13.02.1974
Efri deild: 56. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2158 í B-deild Alþingistíðinda. (1935)
210. mál, umferðarlög
(Ólafur Jóhannesson):
Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir um breyt. á umferðarlögum fjallar um tvö atriði. Annars vegar felur það í sér hækkun á vátryggingarfjárhæð í 70. gr. umferðarlaganna og hins vegar sérstaka fjáröflun til Umferðarráðs.
Svo sem kunnugt er, leggja umferðarlög ríkisins bótaábyrgð á hendur eigenda bifreiða og annarra skráningarskyldra ökutækja vegna slysa eða tjóna, sem hljótast af notkun þeirra, og gildir það jafnvel þótt slys eða tjón verði eigi rakið til bilunar eða galla á ökutækinu eða ógætni ökumanns. Vegna hinna miklu fjárhæða, sem um getur verið að ræða í hverju einstöku tjóni, og til að tryggja hagsmuni þeirra, sem fyrir tjóni verða, hefur þótt rétt að skylda eigendur ökutækjanna til að kaupa vátryggingu fyrir þessari áhættu. Eigi hefur þó til þessa þótt fært að skylda eigendur til að kaupa fulla vátryggingu á þessari áhættu, m.a. vegna kostnaðar og vegna annmarka, sem eru á því að fá endurtryggingu á slíkri áhættu. Þess í stað hafa eigendur verið skyldaðir til þess að kaupa lágmarkstryggingu, mismunandi háa eftir því, hvort um er að ræða bifreið, bifhjól, dráttarvél eða létt bifhjól. Þessar vátryggingarfjárhæðir hafa verið endurskoðaðar með nokkurra ára millibili, enda hefur verðlagsþróunin fljótlega gert þær úreltar.
Vátryggingarfjárhæðirnar voru síðast hækkaðar á árinu 1970. Með lögum nr. 55 1970 voru þær ákveðnar 1 millj. kr. fyrir létt bifhjól, 1.5 millj. kr. fyrir dráttarvélar og bifhjól, 3 millj. kr. fyrir bifreiðar, sem flytja mega 10 farþega og færri, en vátryggingarfjárhæðin hækkar síðan um 200 þús. kr. fyrir hvern farþega, sem flytja má umfram 10.
Vegna verðlagsþróunar þeirrar sem orðið hefur frá árinu 1970, er nú lagt til, að vátryggingarfjárhæðir þessar verði tvöfaldaðar, enda hefur gildi þeirra rýrnað svo, að skyldutryggingin er eigi lengur fullnægjandi, hvorki fyrir eigendur ökutækjanna né þá, sem fyrir tjóni verða. Till. þær, sem koma fram í 1. gr. frv., eru gerðar með það í huga að auka fjárhagslegt öryggi þessara aðila til samræmis við þróun verðlags.
Rétt er, að hér komi fram, að unnið er að samræmingu reglna um fébótaábyrgð vegna ökutækja og vátryggingu þeirra í nágrannalöndum okkar, m.a. innan Evrópuráðsins, þar sem nýlega hefur verið gengið frá samþykkt um bótaábyrgð vegna ökutækja. Þessi mál eru til athugunar hjá ráðuneytinu og í umferðarlaganefnd, og má því vænta frekari till. um breytingar á VI. kafla umferðarlaganna um fébótaábyrgð og vátryggingu, þótt eigi sé þeirra að vænta á yfirstandandi þingi.
Eins og þm. er kunnugt, var í ársbyrjun 1972 ákveðið um fébótaábyrgð við umferðarslys, að ökumenn skyldu sjálfir taka þátt í greiðslu tjónabóta að nokkru leyti. Nemur sú fjárhæð 21/2% af vátryggingarfjárhæð samkv. 1. málsgr. 70. gr. umferðarlaganna. Er hér um að ræða, að þeim, sem bótaábyrgðina ber, er gert að skyldu að endurgreiða vátryggingafélagi fyrstu 7.500 kr. af hverju tjóni. Frv. gerir ráð fyrir því, að þetta ákvæði haldist í lögum, en vegna tvöföldunar vátryggingarfjárhæðanna mundi eigin áhætta jafnframt tvöfaldast og þá verða 15 þús. kr. vegna tjóns af völdum bifreiða. Ekki liggur fyrir, hver áhrif þessi hækkun á vátryggingarfjárhæðum muni hafa á iðgjöld ábyrgðartrygginganna, en miðað við frjálsa tryggingu samkvæmt gildandi iðgjaldaskrá og óbreytta eigin ábættu að krónutölu mun hækkunin vera um 6–8%. Hins vegar mundi hækkunin ekki verða eins mikil. ef um almenna hækkun vátryggingarfjárhæða væri að ræða, og trúlega engin, ef eigin áhætta tvöfaldaðist að krónutölu. Hins vegar er ljóst, að bifreiðatryggingafélögin telja þörf á hækkun íðgjalda af öðrum ástæðum, sem eigi skal rakið frekar að sinni, enda liggja ekki fyrir endanlegir útreikningar af hálfu vátryggingafélaganna um það efni. Munu þeir útreikningar væntanlega liggja fyrir á næstunni og þn. þá e.t.v. hafa aðstöðu til að kynna sér það atriði frekar.
