19.02.1974
Sameinað þing: 57. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2265 í B-deild Alþingistíðinda. (2030)
Umræður utan dagskrár
Sverrir Hermannsson:
Herra forseti. Það var sama æðið á hæstv. sjútvrh. og við höfum orðið vitni að í umr. hér á hinu háa Alþ. undanfarið, í gær og fyrir viku t.d., og hann svaraði engu nema útúrsnúingi og afgæðingi, eins og hans er háttur, þegar hann verður skelfingu lostinn. Hann er að vísu kjarkmikill maður, en það getur sótt að honum ótti út af einu, og það er, ef hann óttast um stólinn sinn. Og nú er þetta mál þannig vaxið, að hann hrökk illilega við.
Hann kallar þetta einkennilegar umr. nú í framhaldi af þeim umr., sem áttu sér stað í gær. Þó taldi hann þær umr, gersamlega út í hött, af því að það lægi ekki fyrir, hvað hefði verið sagt í þessum frægu umr. á Norðurlandaþingi. Nú, þegar það liggur fyrir, eru þessar umr. út í hött og með ólíkindum, eins og hann nefnir það.
Það hefur borið mjög á góma í umr., að við höfum orðið fyrir vonbrigðum með afstöðu Norðmanna til landhelgisdeilunnar. Ég sé ekki ástæðu til þess að orðfæra það sérstaklega og draga þau mál hér inn í þessar umr. Hins vegar liggur það alveg ljóst fyrir, að eins og landhelgismálið allt var fram lagt og að því staðið af hálfu núv. hæstv. ríkisstj., þá endaði það með því, að sú ráðagerð öll reyndist óframkvæmanleg og við vorum neyddir til þess að ganga að nauðungarsamningum. Og hæstv. sjútvrh. var líka neyddur til þess, áður en lauk.
Málið snýst ekki um það, að hæstv. iðnrh. hafi ekki leyfi til að segja sínar persónulegu skoðanir á þingi Norðurlandaráðs. Við vitum öll, hverjar eru persónulegar skoðanir hæstv. ráðh. Hitt liggur alveg ljóst fyrir, að þegar einn ráðh. úr ríkisstj., eins og úr ríkisstj. Íslands nú, stendur upp á þingi Norðurlandaráðs og tekur til umræðu mál, sem hæstv. forsrh. Íslands segir, að eigi þar ekki heima, og talar með þeim hætti sem bann gerir, þá er litið svo á, að þarna sé verið að tala í nafni ríkisstj. Íslands, enda hefði forsrh. Íslands ekki farið að mótmæla því, taka það sérstaklega fram á þinginu að hann talaði ekki í nafni íslensku ríkisstj., nema af því að svo hlaut að verða litið á, — eða a.m.k. væri mikil hætta á því, — að þarna væri hann að tala í umboði ríkisstj.
Það hefur verið rætt um það hér og hneykslast á því, og það kom fram í ræðu Magnúsar Kjartanssonar hæstv. iðnrh., að norskir stórþingsmenn hefðu komið til Íslands til að ræða við okkur um varnarmál. Einnig var getið um, að fulltrúar öðrum samtökum með öðru hugarfari hefði hingað komið, sérstaklega í Þjóðviljanum. En ég verð að segja það eins og er: Er nokkuð óeðlilegt, þótt Norðmenn gefi okkur til kynna afstöðu sína til slíkra mála eins og þessara með orðsendingu eins og þeir gerðu? Það hefði verið óheilbrigðara, ef þeir hefðu komið síðar meir, eftir t.d. að hæstv. ríkisstj. hefði gert landið varnarlaust, og sagt, að við hefðum farið aftan að þeim í þessu máli.
Ég er alveg að ljúka máli mínu, og mér þykir í svo viðamiklu máli, að hæstv. forsrh. skaki of ótt skellu sína að hv. þm., sem þurfa að ræða þetta mjög mikilvæga mál, og trúi ég ekki, að hann sýni ekki örlitla þolinmæði, meðan ég vík að því, eins og sagt var, að ráðh. megi ekki ræða neitt á fundum Norðurlandaráðs. Það kom í ljós t.d. hjá hv. þm. Ingólfi Jónssyni í gær, að vitanlega höfðu þeir líka í tíð fyrrv. ríkisstj. fullkomið leyfi til þess að ræða hver þau mál sem á dagskrá voru, en samstaða var í þeirri stjórn með þeim hætti, að þar hlaut að koma til sameiginlegrar afgreiðslu í þýðingarmiklum málum, en ekki með þeim dæmalausa hætti, sem við nú höfum fyrir augum, með þessum skammarlega hætti, vil ég segja. En hæstv. iðnrh. hefur orðið Íslandi til háborinnar skammar í þessu máli á erlendum vettvangi.