19.02.1974
Sameinað þing: 57. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2257 í B-deild Alþingistíðinda. (2021)
Umræður utan dagskrár
Benedikt Gröndal:
Herra forseti. Mér þykir athyglisvert, þegar hæstv. forsrh. stendur upp til að svara spurningum um ræðu hæstv. iðnrh. Magnúsar Kjartanssonar á Norðurlandaráðsþingi, að hann eyði allt að því eins miklum tíma í að ræða um stutta aths., sem hv. 7. þm. Reykv., Gylfi Þ. Gíslason, gerði þar, og er það væntanlega til þess gert að reyna að draga athyglina frá sjálfu umræðuefninu, sem er ræða Magnúsar. Ég held, að Gylfi geti vel staðið við það, sem hann sagði, og satt að segja getur enginn maður tekið það sem annað en einkaálit stjórnarandstöðuþm. Hins vegar efast ég um, að hann þurfi að ganga í Framsfl. til að sjá, hvernig ástandið er þar í utanríkismálum. Það blasir við sjónum allrar þjóðarinnar, þannig að ekkert er eðlilegra en að maður lýsi þeirri skoðun sinni, að viðhorf Framsfl. kunni að vera eins og Gylfi fullyrti, að hann teldi þau vera.
Athyglisverðara er það við svörin, sem fengust varðandi ræðu hæstv. iðnrh. Magnúsar Kjartanssonar, að hæstv. forsrh. hefur afneitað ræðunni algjörlega. Hann hefur tekið það skýrt fram, að ræðan hafi ekki verið flutt á vegum ríkisstj. og ekki verið samþykkt af ríkisstj., þó að það hafi verið upplýst í gær, að tveir af ráðh. stjórnarinnar hafi verið að kokka þessa ræðu a.m.k. viku fyrir þingið.
Annars vegar getum við glaðst yfir því og þakkað fyrir það, að forsrh, skuli taka skýrt fram, að ræðan er ríkisstj. óviðkomandi og að hann lítur sjálfur ekki svo á, að Norðmenn hafi gert sig seka um neina íhlutun í íslensk málefni. Hins vegar er aðalatriði málsins orðið það, hvers konar stjórnarfar er á Íslandi, þegar iðnrh. flytur á alþjóðlegri ráðstefnu ræðu um utanríkismál, sem forsrh., er situr í sama sal á sömu ráðstefnu, veit ekkert um fyrir fram, hefur ekki heyrt nefnda og verður að standa upp á eftir til þess að afneita. Hvers konar ríkisstj. er þetta? Hvers konar mynd af íslensku stjórnarfari gefur slík framkoma? Og hvers konar stjórnmálamaður er bað, sem hegðar sér þannig gagnvart samráðherrum sínum í samsteypustjórn, ekki aðeins að tala þannig, heldur að tala þannig á bak við fors- og utanrrh.
Segjum svo, að hann hafi rætt þetta við þá og sagt þeim, að hann teldi óhjákvæmilegt að flytja slíka ræðu. Það hefði verið heiðarlegt, svo langt sem það náði. Það er ekki um að ræða neina takmörkun á málfrelsi manna eða skoðanafrelsi. Spurningin er um það, hvort starfhæf og forsvaranleg ríkisstj. er á Íslandi eða ekki. Hvað ætla forsrh. og flokkur hans og hvað ætlar utanrrh. að þola slíka framkomu af samráðherrum sínum lengi? Hvað oft ætlar Ólafur Jóhannesson að láta niðurlægja sig á albjóðlegum ráðstefnum af þessum félögum sínum? Það eru spurningar, sem ekki aðeins við viljum fá svör við, heldur geri ég ráð fyrir, að margir velti fyrir sér á Norðurlöndum í dag. Því verður ekki neitað,að viðbrögð norskra blaða eru þannig, að þau líta á þessa ræðu sem harða árás á Noreg. Það er alvörumál, sem snertir forsrh. ekki síður en aðra ráðh. í ríkisstj. Þetta er kjarni málsins.