30.10.1973
Sameinað þing: 10. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 276 í B-deild Alþingistíðinda. (205)
1. mál, fjárlög 1974
Pálmi Jónsson:
Herra forseti. Ég hafði ekki ætlað mér að taka til máls við þessa umr. og skal ekki segja hér mörg orð. Tilefni þess, að ég er hingað kominn, eru nokkur orð, sem féllu af munni hv. 7. landsk, þm.
Meðal þess, sem hann sagði, var það, að hlutdeild landsbyggðarinnar í framkvæmdafé ríkisins á fjárl. hefði tekið stakkaskiptum í tíð núv. ríkisstj. í þá átt að vera miklu meira en áður hefði verið. Ég verð að játa, að ég hef ekki reiknað þetta nákvæmlega út. En vegna þess að þessi hv. þm. fullyrti þetta með slíkum ákafa, verð ég að segja það, að ég hafði ekki tekið eftir þessu, og ég hygg, að við í Norðurl. v. höfum ekki tekið eftir slíkum stakkaskiptum. Því til sönnunar ætla ég að minna þennan hv. þm., sem á sæti í hv. fjvn., á það, að á fjárl. yfirstandandi árs er varið til hafnarframkvæmda, — en hafnarframkvæmdir voru einmitt einn af þeim málaflokkum, sem þessi hv. þm. nefndi, er varið á fjárl. þessa árs til Norðurl. v. nákvæmlega 7 millj. 250 þús. kr. Sér eru nú hver stakkaskiptin, ef 7 millj. 250 þús. kr. til hafnarframkvæmda í Norðurl. v. sanna það, að hér hafi orðið mikil umskipti, enda þótt ég hafi ekki við höndina að þessu sinni tölur um það fé, sem veitt var til þessa framkvæmdaþáttar í tíð fyrri ríkisstj. Ég vil einnig minna þennan hv. þm. á það, að til heilbrigðismála í Norðurl. v. er á fjári. yfirstandandi árs veitt nákvæmlega 3 millj. 640 þús. kr. Það mega hafa verið litlar fjárveitingar á fjárl. ársins 1971, ef hér er um feikileg stakkaskipti að ræða. Í sambandi við það vil ég minna á það, að á þessum sömu fjárl. ársins 1973 er veitt til Borgarspítalans í Reykjavík 35 millj. 230 þús. kr.
Ég fæ ekki séð, að þessi dæmi sanni það, að hlutdeild landsbyggðarinnar í framkvæmdafé ríkisins á fjári. hafi hækkað stórkostlega í tíð núv. ríkisstj. (Gripið fram í: Hvað um skólamálin í Norðurl. v.?) Það er rétt, að Norðurl. v. heldur nokkurn veginn sínum hlut gagnvart öðrum kjördæmum í landinu í þeim eina lið opinherra framkvæmda. Og það mætti fyrr vera, ef svo væri um eitt kjördæmi landsins, að ekki væri hægt að henda á einhvern þátt opinberra framkvæmda, sem væri nokkurn veginn í samræmi við það, sem gerist annars staðar.
Ég skal ekki ræða þessi mál frekar hér. En ég tók eftir því í ræðu þessa hv. þm., að hann brýndi þm. strjálbýliskjördæma, a. m, k. um vestanvert, norðanvert og líklega austanvert landið, til þess að hefja harða baráttu fyrir því að fá aukið fé til hafnarframkvæmda. Það skal sannarlega ekki standa á mér að beina áskorun til þessa fulltrúa í hv. fjvn. og annarra fulltrúa stjórnarliðsins, sem ráða málum hér á Alþ., til þess, að svo verði farið að sem þessi hv. þm. óskaði eftir í þessu tilliti.
Hv. þm. talaði hér háum rómi, og stundum er það svo, að þegar röksemdir eru veikar og málstaður hæpinn, þá reyna menn að bæta úr með raddstyrk. Ég hygg þó, að þótt raddstyrkur þessa ágæta þm. sé mikill; þá nægi það ekki til þess að almenningur, t. d. í Norðurl. v., láti það verða til þess, að hann trúi þessum fullyrðingum þessa ágæta og hávaðasama þm.