19.02.1974
Sameinað þing: 57. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2274 í B-deild Alþingistíðinda. (2038)

413. mál, skipulagning björgunarmála

Fyrirspyrjandi (Halldór S. Magnússon):

Herra forseti. Ég hef leyft mér að bera fram svohljóðandi fsp, til dómsmrh. á þskj. 371. „Hvað líður störfum nefndar, sem skipuð var 1. des. 1972 til þess að skipuleggja björgunarmál í landinu samkvæmt þál. frá 18. maí 1972?“

Þáltill. sem ég vitna til. er svo hljóðandi, með leyfi forseta:

„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að skipa samstarfsnefnd fulltrúa hinna ýmsu hjálparsveita og björgunaraðila í landinu til að vinna að skipulagningu björgunarmála. Í n. verði fulltrúar frá þessum aðilum: Almannavörnum, flugbjörgunarsveitum, Flugmálastjórn, Landhelgisgæslu, Landssambandi hjálparsveita skáta, lögregluyfirvöldum og Slysavarnafélagi Íslands. Dómsmrh. skipar formann n.“

Eins og í þál. segir, er ætlast til þess, að samstarfsn. vinni að skipulagningu björgunarmála, en með björgunarmálum mun átt við hvers konar björgunaraðgerðir. Þáltill. var flutt af tveimur hv. þm., sem báðir höfðu sem fulltrúar sinna þingflokka tekið þátt í störfum ráðstefnu um björgunarmál, sem Landssamband hjálparsveita skáta efndi til. Á þessari ráðstefnu voru mættir fulltrúar flestra eða allra aðila, sem sinna björgunarmálum, bæði opinberra aðila og einkaaðila og samtaka þeirra. Á þessari ráðstefnu kom fram greinilegur áhugi þátttakenda á því, að efnt yrði til víðtæks samstarfs þeirra aðila, sem björgunarmálum sinna, og munu flestir hafa verið sammála um nauðsyn þess, að þau mál yrðu skipulögð á þann veg, að ljóst væri, hvert væri hlutverk hvers aðila í hverju einstöku tilviki.

Óhætt er að fullyrða, að ekki hafa komið fram skoðanir frá neinum, sem málið varðar, um að ekki sé þörf skipulagningar björgunarmála. Skipun þeirrar nefndar, sem hér er spurst fyrir um, vakti því vonir allra þeirra, sem láta sig björgunarmál varða, um, að nú fari að rofa til í því sambandsleysi og skipulagsleysi, sem hefur því miður ríkt í sambandi við þessi mál. Þessar spurningar eru nú fram bornar til þess, að svör fáist við því, hversu langt n. er komin með verkefni sín.