31.10.1973
Neðri deild: 10. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 295 í B-deild Alþingistíðinda. (226)
3. mál, Þjóðhagsstofnun og Framkvæmdastofnun ríkisins
Forsrh. (Ólafur Jóhannesson):
Herra forseti. Ég vil leyfa mér að þakka hv. 7. þm. Reykv. og reyndar öðrum ræðumönnum, sem hér hafa talað, fyrir það, hve vel þeir hafa tekið þessu frv. út af fyrir sig. Mér sýnist, að það komi fram, í þeim umr., að þeir séu sammála um það, þó að þá greini á um sitthvað, að svona, einmitt svona, hefðu þeir viljað hafa þetta í öndverðu. Þá geri ég ráð fyrir, að allir geti orðið ásáttir um að breyta því í þessa átt, sem hér er gert ráð fyrir, enda komu ekki fram andstæð sjónarmíð. Þó að það kæmu svo í leiðinni frá einstökum þm. ýmsar athugasemdir varðandi Framkvæmdastofnunina, þá tek ég þær athugasemdir ekki mjög hátíðlega. Mér fannst þær minna svolítið á eftirbreytur af umræðunum, sem fram fóru um Framkvæmdastofnunina hér á sínum tíma.
Ég þarf ekki að eyða hér tíma í að útskýra það, hvað sé eftir af Framkvæmdastofnuninni. Hv. þm. Benedikt Gröndal hefur þar tekið af mér ómakið. Það eru sem sagt tvær höfuðdeildir, lánadeild og áætlanadeild. Og auðvitað var það alltaf svo, að í Framkvæmdastofnuninni var eitt höfuðatriðið það að koma upp áætlunum og færa það starf allt í fastara form en það hafði verið. Það hefur reyndar líka sýnt sig á stuttum starfstíma Framkvæmdastofnunarinnar, að það hefur ekki staðið á verkefnum henni til handa á því sviði. Hv. alþm. hafa m. a. verið ósparir á að gera samþykktir, þar sem þeir hafa falið Framkvæmdastofnuninni að gera áætlanir um þetta eða hitt. Ég held, að það fari ekki langt frá hinu rétta, þó að ég segi, að það hafi a. m. k. verið samþ. einar sex eða sjö ályktanir hér á hv. Alþingi um byggðaáætlanir, þar sem því hefur verið beint til Framkvæmdastofnunarinnar að gera þær. Og Framkvæmdastofnunin, áætlanadeildin, hefur verið og er að vinna að þessum verkefnum. En þrátt fyrir það, að mönnum þyki kostnaður við þessar deildir hafa farið vaxandi, þá er það svo, að hæfir starfskraftar, sem þær hafa yfir að ráða, eru of takmarkaðir, til þess að þær geti sinnt þessum verkefnum með þeim hraða, sem óskað er eftir, t. d. byggðarlögin óska eftir og bíða eftir. Ég er ekki í nokkrum vafa um það, að þessar áætlanir, sem Framkvæmdastofnunin eða áætlanadeildin vinnur að, eiga eftir að verða mjög mikilvægar, og ég held, að þeir starfshættir, sem hafa tíðkast við þessar áætlanagerðir, séu eðlilegir og heilbrigðir. Það hefur ekki bara verið skrifstofuvinna hér í Reykjavík, heldur hafa bæði starfsmenn stofnunarinnar og framkvæmdastjórarnir til skiptis farið út um landið og í hina einstöku landshluta, þar sem þegar hefur verið áætlað um, og heimsótt þessa landshluta við mikla ánægju, er mér óhætt að segja, allra heimamanna, sem hafa tekið því fegins hendi að fá að skýra út fyrir þeim vandamál sín. Þetta er mjög stórt verkefni, sem áætlanadeildin hefur, og þarf vissulega ekki að vera neitt að spyrja um það, hvað sé eiginlega eftir af Framkvæmdastofnuninni, þó að hagrannsóknadeildin sé tekin þar frá.
