28.02.1974
Sameinað þing: 62. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2417 í B-deild Alþingistíðinda. (2221)

409. mál, björgunarstarfsemi varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli

Fyrirspyrjandi (Stefán Gunnlaugsson):

Herra fremst fjárhagslegs eðlis, og ef hafa ætti samshefur komið í ræðu hæstv. utanrrh., að það björgunar- og slysavarnastarf, sem björgunarsveit varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli hefur unnið, virðist vera allmikilvægt. Ef niðurstaðan verður sú, að varnarliðið verði látið fara af landi brott með alla sína starfsemi, þá sýnist í fljótu bragði a.m.k. augljóst, að grípa verður til sérstakra ráðstafana til að fylla upp í það skarð, sem yrði eftir hvað þessa björgunarstarfsemi áhrærir. Í því efni kemur náttúrlega ýmislegt til greina, eins og t.d. að stórefla Slysavarnafélag Íslands til að sinna þessum málum betur en það hefur til þessa haft aðstöðu til. Það eru sjálfsagt ýmsar aðrar leiðir, sem þar kæmu til álita. En sé það ásetningur hv. stjórnarliða að framfylgja þeirri kröfu Alþb: manna að láta herinn fara með allt sitt hafurtask og alla sína starfsemi, áður en langt um líður, þarf að taka til höndunum tafarlaust, til þess að þessi mál komist ekki í vandræði, þegar að því kæmi.