26.02.1974
Sameinað þing: 60. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2361 í B-deild Alþingistíðinda. (2150)

Umræður utan dagskrár

Forseti (Eysteinn Jónsson):

Vegna þess, hve aðþrengt er, vil ég mjög eindregið biðja um samvinnu hv. þm. enn einu sinni um það, að hafa þessar umr. mjög í þeim stíl. sem fyrirspurnaumr. eru. Veit ég, að menn sjá í hvert óefni er að stefna með umr. utan dagskrár, og vona ég, að hv. þm. séu samvinnufúsir um þessi efni.