Um lánadeildina hélt ég, að mönnum væri líka kunnugt, og ég hélt satt að segja, að margir hv. þm. hefðu góða sögu að segja af viðskiptum sínum við lánadeildina, Byggðasjóð m. a., því að það eru ekki svo fá verkefnin, sem þeir hafa leitað með til þessarar stofnunar og fengið úrlausn, eftir því sem kostur hefur verið. Og það er áreiðanlegt, að fólk víða úti um land, alveg sama hvaða pólitískum flokki kjördæmið tilheyrir, kann að meta þessa starfsemi Framkvæmdastofnunarinnar.
Það er enn verið að tala um, að það hafi verið settir þarna pólitískir framkvæmdastjórar. Ég skal ekki fara að elta ólar við það, en yfir er stjórn sjö manna, skipuð fulltrúum allra flokka, sem geta fylgst með, og ég verð að segja það, að ég, sem fæ fundargerðir af þeim stjórnarfundum, fæ ekki séð, að það beri mikið á því, að þar séu mál afgreidd með ágreiningi, þó að auðvitað komi slíkt fyrir. Ég hefði líka gaman af að heyra nefnd dæmi um það, að framkvæmdastjórarnir hefðu í sinni tillögugerð beitt pólitískri misnotkun. Ég efast um, að það sé nokkur hér á hv. Alþingi, sem verður til þess að bera þeim það á brýn. Ég hygg, að þessar raddir séu þagnaðar að mestu, og þær ættu að þagna alveg.
Viðvíkjandi því, sem minnst var á hér, að fjárfestingarstjórnin væri of veik, þá vil ég segja það, að því var marglýst yfir af mér, þegar ég mælti fyrir þessu frv., að það væri ekki meiningin með því að vera að innleiða hér nokkra sérstaka fjárfestingarstjórn, neinar fjárfestingarhömlur. Það var alveg sama, hvað oft ég sagði þetta, andstæðingarnir stóðu upp og sögðu alltaf: Jú, það á að innleiða hér fjárfestingarhöft og fjárfestingarhömlur. Það er ekkert í lögunum um það. Það segir í l., að Framkvæmdastofnunin fari með stjórn fjárfestingarmála, eftir því sem fyrir er mælt í l. þessum, og þar er tekið fram hvernig fjárfestingarstjórninni er háttað, og Framkvæmdastofnunin hefur aðeins heimild til þess að setja almennar reglur um að banna tilteknar framkvæmdir um sinn eftir almennum reglum. Að öðru leyti hefur hún fjárfestingarstjórn á hendi með því að leita samkomulags við banka og samræma útlánastefnuna. Það er engri valdboðsstefnu fylgt þar, heldur einmitt gert ráð fyrir því, að árangri sé náð með samkomulagi þessara stofnana, sem um er að ræða. Svona er þetta í reyndinni, í veruleikanum. Hitt geta menn svo deilt um, hvort þetta sé rétt eða ekki, hvort það eigi ekki að veita þessari stofnun meiri völd. En eftir l. hefur hún ekki nema mjög takmörkuð völd í þessu efni, og miðað við þann málflutning, sem uppi var hafður á sínum tíma af hv. stjórnarandstæðingum, þá ættu þeir út af fyrir sig ekki að vera óánægðir með, að reynslan hefur staðfest það, sem sagt var, að ekki ætti að taka upp nein fjárfestingarhöft eða önnur höft með þessari stofnun.
Viðvíkjandi því, sem hér var sagt um einstakar áætlanir, þá þarf ég ekki að fara út í það, eins og togarakaupin. Það er sjálfgert, að þau voru að talsverðu leyti a. m. k. um garð gengin, þegar Framkvæmdastofnunin tók til starfa, og þess vegna gat áætlun um þau ekki komið til greina.
Ég held, að það sé þess vegna alveg fjarri sanni, að það leiði af þessu frv., að það þurfi að leggja og eigi að leggja Framkvæmdastofnunina niður. Hún hefur alveg nægileg verkefni eftir sem áður. Og sannleikurinn er sá, að stjórn Framkvæmdastofnunarinnar og framkvæmdastjórar hennar hafa í reyndinni haft lítil afskipti af hagrannsóknadeildinni. Þess vegna er þetta í reyndinni ekki svo mikil breyting, heldur er verið að setja þetta í ákveðnara form vegna fenginnar reynslu.
