13.02.1974
Neðri deild: 61. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2189 í B-deild Alþingistíðinda. (1955)
Umræður utan dagskrár
Halldór S. Magnússon:
Herra forseti. Ég skal verða við tilmælum forseta um að hafa aths. stutta. Ég er alveg sammála forseta um það, að umr. utan dagskrár eru orðnar úr hófi fram hér á hv. Alþ. Við lásum nýlega í dagblöðum, að það væri þjóðsaga, að þm. hefðu ekki nóg að gera, og það er vissulega alveg rétt. Það er auðvitað hægt að láta þá hafa enn meira að gera, ef menn halda áfram sýknt og heilagt að koma með ótímabærar og ónauðsynlegar fsp. og umr. utan dagskrár.
Ég vil aðeins benda þeim hv. þm., sem hér hafa talað, og sérstaklega þeim, sem vakti máls á þessu utan dagskrár, að ef svo er sem þeir vilja vera láta, að ríkisstj. hafi staðið sig dómadagsilla í þessu máli og nauðsynlegt sé að sýna alþjóð fram á það, og þeir hafa þá væntanlega fram að færa einhverjar ákveðnar till. í þessum málum, þá er auðvitað rétta aðferðin að óska eftir útvarpsumr. um stefnu stjórnarinnar og aðgerðir í þessum málum og þá væntanlega á móti stefnu þessara hv. þm. og þeirra þingflokka. Það fæst þó ekki fram nema með samþykki heils þingflokks, og vonandi er það svo, að þetta sé ekki nema stráksskapur einstakra þm. í einum þingflokki, að rjúka upp með þessar ónauðsynlegu umr.
Ég held, að það sé öllum hv. þm. ljóst, að umr. sem þessar um mál eins og samningamál. sem eru á viðkvæmu stigi, eru ekki neinum til góðs og eru síst til þess að leysa þá deilu, sem yfir stendur. Samningarnir eru í eðlilegum farvegi, það vita þessir hv. þm. sem aðrir. Aðild ríkisstj. að þessum samningum hefur verið með eðlilegum hætti og í fullu samræmi við óskir þeirra aðila, sem í samningum standa, og þess vegna eru langar stjórnmálaumr. um þetta mál algerlega ónauðsynlegar, og í samræmi við það sjónarmið mitt læt ég orðum mínum lokið.