14.02.1974
Sameinað þing: 56. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2200 í B-deild Alþingistíðinda. (1975)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Eysteinn Jónsson):

Mér hefur borist svo hljóðandi bréf:

„Steingrímur Hermannsson, 1. þm. Vestf., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun ekki geta sótt þingfundi á næstunni, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþ. að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Vestf., Halldór Kristjánsson bóndi, taki sæti á Alþ, í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt.

Eggert G. Þorsteinsson,

forseti efri deildar.“

Halldór Kristjánsson hefur áður setið þing á þessu kjörtímabili og kjörbréf hans verið samþ., og býð ég hann velkominn til starfa.