31.10.1973
Neðri deild: 10. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 300 í B-deild Alþingistíðinda. (228)
3. mál, Þjóðhagsstofnun og Framkvæmdastofnun ríkisins
Benedikt Gröndal:
Herra forseti. Ég virðist heldur betur hafa komið við kviku í hv. 1. þm. Sunnl., þegar jafngóður drengur og hann er bregst við með persónulegum svívirðingum eða því sem næst og fer að bera það upp á mig, að ég hafi einhverja sérstaka ánægju af því að vera í stjórn þessarar stofnunar og að það sé þjóðinni með öllu ókunnugt, að ég hafi nokkra stjórnunarhæfileika. Ég skal játa það hvort tveggja, að ég hef haft mjög gaman af að vera í stjórn þessarar stofnunar og hef bæði lært þar mikið og unnið þar eins og ég hef getað. En ég held, að við ættum ekki að metast um slíka hluti hér á Alþ. við liggjum undir nógu þungu ámæli frá þjóðinni hvað það snertir.
Það, sem gerðist, var ekki annað en að þm. sjálfstæðismanna stóðu hér upp hver á fætur öðrum, fluttu rangfærslur, svívirðingar og skoðanir, sem ég er ósammála, um þessa stofnun. Af þeim ástæðum stóð ég upp og andmælti, gerði það e. t. v. með hörðum orðum, en það verður þá að hafa það, enda hefur verið tekið á móti í sama dúr, og ég skal ekki kvarta undan því.
Ég vil minna á, að þótt ég héldi uppi vörnum fyrir þessa stofnun í grundvallaratriðum, kom líka fram í máli mínu viss gagnrýni. Það var rétt, þegar ég sagði það, að enginn af þm. sjálfstæðismanna, sem eiga sæti í stjórn stofnunarinnar, hefði tekið til máls. Eftir það tók einn þeirra til máls, og ég verð að segja, að því fleiri sjálfstæðismenn sem töluðu, að undanskildum síðasta ræðumanni og annarri ræðu hans, því jákvæðari reyndust þeir vera. Ef menn lesa í góðu tómi þá ræðu, sem hv. 2. þm. Vestf. flutti um stofnunina, held ég, að menn muni finna, að sjónarmið hans og mitt um grundvallaverkefni Framkvæmdastofnunarinnar eru ekkert fjarri hvort öðru, enda höfum við oft staðið saman, stundum á móti stjórnarliðunum, í þessari blessaðri stofnun.
Það er því, þegar vel er skoðað, augljóst, að það eru góðar artir í sjálfstæðismönnum, enda hefði ég ekki stutt þá til að stjórna landinu í 15 ár, ef svo væri ekki. Ég bendi á, að í þeirra stjórnartíð voru sett upp mörg ríkisbákn, t. d. Seðlabankinn með á annað hundrað starfsmenn og Efnahagsstofnunin, eins og hún var, þó að sömu menn séu óalandi og óferjandi, þegar þeir starfa undir öðru nafni og í öðru húsi. Allt þetta var sett upp og margt fleira. En það er miklu eðlilegra fyrir sósíaldemókrata að styðja eflingu ríkisvaldsins heldur en fyrir sjálfstæðismenn. A. m. k. ætti það að vera svo. Við höfum þá að því leyti til verið trúari okkar hugsjónum og leitt sjálfstæðismenn til betri vegar í þeim efnum á fyrra stjórnartímabili.
Tölurnar um kostnaðinn við stofnunina fóru vaxandi með hverri mínútu, sem hv. ræðumaður talaði. Hann byrjaði með 65 millj., var kominn upp í 80 millj., þegar hann hætti, en hann virðist reikna með því, að þessar kostnaðaráætlanir verði algerlega óbreyttar, þó að þriðjungurinn af starfsliði stofnunarinnar verði settur undir annan hatt.
Ég vil endurtaka það, að ég held ekki uppi vörnum fyrir þróun í fjárhagsmálum þjóðarinnar og þar með kostnaði við opinbera starfsemi. En mér þótti ástæða til þess, að einhver stæði upp og drægi fram það sem jákvætt er við Framkvæmdastofnunina, og ég tel hana í raun og veru hafa fengið verulegan stuðning frá hv. 2. þm. Vestf., því að hann talaði um mörg þau jákvæðu atriði, sem valda því, að við Alþfl. menn höfum stutt hugmyndina um þessa stofnun frá upphafi, þó að við höfum ekki stutt öll atriði í uppbyggingu hennar, og valda því, að við þorum að standa við það, að við studdum þessa hugmynd.