13.02.1974
Efri deild: 56. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2169 í B-deild Alþingistíðinda. (1942)
204. mál, vinnslustöðvar á sviði sjávarútvegs
Stefán Jónsson:
Herra forseti. Ég hefði gjarnan viljað verða meðflm. að frv. því, sem hér um ræðir, og hefði sennilega gerst meðflm. að því, ef svo hefði ekki staðið á, að nokkurn veginn var augljóst, að ég yrði ekki staddur á þingi við atkvgr. um frv., og gafst ekki tóm til að ræða það við hv. þan. Helga F. Seljan, sem ég kem hér í staðinn fyrir.
Enda þótt kveikjan í þetta frv. sé vandamál þeirra í rækjuútgerðinni við Húnaflóa, hefur það almennt grundvallargildi í því, sem lýtur að byggðastefnu og skynsamlegri hagnýtingu fiskimiða. Ég er í sjálfu sér ekki hissa á því, þótt hv. þm. Oddur Ólafsson mælti heldur gegn þessu frv., hagsmunir umbjóðenda hans hafa um langt árabil verið þess háttar, þeim hefur, m.a. vegna offjölgunar fiskvinnslustöðva hér við Faxaflóa, verið nauðsynlegt að sækja mjög mikið hráefni á mið, sem eðlilegt væri, að nytjuð væru frá hinum næstu byggðarlögum. Ég er þeirrar skoðunar, að umfram allt beri að stefna að því, að þeir sjómenn og útvegsmenn hafi forgangsrétt til miða, þar sem hægt er að sækja að morgni og koma að á kvöldi, þar sem sjómennirnir geta haldið áfram að gegna eðlilegu félagslegu hlutverki í byggðarlögum sínum. Það er vafalítið, að ein meginástæðan fyrir því, hvílík gróska hefur hlaupið í byggðarlögin við Faxaflóa, er sú, að fólk, sem stundaði og sótti vetrarvertíð á svæðinu við Faxaflóa, settist hér að, sjómenn að austan og vestan, réðu sig síðan á stækkandi skip, sem höfðu bolmagn til þess að sækja fiskinn að sumrinu til, utan vetrarvertíðar, á miðin, sem þeir höfðu áður sótt á heiman frá sér fyrir austan og vestan. Fiskurinn var síðan fluttur á þetta svæði og verkaður hér.
Ein rækjuverkunarstöð, sem ofaukið væri við Húnaflóa, kynni að leiða til þess, að bátar sæktu til bennar rækju á mið utan Húnaflóasvæðisins.
Það fer ekki á milli mála, að tilvera fiskiðjuvera, stundum óhentugra og of margra fiskiðjuvera, hefur haft raunveruleg áhrif á ráðstafanir, sem gerðar hafa verið til verndunar fiskstofna. Okkur er það í fersku minni, þegar opnað var fyrir dragnót hér í Faxaflóa vegna frystihúsa, — ekki vegna fólks, sem hafði atvinnu af því að verka fisk, ekki vegna sjómanna, sem veiddu fisk, heldur vegna frystihúsa sem voru illa stödd vegna skorts á bráefni. Ég tel alveg vafalaust, að nauðsynlegt sé að hafa nokkurn hemil á því, með hvaða hætti fiskiðjuverum, hvort heldur það eru rækjuverkunarstöðvar eða önnur fiskiðjuver, er komið upp, og draga með þeim hætti verulega úr hættunni á því, að þörf fiskiðjuvera, sem sett eru niður af kjánaskap, ráði því, með hvaða hætti fiskstofnarnir á hinum ýmsu miðum verða nytjaðir.