04.03.1974
Neðri deild: 72. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2444 í B-deild Alþingistíðinda. (2255)
207. mál, verðtrygging fjárskuldbindinga
Bjarni Guðnason:
Herra forseti. Á öllum málum eru til tvær hliðar, og eins er það um þetta mál. sem hér liggur nú fyrir til umr. Hv. flm., Ellert B. Schram, hefur lagt til að verðtryggja fjárskuldbindingar, sem lúta að kaupsamningum um íbúðir í smíðum, en eins og hann gerði rækilega grein fyrir, er bannað með l. frá 1966 að setja vísitöluákvæði inn í samninga. Mér finnst gæta nokkuð hjá hv. flm., að hann gerir sér ekki alveg nægilega grein fyrir því, hvernig húsamarkaðurinn er í raun og veru, byggingarmarkaðurinn. Í grg. nefnir hann sem röksemd fyrir þessari verðbindingu, að á tímum mikillar verðbólgu skerði þetta bann samningsfrelsi manna. Samningsfrelsið á íbúðamarkaðinum er í raun og veru ákaflega lítið. Framboðið er miklu minna en eftirspurnin, og ástandið er þannig, eins og margir hv. þm. vita, að kaupendur kaupa eiginlega hvað sem í boði er. Og það tíðkast jafnvel. þótt ótrúlegt sé, en satt, að menn greiða fé fyrir fram fyrir húsnæði, sem þeir hafa ekki séð. Það er alkunnugt, að stór þáttur í byggingariðnaðinum er að reisa íbúðir fyrir fé kaupandans, áður en hann hefur í raun og veru séð húsnæðið. M.ö.o.: samningsfrelsi í þeim skilningi, að kaupandi geti valið úr mörgum íbúðum og jafnvægi sé yfir markaðnum, er ekki til að dreifa. Hér er sú aðstaða á íbúðamarkaðnum, að það liggur við algerri upplausn. Ég tel því mjög vafasamt, að gera kaupendum skylt að greiða vísitölubætur við kaupsamning fyrir íbúðir, vegna þess að það er í raun og veru verðtrygging gróðans. Seljandinn á við þær markaðsaðstæður, sem ríkja núna, nánast alls kostar við kaupandann, og gætu af þessu sprottið ýmsir undarlegir verslunarhættir. Byggingarvísitalan vex svo óðfluga, að ekki munu vera önnur dæmi um það í þjóðfélaginu. Mér var sagt t.d., að sala íbúða eða verð íbúða hefði hækkað um 40–50% á s.l. ári, og það mundi fela í sér, að það væri engin leið fyrir kaupandann að gera sér grein fyrir verði þeirrar íbúðar, sem hann er að kaupa. Og seljandanum væri beinlínis hagur í því að draga að afhenda íbúðina um nokkurt skeið til þess að geta bætt við verðið byggingarvísitölu, því að hér er um stórar upphæðir að ræða.
Með þessu frv. er í raun og veru fyrst og fremst verið að tryggja hag seljandans, svo sem væri fullkomlega eðlilegt við eðlilegar markaðsaðstæður. En við þær aðstæður, sem ríkja á íbúðamarkaðnum, tel ég, að staða kaupandans verði með þeim hætti, að ekki sé skynsamlegt að verðbinda kaupsamninga fyrir íbúðir í smíðum. Ég vil líka benda á eitt atriði, sem skiptir nokkru máli. Undirstaðan til þess að verðtryggja svona kaupsamninga hlýtur að sjálfsögðu að vera fyrir kaupandann, að hann fái lán, sem hækkar jafnhliða byggingarvísitölunni. Það er ekki hægt að bjóða neytanda, að húsnæðismálastjórnarlánið fylgi ekki byggingarvísitölu, en svo á neytandinn að tryggja seljandanum greiðslu í samræmi við byggingarvísitöluna. Ég held, að allir hljóti að sjá, að þetta er ekki gerlegt við þær aðstæður, sem ríkja á íbúðamarkaðnum.
Eins og hv. flm. minntist á, er bannað bókstaflega með 1. frá 1966 að setja vísitöluákvæði í kaupsamninga fyrir íbúðir í smíðum. Samt hefur þetta verið gert. Og margir kaupendur hafa orðið fyrir barðinu á þessu og ekki áttað sig á, hvað um hafi verið að ræða. En það virðist svo sem yfirvöld hafi látið þetta afskiptalaust, þó að það stangist á við gildandi lög, og það er í sjálfu sér mjög alvarlega. Hins vegar virðast þessir kaupendur ekki hafa átt auðvelt með að ná rétti sínum þrátt fyrir núgildandi lög.
Ég skal ekki hafa fleiri orð um þetta, en ég vil benda á það að lokum, að ég tel, að ef þetta frv. verði að lögum, sé kaupandinn nánast ofurseldur seljandanum sökum þess, hvernig aðstæðurnar eru á húsnæðismarkaðinum. Ég tel því ekki eðlilegan grundvöll, eins og sakir standa, að breyta því lagaákvæði, sem fyrir er um þetta atríði, og tel jafnframt skylt fyrir yfirvöldin og ríkisstjórn og sérstaklega hæstv. félmrh. að sjá til þess, að núgildandi lögum sé hlýtt, þannig að ekki séu sett vísitöluákvæði inn í kaupsamninga fyrir íbúðir í smíðum.