14.02.1974
Sameinað þing: 56. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2209 í B-deild Alþingistíðinda. (1984)

148. mál, byggingasvæði fyrir Alþingi, ríkisstjórn og stjórnarstofnanir

Ásberg Sigurðsson:

Herra forseti. Ég álít, að þetta mál sé mjög tímabært. Við sjáum það, að gamli miðbærinn, sem okkur þykir vænt um, a.m.k. Reykvíkingum, er að deyja. Bankarnir hafa lagt undir sig aðalpartinn í miðbænum, Austurstræti, og ég sé ekki, að þar sé staður fyrir þær stofnanir á vegum ríkisins, sem vantar húsnæði. Við vitum, að það er víða vandamál. Okkur vantar dómhús, okkur vantar alþingishús og okkur vantar stjórnarráðshús. Allir þrír þættir ríkisvaldsins eru á hrakhólum, það er staðreynd í dag. Og þessum stofnunum verður ekki komið fyrir í miðbænum. Ég vil láta lífga upp á miðbæinn minn. Ég vil heldur sjá borgarleikhúsið hér við Tjörnina, lítil hótel, eitthvað til að lífga upp bæinn, eins og hann var í gamla daga, þegar maður gekk suður með Tjörninni og Laufásveginn. Ég vil, að gömul rómantík geti færst yfir okkar gamla miðbæ.

En hvar á þá að koma fyrir opinberum byggingum? Það er ekki hægt í gamla miðbænum, og það er ekki hægt í hinum nýja fyrirhugaða miðbæ við Kringlumýri. Þar er þegar orðið algert umferðaröngþveiti, og er ekki á það bætandi. Við verðum að fara lengra. Við verðum að fara allt austur fyrir Elliðaárnar til að finna okkur stað til framhúðar. Við Elliðaárnar eru þegar komin umferðarmannvirki, sem geta flutt mikla umferð til Kópavogs og Hafnarfjarðar. Að vísu er væntanleg hraðbraut ekki algerlega komin til Hafnarfjarðar en hún kemur innan tíðar. í Ártúnshöfðanum eða þar sem kartöflugeymslan og Árbær er og þar í hallanum mundi ég telja, að færi vel um glæsilegar byggingar íslenska lýðveldisins. Þarna mætti koma fyrir alþingishúsi, stjórnarráðshúsi, e.t.v. ráðhúsi, dómhúsi, útvarpshúsi o.fl. Það eru margar stofnanir, sem vantar húsnæði, og ég held, að þarna á bökkum Elliðaánna og í hallanum þarna á stóru svæði og jafnvel líka í Ártúnshöfðanum mætti koma fyrir með góðu móti þeim byggingum, sem hið opinbera þarf á að halda.

Nú kunna menn að segja, að þetta sé svo út úr. Ef við lítum á byggðakjarnann hérna, Stór-Reykjavík, þá eru um 10 km. frá Elliðaánum að Ráðagerði á Seltjarnarnesi. Það eru um 10 km í Hafnarfjörð. Þetta er, þrátt fyrir það að þetta eru mörg sveitarfélög, eitt samfellt byggðasvæði, sem þarf að hafa viðskipti við opinberar stofnanir, þannig að ég tel, að þetta sé þegar mjög miðsvæðis miðað við Stór-Reykjavík. Svo vitum við, að Breiðholtshverfið er þarna nálægt með 15–20 þús. íbúum, Árbæjarhverfið er komið inn fyrir Elliðaár og á næstu árum verður byggt á löndum bæjarins í Korpúlfsstaðalandi og uppi í Mosfellssveit, þannig að ég hygg, að innan 10 –15 ára verði þetta hið raunverulega miðbik Stór-Reykjavíkursvæðisins. Ástandið eins og það er, að vera með borgarfógetaembætti á Skólavörðustig, borgardómaraembætti vestur í bæ í leiguhúsnæði, er fyrir neðan allar hellur. Það er að vísu dýrt að gera þetta. En ég held, að það sé ekki vansalaust fyrir land, sem telur sig sjálfstætt ríki, að huga ekki að því að koma upp eigin húsnæði fyrir höfuðþætti valdsins, sem sagt löggjafarvaldið, dómsvaldið og framkvæmdavaldið. Þetta hús hérna er gamalt og virðulegt. Það gæti sem best verið aðsetur hæstaréttar.

Það, sem ég legg alveg sérstaka áherslu á, er, að við verðum að hverfa frá því að troða miklu fleiri opinberum byggingum í gamla miðbæinn. Við eigum að reyna að lífga hann upp, gera hann okkur hjartfólginn. Tjörnin og þessi gamli miðbær á sterkar rætur í okkur, a.m.k. Reykvíkingum, og við eigum að reyna að gera hann eins aðlaðandi og mögulegt er. Það er hægt að byggja hér t.d. borgarleikhús eða hótel. Umferð af slíkum stofnunum er minni um verslunartímann og aftur meiri að kvöldinu. Ég álít þessa tili. um að setja þetta mál í mjög rækilega athugun mjög athyglisverða, og ég nota tækifærið til að benda á, að í Ártúnshöfðanum eða austan Elliðaánna er möguleiki til að koma þessum byggingum fyrir á mjög góðan hátt, ef að því yrði horfið.