26.02.1974
Neðri deild: 67. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2351 í B-deild Alþingistíðinda. (2121)

240. mál, neyðarráðstafanir vegna jarðelda á Heimaey

Guðlaugur Gíslason:

Herra forseti. Mér þykir hlýða að fara nokkrum almennum orðum um þetta mál áður en það verður afgreitt hér út úr d.

Ég held, að það fari ekki milli mála, að þegar Alþingi stóð frammi fyrir þeim vanda, sem skapaðist, er eldgosið hófst í Vestmannaeyjum í byrjun síðasta árs, hafi menn mjög óttast, að um miklu stærra vandamál yrði að ræða heldur en sem betur fer kom síðar í ljós. Ég ætlaði að sjálfsögðu ekki að fara að rekja gang málsins hér, bann er öllum kunnur, en eins og á hefur verið bent, held ég, að allir, sem fylgst hafa náið með því, sem gerðist í Eyjum á árinu 1973, trúi því, að þarna hafi margt gerst, sem margir hafi kannske átt erfitt með að skilja, talið þar í sumum tilfellum, að hafi jafnvel verið um kraftaverk að ræða, eins og einn ágætur þm, komst hér að orði í gær.

Ég held, þegar til baka er litið, að örlagastund Vestmannaeyja hafi verið laugardaginn fyrir páska í fyrra, þegar svo stóð á, að allir vissu, sem í Eyjum voru, að einmitt það kvöld eða þá nótt mundi eitthvað verulegt ske. Þeir, sem þar voru, horfðu á það, að eldgígurinn var orðinn fullur af rennandi og fljótandi hraunleðju, og eftir öllum kenningum að dæma, jarðfræðinga og annarra, reiknuðu allir með því, að norðurhlið fjallsins mundi springa frá og hraunið þá flæða yfir bæinn og án efa fylla höfnina og jafnvel fara norður úr höfninni. Þetta var sú mynd, sem við öllum blasti þetta kvöld. En kl. 4 um nóttina skeði það óvænta, sem enginn hafði reiknað með, ég held hvorki fræðimenn né aðrir, að það varð suðurhlið fjallsins, sem lét undan, neðsti hluti fjallsins, og þar myndaðist nýtt op, sem hraunið rann út úr, rann stanslaust út úr í nokkrar vikur og það mikið magn, að ég held, að það þýði ekki að vera að reyna að segja neinum það, sem ekki horfir á það. Ég var þarna staddur, þegar hraunrennslið var þarna í hámarki, og maður getur vel líkt því við, þegar maður horfir af brúnni ofan í Þjórsá eða Ölfusá, hraunrennslið, sem þá fór fram úr fjallinu og niður í sjó. Hefði þetta farið eins og allir reiknuðu með, að mundi gerast, að þetta hefði farið norður úr gígnum, þá væri saga Vestmannaeyja öll í dag. En svo er forsjóninni fyrir að þakka,að það gerðist ekki, og nú er aftur að rísa þar blómleg byggð, og Alþingi sér fram á, að það muni verða kleift með nokkuð eðlilegum hætti að veita þá fjármuni, sem með þarf, til þess að þarna geti byggð aftur endanlega risið og byggðarlagið komist í samt lag og áður var.

Ég vil leyfa mér að þakka þá samstöðu, sem hér hefur verið á Alþingi um allar aðgerðir í sambandi við þetta mál. og vonast til. að það eigi eftir að sýna sig, að Vestmannaeyjar eigi eftir að verða í framtíðinni sú styrka stoð í þjóðfélaginu, sem allir eru sammála um, að þær hafi verið fram að þessu.