó fyrir neðan 3000 millj. Þetta er sem sagt ákaflega mikil upphæð og rétt, sem vakin er athygli á í till., að þessum framkvæmdum þarf að hraða.

Það, sem mig langaði fyrst og fremst til að koma hér á framfæri, voru ýmsar upplýsingar, sem ég hef nýlega heyrt á fundum verkfræðinga um þessi mál, og draga fram ýmsa þætti, sem leggja ber áherslu á. Áður en ég kem að því, vil ég þó leggja áherslu á, að þennan mikla mismun, sem um er að ræða, verður með einhverju móti að jafna, því að það tekur nokkurn tíma að koma jarðvarma eða rafmagni til upphitunar til þessara íbúa landsins. Ég held, að um þetta hljóti menn að verða sammála, og reyndar hefur það komið fram í samþykktum, að svo virðist vera. Ég tel ekki rétt að leggja á orkuskatt í þessu skyni, en hins vegar sýnist mér, að þjóðin verði að axla þessar byrðar að verulegu leyti sameiginlega, t.d. með söluskattstigi eða einhverju þess háttar, og greiða niður olíuhitunarkostnaðinn, þannig að hann verði ekki a.m.k. miklu hærri en hann var, áður en þessi hækkun kom. Jafnframt verður svo að hraða nýtingu jarðvarmans í þessu skyni.

Til fróðleiks vil ég geta þess, að við nýlega athugun, sem farið hefur fram á vegum Rannsóknaráðs ríkisins á fjármagni til rannsókna, kemur í ljós, að tiltölulega mestu fjármagni er varið til rannsókna á orkusviðinu. Það er, reiknað í hundraðshlutum af vinnsluvirði atvinnugreinanna og viðkomandi sviðs, um 2.5% af vinnsluvirði orkuframleiðslunnar, sem varið er til rannsókna, og er það um það bil tvöfalt meira en t.d. í sjávarútvegi og enn meira en í landbúnaði. Það má geta þess til fróðleiks, að aftur á móti kom í ljós, að það er innan við 0,1% vinnsluvirðis iðnaðar og mannvirkjagerðar, sem varið er til rannsókna á þeim sviðum. Þar er áreiðanlega um mjög alvarlegt mál að ræða. Töluverðu hefur því verið varið til rannsókna á sviði orkumála og þetta hefur verið aukið verulega upp á síðkastið. M.a. kemur það fram í fjárl. þessa árs. Þar er auk þess veitt verulegt fjármagn til kaupa á tækjum, m.a. nýjum bor, sem er mjög nauðsynlegur.

Komið hefur fram á þessum fundum, sem ég nefndi áðan, að tæknilega, þ.e.a.s. ef við gerum ráð fyrir því, að nægilegt fjármagn sé fyrir hendi, mætti tengja 45–50 þús. manns til viðbótar við jarðvarmaveitur á næstu 2–3 árum, þ.e.a.s. fyrir árin 1976–1977. Í Kópavogi, Garðahreppi og Hafnarfirði er þegar farið að vinna að þessum málum á vegum Reykjavíkurborgar, og er þá gert ráð fyrir því, að þar geti verið komin jarðvarmaveita um 1976. Ég get að vísu ekki annað en skotið því inn, að ég harma, að þessi sveitarfélög báru ekki gæfu til að standa saman um eigin hitaveitu, því að það hefur komið greinilega fram hjá sérfræðingum, að finna má jarðvarma á öllu þessu svæði. Hann er þekktur á Álftanesinu, er mjög góður þar, og jafnvel má finna hann innan marka Garðahrepps og Hafnarfjarðar. En ég verð að segja í þessu sambandi, að ég sakna ákveðnari forustu og aðstoðar ríkisvaldsins, til þess að sveitarfélög geta ráðist í slíkar framkvæmdir sem þessar. Ég tel að vísu mikið fengið með því að gera samning við Reykjavíkurborg, en hef í því sambandi á öðrum vettvangi lagt áherslu á, að þessi sveitarfélög eiga að verða sameignaraðilar að slíkri hitaveitu, það er lýðræðisleg framkvæmd þessa máls, og væri satt að segja fróðlegt að heyra skoðanir hv. flm. og þm. kjördæmisins á því atriði. En segja má, að það sé nokkuð annað mál. Upplýsingarnar eru sem sagt þær, að þarna ætti að vera komin jarðvarmaveita í kringum 1976. Frá Svartsengi er gert ráð fyrir jarðvarmaveitu til byggðanna þar í kring: Keflavíkur, Grindavikur, Keflavíkurflugvallar og víðar, og er gert ráð fyrir því, að sú veita gæti komið í gagnið kringum 1976–1977 samkv. fyrrnefndum upplýsingum. Tæknilega ætti ekkert að vera því til fyrirstöðu. Á Eyrarbakka, Stokkseyri og Þorlákshöfn eru einnig ágætar aðstæður til þess að fá jarðvarma, annað hvort frá Selfossi eða Hveragerði, og ekkert því til fyrirstöðu tæknilega. Jarðvarminn er þekktur þar, og þetta er í raun og veru aðeins fyrst og fremst fjármálaleg framkvæmd, og er talið, að þar ætti að geta verið kominn jarðvarmi 1976–1977 einnig. Og loks á Vesturlandi, þ.e.a.s. Akranesi og Borgarnesi, er talið og vitað, að þar má fá jarðvarma frá Deildartunguhver. Þar er mikill jarðhiti, eins og kunnugt er, og athuganir sýna, að hagkvæmt muni vera að leiða a.m.k. þann varma til Borgarness, en jafnvel til Akraness, þótt það sé löng leið, ef ekki fæst jarðvarmi þar nær, sem er reyndar talið mjög líklegt. Mér sýnist, þegar ég legg saman fólksfjölda á þessum stöðum, að þarna sé um 45–50 þús. manns að ræða, sem bætast við þann fjölda, sem nú hefur upphitun frá jarðvarmaveitum, sem er talinn 96 430 manns. Þá er strax komið upp í kringum 65–67% af íbúum þessa lands, og á þá eftir að telja ýmsa smærri staði úti um land, t.d. á Norðurlandi, sem eiga að geta notið jarðhitaveitu. En mér sýnist sú tala, sem hæst er nefnd í þessu sambandi, um 70% íbúa landsins með upphitun frá jarðhita, alls ekki óraunhæf og satt að segja líklegri en lægri talan, sem stundum er nefnd, þ.e.a.s. 60%.

