25.02.1974
Neðri deild: 66. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2335 í B-deild Alþingistíðinda. (2100)

240. mál, neyðarráðstafanir vegna jarðelda á Heimaey

Garðar Sigurðsson:

Herra forseti. Ég átti ekki von á því, — vissi ekki af því, — að þetta mál kæmi fyrir á þingfundi í dag, og er þess vegna allsendis óviðbúinn því að ræða það í smáatriðum eða svo vel sem ástæða er til. Hér hafa á undan talað forustumenn flokka, þ. á m. forsrh. og hæstv. forseti Sþ.

Vissulega er ástæða til þess, að menn geti orðið svolítið undrandi yfir þessu frv., sem maður sá fyrst fyrir 3 stundarfjórðungum, því að ég vissi ekki betur en hæstv. forsrh. hefði mælst til þess, að Viðlagasjóður fengi áfram tekjur, sem næmu 2% í söluskatti, en með þessu frv. eru tekjur skornar niður um helming. Það er alveg sýnilegt á því, hvernig hefur verið unnið að þessu máli að undanförnu, að þarna hefur stjórnarandstaðan komið til, og mun ég kannske víkja aðeins að því á eftir.

Fyrir rúmu ári hófst eldgos í Vestmannaeyjum. Íslendingar eru svo sem ekkert óvanir eldgosum, en það hefur aldrei komið fyrir, að eldgos brytist út á viðlíka stað og það gerði þá, þ.e.a.s. í þéttri byggð og meira að segja í því plássi, sem er eitt lífvænlegasta pláss landsins. Sannleikurinn er sá, að gangur alls gossins hefur verið ein samfelld runa kraftaverka, og þyrfti ekki að nefna nema örfá atriði í því efni. Í fyrsta lagi kemur gosið upp austan við byggðina. Í öðru lagi hafði lægt það fárviðri, sem gengið hafði daginn áður í Eyjum, þannig að veður var gott og allur flotinn í höfn. Það mætti segja, að það sé eitt af kraftaverkunum einnig að á meðan á gosinu stendur og mest af lausum gosefnum kemur upp úr sprungunni, þá er þvert ofan í áratuga- og aldareynslu — vestanátt, í staðinn fyrir að venjan er, að í þessum mánuði sé austanátt 70–80% að meðaltali. Hefði það verið eftir venju, væri bærinn fyrir löngu horfinn.

Hv. þm. Eysteinn Jónsson talaði um það í upphafi síns máls, að furðu sætti, hversu vel hefði gengið að bæta úr þessum ósköpum í Vestmannaeyjum. Það er alveg rétt, að ýmsir hlutir hafa gengið vel. Hreinsunin gekk vel. og það hefur gengið vel að koma atvinnutækjunum í gang. Í því sambandi mætti geta þess, að það frystihús, sem var fyrst tilbúið til þess að taka á móti loðnu, var það frystihús, sem fékk hraunið inn í miðjan vélasalinn á s.l. ári. Vestmannaeyjar eru hæsta löndunarstöðin, og vonandi verða Vestmanneyingar áfram til þess að sýna það, að Vestmannaeyjar eru mjög mikilvægur hlekkur í þjóðarbúskapnum, og höfnin í Vestmannaeyjum ein mikilvægasta höfn fiskiflotans á Íslandi, þó að þess hafi ekki gætt í fjárveitingum til hennar á undanförnum árum.

Til þess að vinna að þessum vandamálum öllum saman, setti Alþ. á stofn Viðlagasjóð og setti honum stjórn, sem skyldi vinna að þessu. Í þeirri stjórn áttu sæti menn úr öllum stjórnmálaflokkum, og ég held, að mér sé óhætt að fullyrða, að þar hafi hingað til verið mjög góð samvinna undir ágætri — ég vil segja frábærri stjórn formanns stjórnarinnar, Helga Bergs. Þessi stjórn, sem hæstv. Alþ. kaus til að standa fyrir lausn málanna, gerði einmitt uppkast að frv. um áframhaldandi tekjur. Ég sé ekki betur en að það sé vantraust á þessa menn, sem þarna starfa, og á form. stjórnarinnar að skera þessar óskir um tekjur til sjóðsins niður um helming.