Með breytingu á umferðarlögum á árinu 1970 voru lögfest ákvæði um Umferðarráð, sem sett hafði verið á stofn í ársbyrjun 1969 í beinu framhaldi af starfsemi framkvæmdanefndar hægri umferðar, sem þá lét af störfum. Umferðarráð er skipað 16 mönnum skipuðum af dómsmrh. til þriggja ára í senn. Eiga eftirtaldir aðilar rétt samkvæmt 80. gr. umferðarlaga á að tilnefna einn fulltrúa í ráðið og annan til vara: Bandalag íslenskra leigubifreiðastjóra, Bifreiðaeftirlit ríkisins, Bindindisfélag ökumanna, dómsog kirkjumálaráðuneytið, Félag íslenskra bifreiðaeigenda, fræðslumálastjórn, það er nú menntmrn., Landssamband vörubifreiðastjóra, Landssamtök klúbbanna Öruggur akstur, Reykjavíkurborg, ríkislögregla, lögreglustjórinn í Reykjavík, Samband ísl. sveitarfélaga, Samband ísl. tryggingafélaga, Slysavarnafélag Íslands, Vegagerð ríkisins og Ökukennarafélag Íslands. Dómsmálaráðherra skipar formann Umferðarráðs án tilnefningar, en varaformann skipar hann úr hópi ráðsmanna. Hlutverk Umferðarráðs er skilgreint í 84. gr. umferðarlaganna, og skal það vera sem hér segir:
1) Að beita sér fyrir því, að haldið sé uppi umferðarfræðslu í landinu.
2) Að vera fræðsluyfirvöldum, umferðarnefndum sveitarfélaga og samtökum, er vinna að bættri umferðarmenningu, til hjálpar og ráðuneytis, eftir því sem óskað er og aðstæður leyfa.
3) Að standa fyrir útgáfu fræðslurita og bæklinga um umferðarmál og hafa milligöngu um útvegun kennslutækja og annarra gagna til nota við fræðslustarfsemi.
4) Að hafa milligöngu um umferðarfræðslu í Ríkisútvarpi, hljóðvarpi og sjónvarpi, og öðrum fjölmiðlum.
5) Að beita sér fyrir bættum umferðarháttum.
6) Að sjá um, að á hverjum tíma sé til vitneskja um fjölda, tegund og orsakir umferðarslysa í landinu.
7) Að vera stjórnvöldum og öðrum til ráðuneytis um umferðarmál.
8) Að fylgjast með þróun umferðarmála erlendis og hagnýta reynslu og þekkingu annarra þjóða á því sviði.
9) Að leitast við að sameina sem flesta aðila til samstilltra og samræmdra átaka í umferðarslysavörnum og bættri umferðarmenningu.
Umferðarráði ber að hafa samvinnu við fræðsluyfirvöld, lögregluyfirvöld, umferðaryfirvöld sveitarfélaga, Slysavarnafélag Íslands, samtök bifreiðaeigenda og bifreiðastjóra, vátryggingafélög, svo og öll önnur félög og stofnanir, sem fjalla um umferðarmál í landinu og láta sig umferðaröryggi skipta.
Eins og af þessari upptalningu má sjá er hlutverk Umferðarráðs æði margþætt, og er því mikið undir því komið, að það hafi viðunandi fjárræði til að geta sinnt þessari viðtæku starfsemi, sem því er ætluð. Þegar ákvæði um Umferðarráð voru lögfest, voru ekki ákvæði um fjármögnun til starfsemi ráðsins, en gert ráð fyrir því, að sá kostnaður yrði greiddur úr ríkissjóði, að því leyti sem aðrir aðilar stæðu ekki undir honum.