Þá hlýtur vitanlega að vakna sú spurning: Hvernig er unnt að framkvæma þetta á svo skömmum tíma? Það sjá náttúrlega allir, að jarðhitaveita, ekki aðeins í Kópavog, Garðahrepp og Hafnarfjörð, heldur einnig frá Svartsengi um Suðurnesin og á Eyrarbakka, Stokkseyri og Þorlákshöfn Akranes og Borgarnes er gífurleg framkvæmd. Í fyrsta lagi þarf að tryggja fjármagn til. Ég fyrir mitt leyti legg á það áherslu, og vil koma því á framfæri, að mér sýnist alls ekki órannhæft að leggja nokkurn orkuskatt á jarðvarmaveitur, sem nú eru, til þess að tryggja fjármagn til slíkra framkvæmda. Ég trúi því ekki, að þeir, sem þeirra njóti í dag, geti haft á móti því að leggja nokkurn hluta af sínum sparnaði af mörkum til þess að hraða þessum framkvæmdum. Þetta sýnist mér vera mál, sem Alþ. mætti gjarnan láta til sín taka.

En jafnvel þótt fjármagnið fáist, þarf meira til. Mikið þarf að bora, og það hefur komið fram hér á þingi, að á því stendur nokkuð. Þó vil ég vekja athygli á því, að í fjárl. fyrir árið í ár er gert ráð fyrir kaupum á nýjum bor, og mun það vera í fullum gangi. Sömuleiðis er alveg ljóst, að framkvæmdamáttur er vitanlega takmarkaður við það vinnuafl og þá verktaka, sem eru til taks, þannig að ljóst má vera, að þessi tæknilega mögulega áætlun, sem ég hef nefnt, er byggð á fyllstu bjartsýni, og að öllum líkindum mun þetta taka nokkru lengri tíma. Það veldur t.d. miklum vandræðum, að afgreiðsla á öllu efni, t.d. stáli, tekur miklu lengri tíma en gert var ráð fyrir. Það sýna nýleg útboð. Ég get getið þess hér, að það hefur aldrei komið fyrir áður, að pöntunum í borstangir fyrir gufuborun er beinlínis ekki svarað. Ekki er gefinn upp afgreiðslutími. Hann virðist vera orðinn það langur. Því er befra að hafa allan varan þarna á og hugsa fljótlega til þess, sem þarf að vera við höndina, ef framkvæmd á að ganga hratt og vel.

Ég fagna þessari till., sem hér er fram komin, og vildi aðeins koma þessum upplýsingum á framfæri. Það er alveg ljóst, að ríkisvaldið þarf að hafa örugga forustu. Ég vil leggja áherslu á, að tryggt verði nokkurt fjármagn til þessara framkvæmda með orkuskatti, eins og ég hef sagt, og sömuleiðis verði án tafar hafist handa um útvegun nauðsynlegs efnis, jafnvel þó að það kosti, að með það þurfi að liggja eitthvað lengri tíma en þann, sem skemmstur gæti orðið. Ég held, að við verðum að halda þannig á þessu máli, til þess að megi ganga sem hraðast.