27.02.1974
Efri deild: 65. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2376 í B-deild Alþingistíðinda. (2172)

239. mál, gjaldmiðill Íslands

Sjútvrh. (Lúðvík Jósepsson):

Herra forseti. Með frv. þessu er gert ráð fyrir því, að veitt verði heimild til þess að fella niður í rauninni myntsláttu á 10-eyringum og 50 aura peningum. Hefur komið fram, að það er skoðun Seðlabankans, að það sé orðið mjög tímabært að taka ákvörðun um þessi efni, þar sem þessar mynteiningar séu orðnar minni hér hjá okkur að verðmæti en minnstu mynteiningar í flestum löndum í kringum okkur, og veldur auðvitað aukinni vinnu og auknum kostnaði á marga vegu að vera að halda í þessar mynteiningar, úr því sem komið er.

Um þessi mál hefur verið rætt hér oft áður og hliðstæð frv. legið hér fyrir, svo að ég sé ekki ástæðu til að hafa um þetta mörg orð.

Það er skoðun mín, að það eigi að verða við þessari beiðni og hér sé stefnt í rétta átt. Þó að við höldum okkur við það, að minnsta mynteining okkar sé ein króna, sýnist mér, að við séum ekki að ganga of langt á neinn hátt og það eigi ekki að valda okkur erfiðleikum á neinu sviði.

Ég vil vænta þess, að það sé hægt að afgreiða þetta mál, án þess að farið sé að blanda inn í það í rauninni miklu stærra máli, þar sem uppi hafa verið stundum hugmyndir um það að gera miklu meiri og stærri breytingar á okkar verðmæli.

Herra forseti. Ég legg til. að þessu frv. verði vísað til hv. fjh.- og viðskn. til fyrirgreiðslu.