31.10.1973
Neðri deild: 10. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 293 í B-deild Alþingistíðinda. (225)
3. mál, Þjóðhagsstofnun og Framkvæmdastofnun ríkisins
Matthías Bjarnason:
Herra forseti. Ég hafði hugsað mér að taka til máls fyrr í þessum umræðum, en eftir að hv. 7. þm. Reykv. og hv. 5. þm. Norðurl. e, höfðu talað, féll ég frá orðinu. En út af orðum, sem hér hafa átt sér stað síðan, sérstaklega frá hv. 8. landsk. þm., gat ég ekki lengur staðist freistinguna að koma hér í ræðustólinn, því að hann vitnaði hér í okkur fulltrúa Sjálfstfl. í stjórn Framkvæmdastofnunar ríkisins á þann veg, að við hefðum aldrei gert neinar athugasemdir við þann kostnað, sem væri af rekstri þessarar stofnunar, og lét að því liggja, að við værum í raun og sannleika ánægðir með allan þennan rekstur í einu og öllu. Það er tvennt ólíkt, hvort menn eru ánægðir með eitthvað eða hvort þeir tönnlast á því á hverjum stjórnarfundi. Ég hygg, að ég megi mæla bæði fyrir mig og Magnús Jónsson, þegar ég segi, að við vorum báðir þeirrar skoðunar, að þegar þessi lög um Framkvæmdastofnun ríkisins tóku gildi, hafi verið hagkvæmara að láta afgreiðslu mála vera á þeim stöðum, þar sem hún var fyrir, — þá á ég við Framkvæmdasjóð í Seðlabankanum og Atvinnujöfnunarsjóð, sem nú heitir Byggðasjóður og var til húsa í Landsbanka Íslands á Laugavegi 77, — við vorum þeirrar skoðunar, að hér væri verið að fara út í dýrari rekstur með því að setja þetta allt á eina stóra og mikla skrifstofu, og ég sný ekki frá því. Ég tel, að þessar stofnanir, sem áður gegndu sama hlutverki og Framkvæmdastofnunin, hafi notið alveg sérstakra vildarkjara hjá Seðlabanka og Landsbanka, þ. e. a. s. Framkvæmdasjóður og Atvinnujöfnunarsjóður. — Hitt er svo annað mál, að menn telja ekki þörf á að rífast um það vikum, mánuðum og jafnvel árum saman, að slík breyting skuli hafa verið gerð, og það er í sjálfu sér litið skemmtilegt hlutverk að sitja í stjórn jafnviðamikillar stofnunar og þessi stofnun er og vera alltaf að rífast um sama hlutinn, sem búið er að framkvæma. Ég vildi aðeins, að þetta kæmi fram, að það lýsir ekki og sannar ekki á nokkurn hátt, að við þessir tveir stjórnarmenn höfum verið ánægðir með þessa breytingu.
Hv. 7. þm. Reykv. lét orð falla á þá leið, að lokinni ræðu hæstv. forsrh., að Alþfl. hefði haft frumkvæði að því, að frv. um Framkvæmdastofnun ríkisins hefði verið breytt á þann veg, að hagrannsóknadeildin var gerð að sjálfstæðum aðila samkv. 6. gr. laganna. Það kemur mér og raunar engum á óvart, þegar talsmenn Alþfl. telja sig eiginlega alltaf eiga öll mál, sem eitthvað horfa til bóta, og er þetta að verða skemmtilegur þáttur í ræðum flokksmanna Alþfl., að eiga allt, sem betur hefur farið í þjóðfélaginu. Það er í raun og veru ljótt, eins og málefnum og högum þess flokks er komið, að vera að hryggja þessa forustumenn með því að segja, að þetta sé ekki alls kostar rétt allt saman. En ég verð, þótt mér þyki leitt að hryggja þessa ágætu menn, bæði 7. þm. Reykv. og hv. 8. landsk. þm., að segja þeim, að þegar núv. ríkisstj. lagði fram frv. um Framkvæmdastofnun ríkisins, þá mætti það harðri andstöðu Sjálfstfl., þó ekki að öllu leyti. Sjálfstfl. viðurkenndi eðlilega það, sem áður hafði verið gert í þessum efnum, bæði með stofnun og starfsemi Efnahagsstofnunarinnar, sem var framkvæmd með ágætum vilja Alþfl., og núv. varaform. Alþfl. er nú farinn að tala illa um, því að það er búið að leggja hana niður sem slíka, og sömuleiðis með stofnun Atvinnujöfnunarsjóðs, sem er ekkert annað en það, sem Byggðasjóður nú er.
