19.02.1974
Sameinað þing: 57. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2253 í B-deild Alþingistíðinda. (2018)
Umræður utan dagskrár
Sjútvrh. (Lúðvík Jósepsson):
Herra forseti. Það er ætlast til, að sjútvrh. svari og geri ekki annað en að svara. En svör mín eru á þessa leið.
Í fyrsta lagi er spurt: Hvers vegna er ekki bannað að veiða loðnu og dæla henni síðan í sjóinn? — Um leið og heyrðist í fréttum, að þetta ætti sér stað, fór sjútvrn. þess á leit við Fiskifélag Íslands, að það kannaði, í hve miklum mæli þetta væri og hvernig væri í rauninni með þessar fréttir. Þessari athugun Fiskifélagsins er ekki lokið enn, hún er ekki komin enn frá Fiskifélaginu og get ég ekki sagt um það á þessu stigi, hvað hér er um mikið magn að ræða. Sennilegt er, að hér sé aðeins um fá tilvik að ræða. En ég er sem sagt sammála hv. fyrirspyrjenda að því leyti til, að ég er sannfærður um, að enginn skipstjórnarmaður og enginn sjómaður veiðir afla bara til þess að drepa fiskinn sér til gamans, að kasta honum aftur í sjóinn. Hann gerir þetta hreinlega til neyddur, og kæmi þá að litlu gagni, þó að búið væri að banna að gera þetta. En þetta mál er í athugun, og ef unnt er að reisa skorður gegn því, að menn misnoti veiðirétt sinn, þá verður það gert.
Í öðru lagi er spurt: Hefur skipulögð athugun farið fram á, hvort einhverjir aðilar misnoti eða brjóti reglur loðnunefndar? — Um þetta hefur nú nýlega verið gefin ítarleg skýrsla í útvarpi og sjónvarpi. Ég er með þessa skýrslu hér í höndum. Ég sé ekki ástæðu til að fara að lesa hana alla upp, hún hefur verið lesin yfir öllum landslýð. Allveruleg brot hafa átt sér stað í höfnum hér sunnanlands í þessum efnum, og loðnunefnd hefur strax gripið til gagnráðstafana, refsiaðgerða gagnvart þeim, sem brotið hafa af sér. En til þess að spara tíma fer ég ekki að lesa þetta allt upp.
Í þriðja lagi er spurt: Hvað er búið að selja mikið af loðnumjöli, og hvert er meðalverð pr. 1000 kg frítt um borð? — Það er búið að selja fyrir fram af loðnumjöli um 18 þús. tonn, og verðið frítt um borð er í kringum 50 þús. kr. á tonnið.
Þá er spurt: Hvað lána viðskiptabankar og Seðlabankinn út á hvert framleitt tonn? — Lán bankanna eru á þessa leið eftir þeim upplýsingum, sem ég hef getað fengið: Lán Seðlabankans út á hvert framleitt tonn af loðnumjöli er nú 19 þús. kr. Lána viðskiptabankarnir síðan 28.2% til viðbótar við þessi lán Seðlabankans.
Þetta eru svörin við þessum spurningum, og ég vænti, að þan verði að teljast fullnægjandi, miðað við þann tíma, sem hér er um að ræða. Umræður utan dagskrár.