26.02.1974
Neðri deild: 69. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2358 í B-deild Alþingistíðinda. (2138)

152. mál, tollskrá o.fl.

Frsm. meiri hl. (Vilhjálmur Hjálmarsson):

Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð. Ég vil segja það út af till. hv. 9. landsk. þm., að þetta atriði, eins og raunar mörg fleiri, sem ekki eru tekin upp í till. fjh: og viðskn., var rætt í n., en n. varð ekki ásátt um að taka upp brtt. um það. Þar sem mér virðist, að sú tollabreyting, sem till. hans fjallar um, rúmist ekki innan þess ramma, sem þetta frv. var upphaflega sniðið eftir og þær brtt. einnig, sem hér hafa verið samþ. inn í það, legg ég til, að till. verði felld.