13.02.1974
Efri deild: 56. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2157 í B-deild Alþingistíðinda. (1933)

Umræður utan dagskrár

Halldór Blöndal:

Herra forseti. Þegar ég kvaddi mér hljóðs, var fyrirsjáanlegt, að hvorki hæstv. utanrrh. né hæstv. forsrh. mundu svara þeirri spurningu hv. 5. þm. Vestf., Þorvalds Garðars Kristjánssonar: Hverju var Sovétmönnunum svarað, þegar þeir höfðu með þessum hætti íhlutun í íslensk innanríkismál, íslenskan fréttaflutning út af þeim sorglegu atburðum, sem nú eru að gerast í Sovétríkjunum? Okkur er öllum ljóst, sem hér erum inni, að það, sem þarna er í veði, eru ekki einungis örlög þessa eina manns, Solzhenitsyns, hins mikla rússneska skálds, sem allur hinn frjálsi heimur hefur fylgst með á umliðnum missirum, hinni hetjulegu og einmanalegu baráttu, sem hann hefur orðið að heyja, en dæmi hans hefur sannað okkur, að mesta lögregluríki veraldarsögunnar stendur máttvana gagnvart einstaklingnum, þegar bann er nógu stór. Það er viðhorfið til einstaklingsins, sem þarna er í veði, frelsi okkar allra til þess, að við fáum að láta í ljós skoðanir okkar, til þess, að við fáum að skrifa það, sem við viljum, til þess, að við fáum að halda fundi, til þess, að við fáum að kjósa þá menn, sem stjórna landi okkar, til þess, að við fáum að ráða okkur sjálfir. Og þegar þetta mesta lögregluríki með þessum hætti gerir athugasemdir um það, sem einn af okkar ráðherrum segir í sjónvarpsþætti, þá fæst það ekki upplýst hér á Alþ. hver hafi verið viðbrögð ríkisstjórnar okkar. Og það er varla hægt að una því öllu lengur. Ég tel, að virðingu þessarar stofnunar sé misboðið, ef ekki verður þegar í stað lýst yfir af hæstv. utanrrh., að hann muni mótmæla þessum afskiptum og hann muni mótmæla þeirri meðferð, sem menntamenn og skáld og rithöfundar í Sovétríkjunum eiga við að búa. Þetta er ekki einkamál þessara manna. Hinn frjálsi heimur á í vök að verjast. Ofbeldið fer vaxandi í mörgum heimshornum. Það eru margar blikur á lofti. Við eigum að sýna það nú, Íslendingar, þó að við séum smáir, — það er oft vitnað til þess, — við skulum sýna það, að við erum óhræddir að standa þarna bak við hin rússnesku skáld. Þá væri meiri sómi Íslands, ef við stjórnvöl væru nú menn, sem mundu óhræddir segja skoðun sina hér uppi í Túngötu.