Frá upphafi hefur fjárskortur sett mót sitt á starfsemi Umferðarráðs, og hefur það því ekki getað framkvæmt hlutverk sitt nema að takmörkuðu leyti. Hins vegar er óumdeilanlegt að það verkefni, sem Umferðarráð hefur getað sinnt fram til þessa, hefur stuðlað að bættri umferðarmenningu og átt sinn þátt í því að draga úr slysum í umferðinni og vekja vegfarendur til umhugsunar um umferðaröryggismál og þann mikla vanda, sem á þessu sviði er við að stríða.
Það er ekki hægt hér að telja upp öll þau verkefni, sem Umferðarráð hefur haft með að gera á undanförnum árum, en ég skal þó drepa á fáein þeirra.
Árlega hafa verið gerðas skýrslur um umferðarslys í landinu samkvæmt lögregluskýrslum, þar sem fram kemur fjöldi umferðarslysa, skipt eftir mánuðum og eftir afleiðingum, þar sem fram kemur fjöldi slysa með dauða og fjöldi slysa með meiðslum, svo og fjöldi dáinna og slasaðra, skipting slysa eftir umdæmum milli þéttbýlis og strjálbýlis og ýmsar aðrar tölulegar lýsingar um umferðarslys. Þá hefur verið gerð athugun á slysum á börnum í Reykjavík, tekið samlan heildaryfirlit yfir kærur vegna ölvunar við akstur. Sérstök skýrsla hefur og verið gerð um umferðarslys á Reykjanesbraut á árunum 1968–1970.
Á sviði forskólafræðslu hefur Umferðarráð starfrækt Umferðarskólann svokallaðan, „Ungir vegfarendur“, sem er eins konar bréfaskóli, og fá nemendur, sem eru á aldrinum 3–6 ára, 6–8 verkefni á vetri hverjum. Þátttakendur í Umferðarskólanum eru rúmlega 16 þús. börn í 36 sveitarfélögum, en sveitarfélögin standa að verulegu leyti undir kostnaði við rekstur skólans. Auk þess hefur Umferðarráð skipulagt námsefni fyrir börn í 6 ára deildum barnaskóla og átt hlut að umferðarfræðslu fyrir börn í útvarpi og sjónvarpi og á barnaheimilum. Einn þáttur er umferðarfræðsla í skólum. Hefur Umferðaráð frá upphafi lagt á það ríka áherslu, að efld verði umferðarfræðsla innan skólakerfisins, en hún hefur að áliti ráðsins verið í algeru lágmarki, og er þess að vænta, að bót fáist á því með nýrri skólalöggjöf og endurskoðun námsskráa. Hefur verið reynt að vinna að því máli með ýmsum hætti. Tvívegis, árið 1970 og 1972, fór fram á vegum Umferðarráðs og í samvinnu við fræðslumáladeild menntmrn. spurningakeppni skólanna um umferðarmál með þátttöku allra 12 ára skólanemenda. Fór keppnin fram í þrennu lagi: innan skólanna, í útvarpi og í sjónvarpi, þar sem tvö lið kjördæma kepptu til úrslita. Dreift hefur verið í upphafi skólaárs bréfi, sem ber nafnið „Leiðin í skólann“ til foreldra þeirra barna, sem þá hefja skólagöngu í fyrsta sinn, þar sem vakin er athygli á hættu þeirri, sem fylgir fyrstu skólagöngunni. Dreift hefur verið á vorin viðurkenningarmiðum vegna reiðhjólaskoðunar. Umferðarráð hefur beitt sér fyrir því, að bætt yrði dreifing kennslubóka á vegum Ríkisútgáfu námsbóka og ætlar fjárframlagið að hluta til endurskoðunar kennslubóka um umferðarmál fyrir skólabörn. Á síðasta hausti stóð Umferðarráð fyrir því, að hingað til lands kom skólaráðgjafi um umferðarmál í Noregi, og hélt hann hér námskeið fyrir kennara og lögreglumenn auk opinbers fyrirlestrar. Þá hefur Umferðarráð haft milligöngu um það, að nokkrir Íslendingar, kennarar og lögreglumenn, hafa sótt námskeið um umferðarmál í Noregi.