Skoðun okkar var sú, að það þyrfti að mörgu leyti að efla áætlunarstarfsemi, og Sjálfstfl. er ekki fjær áætlanagerð en það, að hann beitti sér ásamt Alþfl., — ég lofa Alþfl. auðvitað að vera með, því að ekki má maður gleyma því, fyrir því, að Efnahagsstofnunin var sett á fót með það fyrir augum að taka upp skipulegri vinnubrögð við áætlanagerð og við framkvæmdir. En þegar menn tala um áætlanagerð, hvar sem þeir eru í flokki, verða þeir að taka áætlanagerð með nokkurri varúð. Það er ekki nóg að hafa tugi manna við áætlanagerð í þjóðfélaginu við þetta og hitt. Það verður að hugsa um það jafnhliða að framkvæma áætlanir, sem verið er að gera, þær verði ekki orðnar svo gamlar, þegar röðin kemur að þeim og fjármagn til að framkvæma þær hefur verið útvegað, að þær verði ekki orðnar svo úreltar, að það þurfi að setjast aftur niður til þess að semja nýja áætlanagerð, vegna þess að sú fyrri er orðin úrelt, vegna þess að hún þurfti að bíða svo lengi eftir fjármagni. Þetta held ég að hver maður og hver stjórnmálaflokkur verði að gera sér ljóst.
Framkvæmdastofnunin átti að vera stórt og mikið bákn í þjóðfélaginu frá hendi núv. hæstv. ríkisstjórnar. Við bentum á það, stjórnarandstöðuflokkarnir háðir — þeir eru víst orðnir þrír núna, þá voru þeir tveir, — að það næði ekki nokkurri átt að setja hagrannsóknastarfsemi undir pólitíska stjórn, hún ætti eðlilega að vera eins óháð og hægt er. Við vildum ganga lengra, þegar við ræddum þetta mál í fjhn. Nd., og þó að hv. 7. þm. Reykv. hafi sagt, að hann og Alþfl. hafi átt allt frumkvæði að því, — hann var ekki í salnum, þegar ég nefndi þetta áðan, en ég sé að hann er nú kominn í salinn, — þá vil ég nú minna hann á, að það stóð ekki á sjálfst.mönnum, og þeir höfðu orð á því alveg til jafns við hann, að það næði ekki nokkurri átt að ganga þannig frá þessu frv. Það var gert hlé á störfum nefndanna tvo fundi í röð, á meðan verið var að ná samkomulagi við ríkisstj. um breytingu í þessa átt. Við vildum þá ganga lengra, við vildum ganga nokkurn veginn eins langt og hæstv. forsrh. gengur nú, að gera hagrannsóknastofnunina algjörlega sjálfstæða, en hann þurfti þennan tíma til að átta sig. Menn eru auðvitað misjafnlega fljótir að að átta sig, og er ekkert við því að segja.
Ég tel fyrir mitt leyti, að þetta frv. gangi mjög í þá átt, sem við lögðum þá til. og í meginatriðum er ég fyrir mitt leyti sammála þessu frv. Auðvitað koma kannske til greina smábreytingar á því, sem verður að skoða í nefnd, en í heild tel ég, að við getum verið sammála hæstv. forsrh. í því, sem hann sagði um þetta atriði hér áðan.
En það er eitt að lokum, sem ég vil gera nokkuð að umræðuefni, eftir að hafa hlustað á jafnsterka talsmenn þessarar stofnunar og hv. 8. landsk. þm., því að hann gekk lengra en sjálft stjórnarliðið í að vegsama það fyrirkomulag, sem nú er ríkjandi, en ég tel, að þeirri starfsemi, sem þar á sér stað, sé að mörgu leyti þröngur stakkur sniðinn, því að ákveðnir ráðh. í núv. ríkisstjórn taka ekki nema mjög takmarkað tillit til þessarar stofnunar og starfsemi hennar. Er ekki víða verið að vinna sama verkið eða hliðstætt verkefni? Þarf ekki að kippa þessu í lag? Ég held, að það þurfi að samræma betur þessi vinnubrögð heldur en gert hefur verið. Og svo hitt, þó að við viljum fá áætlun um allt mögulegt, þá verður líka að fylgjast að nokkurn veginn áætlun um, hvernig eigi að afla fjár til hlutanna, og það eru líka takmörk fyrir því sett, svo sem áður hefur verið oft minnst á, og ráðamenn í þessu þjóðfélagi þurfa að hægja svolítið á sér á sprettinum. Það sjá allir menn, að það er kapphlaup í þessu þjóðfélagi. Það verður að draga úr þeirri spennu, sem er ríkjandi, en það verður ekki gert með því að bæta fleiri og fleiri við áætlanagerð í hinum ýmsu stofnunum. Það verður að taka upp skipulegri vinnubrögð en nú eiga sér stað. Það er ekki nóg að tala um að setja á laggirnar stofnanir til að taka upp skipuleg vinnubrögð, ef þeim er það þröngur stakkur sniðinn, að þær geti engan veginn fengið að ráða ferðinni, og ef gripið er fram fyrir hendurnar á þeim í tíma og ótíma af þeim mönnum, sem sjálfir hafa lagt á það höfuðáherslu að koma þessari stofnun upp með því sniði, sem hún nú starfar.