26.02.1974
Sameinað þing: 60. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2370 í B-deild Alþingistíðinda. (2161)
Umræður utan dagskrár
Sjútvrh. (Lúðvík Jósepsson):
Herra forseti. Hv. síðasti ræðumaður sagði, að ég hefði unnið að því að sverta Noreg. Mér er ekki kunnugt um, hvað hann hefur átt við með því, nema þetta slettist úr klaufunum hjá honum hér, en ég efast um, að hann hafi haft mikið á bak við sig, þegar hann sagði þetta. En sem sagt, þetta orðalag var notað af hv. þm. í sambandi við upplýsingar, sem komu fram um það og hafa birst í íslenska útvarpinu, að íslenskir námsmenn í Noregi hefðu verið til sérstakrar athugunar þar í landi í sambandi við NATO-heræfingar, sem nokkurs konar 5. herdeild þar í landi. Ef sagt er frá því hér á Alþ., að þessi frétt hafi komið í íslenska útvarpinu, þá heitir það á máli þessa hv. þm., að sá þm. sé að sverta Noreg. Ekki vantar nú rökhyggjuna þarna megin. En hitt er öllu nær að tala um, að það sé verið að sverta íslenska námsmenn, sem eru í Noregi, með því að beina slíku að þeim. En þeim þm. Sjálfstfl., sem hér tala nú, stendur sýnilega nær að verja allar aðgerðir NATO heldur en verja sína eigin landsmenn, eins og íslenska námsmenn í Noregi.
En það, sem hér hefur aðallega verið til umr., er,að hafður hefur verið á alveg sérstakur háttur í sambandi við ákveðnar undirskriftir, sem átt hafa sér stað hér í landi að undanförnu. Það vita allir, að undirskriftir hafa oft átt sér stað áður, það er ekkert nýtt, og út af fyrir sig gátu þessar undirskriftir, sem nú fóru fram, farið fram á svipaðan hátt og áður. En það, sem nú gerðist, er, að það var farið að vinna upp úr þessum undirskriftum með nokkuð sérstökum hætti, — á þann hátt, sem óumdeilanlega varðar við lög í öðrum löndum, — á þann hátt, að alveg augljóst er, að verið er að stefna að persónunjósnum. Það er verið að byggja upp ákveðið kerfi í sambandi við persónunjósnir. Þeir, sem reyna að réttlæta þessar aðgerðir, segja, að hér hafi aðeins verið unnið á samviskusamlegan hátt að því að kanna, að ekki væri um tví- eða margritun að ræða. Ef þetta er svona, að það er ekki meira á bak við, hvers vegna má þá ekki, þegar þessu verki er lokið, eyðileggja gögnin? Af hverju á þá að geyma allar spjaldskrárnar? Af hverju á þá að nota þær persónulegu upplýsingar, sem þarna eru fengnar? Hvað er það, sem gerir, að menn vilja halda í þær? Það er spurning, sem ekki hefur verið svarað hér enn þá. Og það þarf vitanlega að svara þessari spurningu, því að það er alvarlegt mál, þegar það gerist, að menn fara að byggja upp persónunjósnir af þessu tagi„ sem hér er unnið að.