19.02.1974
Sameinað þing: 57. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2267 í B-deild Alþingistíðinda. (2031)
Umræður utan dagskrár
Lárus Jónsson:
Herra forseti. Ég stóð nú upp í þeirri veru að spyrja hæstv. sjútvrh., hvort hann myndi eftir því, hve oft hann hefði byrjað ræður sínar hér á hv. Alþingi s.l. vetur á því: „Þetta eru undarlegar umræður“, „þetta eru furðulegar umræður“, og hvaða ónöfn hann hefur kallað okkur hv. þm. í þessum ræðum. Í síðustu ræðu nefndi hann okkur steinhausa, og ég man ekki, hver fleiri ónefni hann tíndi til. Ég verð að láta í ljós afskaplega mikla undrun mína yfir þessari stórfurðulegu undrun hæstv. ráðh. Hvorir eru undarlegri við hv. þm. eða hæstv. ráðh., að láta svona Þessar umr. hafa spunnist út af því, að hæstv. iðnrh., sem við þekkjum að því, að vera afskaplega hógværan mann, lítillátan og hógværan í málflutningi, flutti nokkuð skelegga ræðu á þingi Norðurlandaráðs. Og þar sagði hann m.a.: Ríkisstjórnin telur þetta, ríkisstj. telur hitt. — Það er upplýst í þessum umr., að hæstv. ráðh. samdi þessa ræðu í samráði við meðráðherra sinn úr hans flokki hæstv. sjútvrh., viku áður en hann fór á þetta þing. En hann bar hana ekki undir forsrh., og forsrh. vissi ekkert um hana, þegar þessi ræða var flutt á því þingi, sem hann sjálfur var á. Við, þessir steinhausar, sem hér erum á hv. Alþingi, hvaða ályktanir getum við dregið af því, þegar er sagt við okkur: Hæstv. iðnrh. talar bara sem prívatmaður á þingi Norðurlandaráðs. — Samt segir hann: Ríkisstj. telur þetta, ríkisstj. telur hitt, — og ræðst með offorsi á aðra þjóð, vinaþjóð okkar, Norðmenn. Hvað getum við, þessir gapuxar, sem hér erum, hugsað? Við verðum að álykta sem svo: Hæstv. iðnrh. er ríkisstj. Þegar hann talar prívat, kemur fram skoðun ríkisstj. Ríkið, það er ég.