13.02.1974
Neðri deild: 61. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2198 í B-deild Alþingistíðinda. (1966)

Umræður utan dagskrár

Forseti (Gils Guðmundsson):

Ég vil aðeins að nokkuð gefnu tilefni segja það, að ég taldi eðlilegt og sjálfsagt að gefa hér kost á umr. um málefni rússneska rithöfundarins Solzhenitsyns, en ég hefði ekki séð ástæðu til þess að láta hefja hér umr. utan dagskrár um málefni vinar míns Guðmundar Daníelssonar á Selfossi.