Hv. þm. Benedikt Gröndal minntist á áðan, að reynslan hefði ekki sýnt, að þetta þyrfti að skilja frá. En reynslan hefur einmitt sýnt, að þessir aðilar, bæði stjórn og framkvæmdastjórar, hafa haft lítil afskipti af hagrannsóknadeildinni, hún þarf að starfa sjálfstætt og hún þarf umfram allt, eins og hún hefur verið, að hafa traust margra aðila, og þess vegna er sjálfsagt að búa að henni á þennan veg. Auðvitað gat komið til mála annað form á þessu. Það hefði mátt hugsa sér t. d. að setja upp sérstakt efnahagsmálaráðuneyti, eins og tíðkast víða um lönd. En sannleikurinn er sá, að ég held, að það sé heppilegra að hafa þetta form á, hafa þannig sjálfstæða stofnun, henni verði betur treyst en sérstöku rn., sem starfar í nánari tengslum við ráðherra og heyrir beint undir hann.
Þetta frv. er ekki flutt af því, að hagrannsóknastarfsemin hafi brugðist á nokkurn hátt, né vegna þess, að starfsemi Framkvæmdastofnunarinnar hafi brugðist á hagrannsóknasviðinu, því fer fjarri. Ég held, að það starf, sem hefur verið unnið þar, sé með ágætum. En menn verða að gæta að því, að það þarf sérfræðinga til að vinna þessi störf, og þeir eru ekki alltaf tiltækir, og það getur tekið sinn tíma að byggja svona stofnanir upp. Auðvitað verða þær dýrar, og sjálfsagt má benda á, að kostnaður við svona stofnun hafi aukist. Ég geri ráð fyrir því, að menn hafi ætlast til þess og ætlist til þess, að þessi stofnun hafi hæfum starfskröftum á að skipa, og þá verðum við að horfast í augu við, að það kostar nokkuð. Ég held, að starfsfólki hafi þarna verið fjölgað eitthvað, en það hygg ég þó vera mjög í hófi, og hefði raunar þurft að fjölga starfsmönnum meir, til þess að stofnunin hefði getað sinnt þeim hlutverkum, sem henni voru ætluð, t. d. á áætlunarsviðinu. En ég held, að það hafi ekki verið kostur þeirra starfskrafta, því miður.
Hvort kostnaður við þessa stofnun hefur farið eitthvað fram úr þeirri almennu kostnaðarhækkun, sem hefur átt sér stað á milli ára, það finnst mér ekki stórt atriði og ekkert óeðlilegt, þó að það komi til um nýja stofnun, sem er að þróast og fær mikilvæg verkefni til að vinna við.
Ég geri að sjálfsögðu ráð fyrir því, að n., sem frv. fær til meðferðar, kalli fyrir sig forstöðumann hagrannsóknadeildar og eins aðila frá Framkvæmdastofnuninni og fái frá þeim þær upplýsingar, sem hún kann að óska eftir, og auðvitað má þá athuga, hvort hægt er að færa eitthvað til betri áttar í þessu frv. Ég hygg, að í höfuðatriðum sé þetta þannig úr garði gert, að þar megi vel við una, en Framkvæmdastofnunin verður auðvitað að standa eftir sem áður. Hitt er annað mál, að hún er ekki neitt eilífðarfyrirbæri frekar en önnur mannanna verk, og reynslan getur kannske sýnt fyrr eða síðar, að einhverju þurfi að breyta, og auðvitað eigum við þá að gera það. Það er skortur á skynsemi að víkja ekki, ef reynslan sýnir, að eitthvað megi betur fara, gera nauðsynlegar breytingar. Ég a. m. k. fyrirverð mig ekkert fyrir að breyta um skoðun, ef ég tel, að nú sé ný skoðun betri, og ég fæ sönnun fyrir því.
Ég skal herra forseti, ekki hafa þessi orð fleiri. Aðalatriðið er það að þakka þm. undirtektir við þetta frv., sem voru út af fyrir sig vinsamlegar og gefa mér von um, að það fái nægilega greiðan gang í gegnum Alþ., þannig að það geti tekið gildi á þeim tíma, sem tiltekinn er í því.