Almenn upplýsingastarfsemi á vegum Umferðarráðs hefur verið ýmiss konar. Á sumrin hefur verið haldið uppi verulegu fræðslustarfi um akstur á þjóðvegum. Hefur það að verulegu leyti beinst að hvatningu til notkunar öryggisbelta, fræðslu um hættu, sem börnum er búin í framsætum bifreiða, auk almennrar fræðslu um akstur á þjóðvegum. Um þetta efni hefur m.a. verið ágætt samstarf við útvarpið, sem flutt hefur stutta þætti í léttum dúr, samda sérstaklega á vegum ráðsins, auk þess sem útvarpið hefur haldið uppi þætti um umferðarmál í samvinnu við Umferðarráð. Um verslunarmannahelgar hefur Umferðarráðið í samvinnu við lögregluna og Ríkisútvarpið haldið uppi upplýsingamiðstöð fyrir ferðafólk. Umferðarráð hefur beitt sér fyrir dreifingu og sölu endurskinsmerkja með góðum árangri í vetur, en þá var dreift 26 þús. endurskinsmerkjum, aðallega með aðstoð Mjólkursamsölunnar og kaupfélaga. Þá hefur ráðið staðið að fræðslustarfi um umferð í myrkri og bættri og aukinni notkun ökuljósa.
Samstarf við fjölmiðla befur verið mikið. Hér hefur verið vikið að fræðslustarfi í útvarpi. Á síðasta ári hófst víðtækt samstarf milli sjónvarps og Umferðarráðs um gerð stuttra þátta um umferðarmál. Voru gerðir 14 þættir, sem nú í vetur hafa verið fluttir vikulega, og er þeim nýlokið.
Hér hafa í stórum dráttum verið rakin nokkur atriði úr starfsemi Umferðarráðs. Fjölmörg atriði önnur hafa að sjálfsögðu komið til kasta ráðsins, en eigi hefur verið hægt að sinna því öllu, þar sem fjárskortur hefur staðið ráðinu fyrir þrifum. Starfsemi ráðsins hefur að mestu hvílt á framkvæmdastjóranum, upplýsingafulltrúa ritara og forskólaráðgjafa í hálfu starfi. Er starfsliðið allt nema framkvæmdastjórinn lausráðið. Innan Umferðarráðs starfar sérstök þriggja manna framkvæmdanefnd, skipuð af dómsmrh.
Á fjárlögum yfirstandandi árs eru veittar úr ríkissjóði 5 millj. 104 þús. kr. til starfsemi Umferðarráðs, en að auki er gert ráð fyrir tekjum að fjárhæð um 1540 þús. kr. Það eru framlög sveitarfélaga vegna Umferðarskólans „Ungir vegfarendur“, þannig að til ráðstöfunar eru 6 millj. 644 þús. kr. Fjárlagatill. Umferðarráðs námu hins vegar 10 millj. 340 þús. kr. Auk launagreiðslna til áðurnefnds starfsliðs og rekstrar skrifstofu var í till. gert ráð fyrir því, að ráðinn yrði sérstakur skólafulltrúi til starfa hjá Umferðarráði. Hefur ráðið leitað eftir heimild til ráðningar slíks starfsmanns, er fylgist með því, að lögboðin umferðarfræðsla í skólum fari fram, að sjálfsögðu í samstarfi við menntmrn., en auk þess hafi fulltrúinn með að gera dreifingu fræðsluefnis á þessu sviði og umsjón með gerð þess. Telur Umferðarráð ráðningu þessa fulltrúa forsendu þess, að verulegt átak verði gert í umferðarfræðslu í skólum. Þá er í till. gert ráð fyrir því, að auknar verði athuganir á umferðarslysum og haldið áfram með sama hætti rekstri Umferðarskólans „Ungir vegfarendur“. Á sviði umferðarfræðslu í skólum var gert ráð fyrir því, að hafin yrði útgáfa vinnubókablaða og haldið námskeið fyrir kennara, auk fleiri verkefna, eins og útgáfu foreldrabréfs og spurningakeppni. Loks var gert ráð fyrir fjárveitingu til ýmissar almennrar umferðarfræðslu, einkum árstíðabundinnar, svo sem um sumarakstur, akstur í hálku, notkun endurskinsmerkja o.fl., og gerð sérstakra þátta til flutnings í útvarpi og sjónvarpi. Auk þessa var gert ráð fyrir allverulegri fjárhæð eingöngu til kennslu og hvatningar um notkun öryggisbelta, og var það hugsað sem aðalverkefni ársins. Ljóst er, að með núverandi fjárveitingu er ekki unnt að framkvæma allt það, sem hér befur verið rakið.
