25.02.1974
Efri deild: 60. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2311 í B-deild Alþingistíðinda. (2081)
227. mál, notkun nafnskírteina
Menntmrh. (Magnús T. Ólafsson):
Herra forseti. Frv., sem lagt er fram á þskj. 391, fjallar um breytingu á fyrirkomulagsatriðum varðandi útgáfu nafnskírteina. Þetta frv. er borið fram að fenginni reynslu af framkvæmd núgildandi ákvæða um nafnskírteinaútgáfu. Útgáfa þessara skírteina hefur um allmörg undanfarin ár verið í höndum Hagstofunnar, og frv. það, sem hér er lagt fram, er undirbúið af hagstofustjóra.
Það kom brátt í ljós, eftir að nafnskírteinaútgáfa var hafin, að í öndverðu hafði ekki verið búið svo um hnúta, að ekki gæti verið um ýmiss konar vandkvæði og misnotkun að ræða á nafnskírteinum, og hefur nú stillt og stillt í framkvæmdinni verið leitast við að ráða bót á þeim annmörkum. En nú telur framkvæmdaaðilinn, Hagstofan, að lengra verði ekki komist innan ramma gildandi laga, og því er þetta frv. borið fram til að afla heimilda til frekari ráðstafana, sem þörf er talin til að gera nafnskírteinakerfið eins traust og menn sjá tök á. Það skiptir að sjálfsögðu verulegu máli, bæði fyrir notendur nafnskírteinanna og þá eftirlitsaðila, sem þurfa að krefjast framvísunar þeirra, að skírteinin séu eins traust heimild um það, sem þau eiga að sýna, aldur einstaklinga og hverjir þeir séu, og unnt er að koma í kring.
Því er ekki að leyna, að mjög fljótt, eftir að nafnskírteinaútgáfa hófst, kom í ljós, að ýmis ráð voru til að breyta nafnskírteinum eða falsa þau. Þetta hafði að sjálfsögðu í för með sér, að vantraust á þessum skilríkjum varð útbreitt hjá aðilum, sem ráku sig á, að brugðið gat til beggja vona um, hversu skilrík heimild þau voru. Að sjálfsögðu hafa ýmsir saklausir þarna liðið fyrir seka. Það veldur þeim, sem eru með rétt nafnskírteini, gjarnan óþægindum, ef eftirlitsaðilar, sem krefjast, að þeim sé framvísað, bera í brjósti tortryggni til slíkra plagga vegna fenginnar reynslu, að þau kunni að vera fölsuð eða á annan hátt misnotuð.
Er það einkum tvennt, sem lagt er til í frv., að gert sé til að efla nafnskírteinagerð. Annað er það að hækka nafnskírteinisaldurinn um tvö ár, úr 12 árum, eins og nú er, í 14 ár, og ákvæðið um þetta er í 1. gr. frv. Ástæðan til, að lagt er til að gera þessa breytingu, er fyrst og fremst sú, að á aldursskeiðinu frá 12 ára aldri til 14 ára, á gelgjuskeiðinu, verða afar miklar og örar breytingar á útliti æskumanna. Það veldur því, að myndir, sem teknar eru við 12 ára aldur og festar í nafnskírteini, eru gjarnan orðnar töluvert ólíkar viðkomandi einstaklingi að tveim eða þremur árum liðnum, einmitt þegar fer fyrst verulega að reyna á notkun nafnskírteinanna við aðgang að stöðum eða á sölustöðum. Auðvitað var það úrræði hugsanlegt að gera að skyldu að skipta um mynd við 14 eða 15 ára aldur og gefa þá út ný skírteini. En að athuguðu máli kemur öllum aðilum saman um, að það væri bæði óþarfur kostnaður og óþörf fyrirhöfn, því að notin fyrir nafnskírteinin á aldrinum 12–14 ára séu alls ekki það mikil, að ástæða sé til að binda nafnskírteinaaldurinn við 12 ár. Því er hér lagt til að höfðu samráði við ýmsa aðila, sem mest fjalla um notkun nafnskírteina, að hækka aldurinn úr 12 árum í 14 ár.
Hin meginbreyting frá núgildandi l. felst í 4. gr. Þar er svo kveðið á, að lögreglustjóri geti ákvarðað, að í hans umdæmi skuli nafnskírteini á aldrinum 18–23 ára því aðeins vera gilt sönnunargagn um aldur, að einstaklingur, sem í hlut á, hafi undir höndum sérstaklega útgefið skírteini fyrir þennan aldursflokk með öðrum lit á skírteiniseyðublaðinu en er á hinum almennu nafnskírteinum, sem gefin verða út við 14 ára aldur, samkv. ákvæðum þessa frv. Hér er litið til þess, að á þessum aldri 17 eða 18 ára, tekur þorri unglinga bílpróf. Þurfa þeir því hvort eð er að verða sér úti um nýja andlitsmynd, og því er með tiltölulega litlum kostnaði hægt að sameina, ef hlutaðeigandi lögreglustjóri sér ástæðu til, útgáfu nafnskírteinis og útgáfu ökuskírteinis. Ákvæðið um sérstakan lit á þessum skírteinum eldri flokksins er auðvitað haft til þess, að auðvelt sé að greina á milli þessara tveggja flokka, sem væru þá frá 14 til 18 ára og 18 ára til 23 ára. En þá er talið, að lokið sé því tímabili, sem gera má ráð fyrir, að fólk almennt þurfi að sanna aldur sinn með nafnskírteini, að því búnu sé útlitið næg sönnun.
Í 2, og 3. gr. frv. er lagt til, að gerðar verði tvær aðrar breytingar á nafnskírteinalögunum, óskyldar þessum megintilgangi frv. að treysta nafnskírteinakerfið í framkvæmd.
Í 2. gr. er lagt til, að 4. málsgr. 1. gr. núgildandi laga falli niður. Þar er kveðið á um, að nafnskírteini árituð í skýrsluvélum þurfi ekki að bera undirskrift hagstofustarfsmanns. Eftir að farið er að nota nafnskírteini þó nokkuð erlendis, einkum þó á Norðurlöndum, þykir það bagi, að ekki skuli skylt, að þau beri undirskrift, því að árituð þykja þau mun trúverðugri þeim erlendu embættismönnum, sem þeim er framvísað við.
Síðan er lagt til í 9. gr., að í stað orðanna „nafnnúmer Þjóðskrár“ í 2. málsgr. 2. gr. núgildandi laga komi: auðkennisnúmer Þjóðskrár. Þessi till. réttlætist af því, að í auknum mæli er nú farið að nota svonefnt fæðingarnúmer Þjóðskrár jöfnum höndum og þá talnaröð, sem her heitið nafnnúmer Þjóðskrár.
Ég sé svo ekki ástæðu til, herra forseti, að fara fleiri orðum um þetta mál, en legg til að endingu, að því verði að þessari umr. lokinni vísað til hv. allshn.