26.02.1974
Neðri deild: 67. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2355 í B-deild Alþingistíðinda. (2126)
152. mál, tollskrá o.fl.
Ingólfur Jónsson:
Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð. Þetta frv. dagaði uppi rétt fyrir jólin, vegna þess að Alþ. var ekki tilbúið að samþykkja 1% söluskattshækkun, sem hnýtt var aftan í það. Nú er boðað, að það þyki ekki taka því að leiða það mál til úrslita, það sé tekið aftur þangað til síðar, að beðið verður um meira. Hv. alþm. vita, hvað þetta meira er, það er 5% eða 6% söluskattur, sem hæstv. ríkisstj. samdi um við verkalýðsforustuna í sambandi við þá kerfisbreytingu, sem fyrirhuguð er á sköttum. Hæstv. ríkisstj. ætlar sér með kerfisbreytingunni að fá í ríkissjóð 3 700 millj. kr., en hún ætlar að gefa til baka 2 400 millj. kr., og af mildi sinni ætlar hún svo að gefa allt að 400 millj. kr. vegna hliðarráðstafana til þeirra, sem ekki hafa greitt tekjuskatt.
Tollskrárfrv. er út af fyrir sig góðra gjalda vert. Það er flutt vegna þess m.a. og kannske eingöngu vegna þess, að við erum skuldbundnir vegna EFTA-aðildar að lækka tolla í áföngum. Tollar voru lækkaðir um 30% árið 1970, m.a. vegna EFTA-aðildar. En ríkissjóður fær miklar tekjur og stöðugt auknar tekjur vegna verðbólgunnar, sem nú geisar í landinu.
Þegar fjárlagafrv. var lagt fram í haust, voru söluskattstekjur auðvitað á tekjuhlið frv. Þá var gert ráð fyrir, að hvert söluskattsstig gæfi 550 millj. kr. Þegar komið var fram í desember, var talið alveg öruggt, að hvert söluskattsstig gæfi 600 millj. kr., því að söluskatturinn gefur meira í ríkissjóð eftir því sem verðlag á vörum og þjónustu hækkar, og nú fyrir stuttu hefur verið reiknað út í reikningsstofnun, að hvert söluskattsstig gefi 728 millj. kr. Er þá miðað við verðlagið, eins og það verður 1. mars n.k. Á miðju ári verður það vitanlega miklu meira en 728 millj., það gæti orðið 800 millj. Hvað það gefur að meðaltali á árinu, er þess vegna ekki gott að fullyrða um, en talið hefur verið eðlilegt að áætla 750 millj. kr. Með þessu móti hækka tekjur ríkissjóðs. Í fjárlögum er reiknað með, að ríkissjóður fái í tekjur af söluskatti á árinu 1974 6 702 millj. kr. Þá var reiknað með að söluskattsstigið gæfi 600 millj. Sé hins vegar reiknað með, að söluskattsstigið gefi 730 millj., verða tekjur ríkissjóðs af söluskatti 8157 millj. Mismunurinn er 1455 millj. á þessum eina lið, sem ríkissjóður fær umfram það, sem reiknað er með í fjárlögunum.
Ég tel ástæðu til að benda á þetta í dag, vegna þess að innan skamms er boðuð mikil gjaldheimta á allan landslýð af hendi ríkisstj. og ég bendi á, að þetta er aðeins á þessum eina lið. Aðrar tekjur ríkissjóðs aukast einnig mjög mikið vegna verðbólgunnar og þá fyrst og fremst tolltekjurnar, innflutningstollar, sem geta hækkað vegna verðbólgunnar um milljarða umfram það, sem áætlað er í fjárlögunum. Þá mun tekjuskatturinn einnig verða miklu meiri en áætlað var. Má þess vegna segja, að þótt almenningur tapi á verðbólgunni, þá hagnist ríkissjóður.
Ég ætla ekki að hafa þessi orð öllu fleiri, en tel ástæðu til, þegar þetta mál er rætt, að vekja athygli á þessu. Það er ástæða til að gera upp á sem raunhæfastan hátt þá tekjuaukningu, sem ríkissjóður mun fá vegna aukinnar verðbólgu umfram það, sem áætlað er í fjárlögunum. Ef það verður reiknað nákvæmlega út, má vera, að hv. Alþ. verði sammála um, að það sé óþarft að leggja á viðbótarsöluskatt, þótt eitthvað verði gefið eftir af tekjuskatti, eins og um hefur verið talað. Mætti segja, ef hætt væri við að leggja söluskatt á, eins og talað hefur verið um, eftir að sú athugun hefur farið fram, sem ég nú minntist á, að þá mundi almenningur ekki tapa eins mikið og útlit er fyrir vegna verðbólgunnar, en ríkissjóður gæti eigi að síður haldið fullu jafnvægi.