Það er augljóst hverjum manni, að Viðlagasjóður þarf mjög auknar tekjur, staða hans er slæm. Um áramótin var yfirdráttur sjóðsins í Seðlahankanum 786 millj. kr., og af þessum yfirdrætti reiknar Seðlabankinn að sjálfsögðu fulla vexti. — Það má auðvitað stilla fjárhagsdæmi Viðlagasjóðs þannig upp, að ekki þurfi meira en það, sem er farið fram á í frv. En þess ber að gæta, að mjög mikið af fjármagni sjóðsins er bundið í fasteignum hér uppi á landi, og þetta fjármagn þarf að sjálfsögðu að losa, þ.e.a.s. með því að selja margnefnd Viðlagasjóðshús, sem nokkrir og ég held flestir hv. þm., sem töluðu hér áðan, minntust á. Það vita allir, að þegar á að selja slíkar fasteignir, er dálítið undir því komið, á hvað góðum kjörum er hægt að selja hlutaðeigandi eignir. Það hefur komið fram hjá húsnæðismálastjórn, að hún geti ekki veitt venjuleg húsnæðismálalán til þessara húsa, enda eru þau nálægt 500, þannig að þarna yrði um 500 millj. kr. lánveitingu að ræða. En það hefur einnig komið fram sú skoðun hæstv. ráðh. Björns Jónssonar, að hann teldi húsnæðismálastjórn ekki hafa fé til þess að veita lán í þessi hús né til uppbyggingar í Vestmannaeyjum.

Eins og ég sagði áðan, hafa flestir hlutir gengið mjög vel og framar öllum vonum í Vestmannaeyjum til þessa, en það er skoðun mín, að einmitt núna sé aðalvandinn að byrja við að byggja upp bæinn og nú megi þess vegna alls ekki slá neitt af. Ef ekki kemur til fjármagn til að aðstoða við uppbyggingu í Eyjum, er ég hræddur um, að verr geti farið.

Það var reiknað út, hvort sem það var af sérfræðingum hjá stjórn Viðlagasjóðs eða Seðlabankanum, að vaxtagjöld sjóðsins væru til ársloka 1975 liðlega 300 millj. kr. með óbreyttum tekjum. Það gerir ekkert til, þó að hv. þm. fái að heyra það, að sama fjármagn og þó heldur minna þurfti til þess að hreinsa bæinn og grafa hann upp. Og ég hygg, að það skaði ekki heldur að geta þess í sambandi við þann fagnaðartón, sem hér heyrðist áðan, að um síðustu áramót höfðu Íslendingar greitt í sjóðinn frá sveitarfélögum, ríki og Atvinnuleysistryggingasjóði samtals 1157 millj. kr., en gjafir frá öðrum námu 1360 millj. kr., þ.e.a.s. gjafir frá öðrum hafa numið talsvert hærri upphæð en við Íslendingar höfum sjálfir lagt til þess að bæta úr þessum ósköpum.

Ég vil ekki, herra forseti, tefja þessar umr. neitt að ráði og mun þess vegna fara að stytta mitt mál, en ég vil leggja á það áherslu, að þeir menn, sem hæstv. Alþ. valdi til að stjórna þessum sjóði, sem skyldi stuðla að uppbyggingu í Vestmannaeyjum og bjarga því, sem bjargað varð, hafa lagt fram till. að fá 2% í söluskatti í tekjur handa sjóðnum, en vegna þessa samkomulags hefur þurft að fara niðum í 1%, sem þýðir það, að hv. stjórnarandstaða hefur lagst gegn till. stjórnar sjóðsins og tilmælum hæstv. forsrh. í þessu efni. Er leitt til þess að vita, að þ. á m. og líklega fremstur í flokki skuli vera hv. 1. þm. Sunnl. og þar með Vestmanneyinga. Það sést á því, sem hv. 1. þm. Sunnl. boðaði í sinni ræðu um flutning á frv. í sambandi við tolla af Viðlagasjóðshúsunum, að hann gerir sér það alveg ljóst, að þessar tekjur nægja ekki fyrir sjóðinn. Hið boðaða frv. felur nefnilega í sér um það bil 500 millj. kr. tekjuaukningu. Þetta er þess vegna frá hans sjónarmiði aðeins spurning um aðferðir.

Það er auðvitað hugsanlegt að flytja brtt, við þetta frv. En það gæti þá orðið til þess kannske að drepa málið alveg, þar sem mér heyrist, að allir hv. þm. standi að því að afgreiða málið á þennan hátt. En það var ómögulegt annað fyrir mig sem einn af stjórnarmönnum Viðlagasjóðs en að minna á nokkur atriði í þessum efnum. Og ég harma það, að hv. stjórnarandstaða undir forustu hv. 1. þm. Sunnl. og Vestmanneyinga skuli verða til þess að draga úr greiðslugetu og rýra lausafjárstöðu Viðlagasjóðs umfram það, sem áætlað var.