04.03.1974
Neðri deild: 72. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2449 í B-deild Alþingistíðinda. (2259)

232. mál, Stofnlánadeild landbúnaðarins

Friðjón Þórðarson:

Herra forseti. Hv. frsm., 1. flm. þessa frv., hefur gert glögga grein fyrir málinu, og þarf ég raunar sáralitlu við það að bæta. Hann gat þess, að hin sérstöku framlög til íbúðarhúsabygginga og endurbyggingar íbúðarhúsa í sveitum hefðu verið tekin í lög 1957. Var þá styrkur þessi 25 þús. kr. Síðan hefur hann verið hækkaður smátt og smátt með vaxandi dýrtíð og verðbólgu og nam samkv. l. frá 1971, um Stofnlánadeild landbúnaðarins o.fl., 120 þús. kr. Í því frv., sem við flytjum nú þrír sjálfstæðismenn, er gert ráð fyrir því, að styrkur þessi hækki í 200 þús. kr. og fylgi þar með nokkurn veginn, þó ekki alveg, þeim verðbreytingum, sem orðið hafa, síðan fjárhæðin var síðast ákveðin.

En það er dálítið táknrænt, að í sama mund og talað er fyrir þessu frv. er dreift á borð hv. alþm. stjfrv. til l. um breyt. á l. um Stofnlánadeild landbúnaðarins o.fl. og virðist því slegið föstu þar, í 3. gr., í eitt skipti fyrir öll, að umræddur styrkur skuli aldrei komast yfir 120 þús. kr. Það er rétt að vekja alveg sérstaka athygli á því, að hingað til eða allt frá árinu 1957 hefur verið fylgt nokkurn veginn sambærilegri þróunarstefnu í þessum málum, en í því frv., sem hæstv. ríkisstj. leggur fram í dag, er vikið þvert úr þeirri leið. Það er algerlega breytt stefna, sem segir, að héðan í frá skuli þetta hámark sett, sem ég áðan nefndi. Að vísu er það svo, þegar maður lítur lauslega yfir þetta frv. hæstv. ríkisstj., að þá er eins og það sé flutt til samræmis við annað, sem búið sé að gera og ákveða,en þegar það er skoðað nánar, er þar um eintómar tilvitnanir að ræða í frv., sem aðeins eru á umræðustigi og ekki orðin að lögum. Þetta er alveg í samræmi við meginstefnu hæstv. ríkisstj. í þessum málum, sem hún markaði, þegar hún ákvað að láta endurskoða lög um jarðir, Landnám ríkisins, Stofnlánadeild o.fl. Þá var það sett og haft að höfuðmarkmiði að tæta Landnám ríkisins í sundur og dreifa verkefnum þess í allar áttir án þess að láta svo mikið sem rannsaka eða reyna að komast til botns í því, hvort slík skipulagsbreyting leiddi til nokkurs sparnaðar eða aukinna þrifa í þjóðfélaginu. Ég tel þetta dálítið táknræn vinnubrögð á 1100 ára afmæli Íslandsbyggðar, ef það á að vera haft að höfuðmarkmiði og yfirskrift í landbúnaðarmálum þjóðarinnar, að Landnám ríkisins skuli lagt í rústir. Þess vegna tel ég fyllstu ástæðu til að styðja að því máli, sem hér hefur verið rakið nokkuð, og reyna að koma þessari sanngjörnu breytingu fram, að styrkir til íbúðarhúsabygginga utan þéttbýlis hækki með vaxandi dýrtíð og verðbólgu til samræmis við það, sem gerst hefur á undanförnum árum.