28.02.1974
Sameinað þing: 62. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2421 í B-deild Alþingistíðinda. (2229)

414. mál, ríkisjarðir

Fyrirspyrjandi (Pálmi Jónsson):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir svör hans. Það er rétt, sem fram kom í svari hans, að fyrir ári var lögð fram hér á Alþingi fsp. svipaðs efnis, en ekki þó eins, nema að því leyti er snertir fyrstu tvo tölul. þessarar fsp. Þeir voru hins vegar hafðir með í minni fsp. sem nauðsynleg forsenda þess, að unnt væri að skýra greinilega frá því, sem spurt er um í hinum þriðja lið, og hann er vitaskuld meginatriði þeirrar fsp., sem ég hef hér lagt fram.

Ég tek það fram, að ég tel það algerlega fullnægjandi hjá hæstv. ráðh., að hann gefur mér svör við þeim lið skriflega, enda þótt hann hafi drepið á nokkra grófa drætti, er snerta svar við þeim lið. Það kemur í ljós, að 193 jarðir ríkisins eru ekki í fastri ábúð samkv. ábúðarlögum, og eins og ég tók fram í minni fyrri ræðu, getur það allt verið með eðlilegum hætti, og skal ég ekki um það segja, fyrr en ég hef fengið í hendur hina skriflegu skýrslu hæstv. ráðh. Að öðru leyti ætla ég ekki að ræða þetta efni hér. Ég vil einungis þakka hæstv. ráðh. og vænti þess að fá hina skriflegu skýrslu hans í mínar hendur.