Til að bæta úr brýnni fjárþörf til umferðarslysavarna er með frv. þessu lagt til, að 1.5% af iðgjaldatekjum vegna hinnar lögboðnu ábyrgðartryggingar ökutækja, þ.e. brúttóiðgjöldum að frádregnum bónus, renni til Umferðarráðs í þessu skyni. Heildariðgjöld ábyrgðartryggingar á árinu 1972, en það er siðasta árið, sem reikningar liggja fyrir um, námu 268 millj. kr., og hefðu því skv. þessum reglum um 4 millj. kr. gengið til umferðarslysavarna á siðasta ári, auk fjárlagaframlags, sem var þá 3 millj. 724 þús. Ætti því með tekjustofnum þessum, að vera skapaður grundvöllur fyrir mjög aukinni starfsemi Umferðarráðs, enda er þá að sjálfsögðu gert ráð fyrir því, að framíag ríkissjóðs falli ekki niður, þótt þessi tekjustofn verði lögfestur.
Það er ekki óeðlilegt, að vátryggingafélög, sem hafa fengið leyfi til rekstrar þessarar tryggingargreinar, greiði þetta framlag, enda verður að ætla, að með aukinni starfsemi Umferðarráðs á sviði umferðarslysavarna dragi úr tjóni af völdum ökutækja og umferðin í heild verði öruggari. Fjáröflun með þeim hætti, sem hér er lögð til, á sér nokkra hliðstæðu í okkar löggjöf, en með l. nr. 55 1969, um brunavarnir og brunamál er þeim vátryggingarfélögum, sem annast brunatryggingar, skylt að greiða hluta af vátryggingariðgjaldi vegna brunatrygginga sem brunavarnagjald til Brunamálastofnunar ríkisins. Þá má benda á það, að á Norðurlöndum njóta stofnanir hliðstæðrar Umferðarráði verulegs fjárhagsstuðnings frá vátryggingarfélögum, og í Finnlandi hefur umferðarmálastofnunin fastan tekjustofn frá bifreiðatryggingafélögum.
Þess skal svo getið hér, að áskoranir um aukið fjármagn til Umferðarráðs hafa komið frá ýmsum aðilum, sem um umferðarmál fjalla, m.a. hafa aðalfundir Samvinnutrygginga og margir fundir á vegum klúbbanna „Öruggur akstur“ lagt til þá tekjuöflunarleið, sem frv. þetta gerir ráð fyrir.
Það er að sjálfsögðu svo, að þótt nauðsynlegt sé að balda uppi umferðarfræðslu, má ekki einblína á þann þátt einan, þegar rætt er um bætta umferðarmenningu. Á því sviði koma ýmis önnur atriði til og má þar til nefna endurskoðun umferðarreglna, sem nú fer fram á Norðurlöndunum í kjölfar nýlegrar alþjóðasamþykktar, aukin viðurlög bæði í formi refsingar og tíðari ökuleyfissviptingar, greiðari meðferð dómsmála, endurskoðun ökukennslu og ökuprófa. Hefur af hálfu Umferðarráðs og rn. verið fylgst með þróun þessara mála.
Þetta frv. er í sjálfu sér einfalt í sniðum, en ég hef talið rétt að fara nokkrum almennum orðum um þau mikilvægu mál. sem hér er um að ræða, umferðarmálin og ráðstafanir til þess að reyna að tryggja umferðaröryggi, eftir því sem hægt er. Það er sannfæring mín, að einn þátturinn í því sé að styrkja Umferðarráð til þess að geta sinnt því hlutverki á sómasamlegan hátt, sem því er ætlað í lögum. Með þessu frv., ef að lögum verður, mundi nokkuð verða bætt úr fjárþörf þess. Hitt er jafnaugljóst, að það er þörf á hækkun vátryggingarfjárhæða, eins og ég hef rökstutt. Það stendur nú þannig á, að gjalddagi á þessum tryggingum mun vera um n.k. mánaðamót, og þess vegna langar míg til að fara fram á það við þá hv. n., sem fær málið til meðferðar, og hv. þd., að reynt verði að hraða afgreiðslu þess svo sem kostur er. Ég vona, að unnt sé að verða við þeim tilmælum, af því að hér er um tiltölulega einföld atriði að ræða. Að vísu má segja, að það getur lengi verið álitamál og deilumál, hvort á að hækka fjárhæðirnar eins og hér er gert eða í einhverja aðra upphæð, og eins getur verið deilumál, hvort á að láta sjálfsábyrgðina haldast í sömu skorðum hlutfallslega og áður. En þetta er, eins og ég nefndi tiltölulega einföld atriði, sem auðvelt er í raun og veru að átta sig á og gera sér grein fyrir.
Ég vil svo, herra forseti, mælast til þess, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. allshn.