05.03.1974
Sameinað þing: 64. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2471 í B-deild Alþingistíðinda. (2290)
150. mál, bætt skipulag tónlistarnáms
(Helgi F. Seljan):
Herra forseti. Ég hef leyft mér að flytja till. til þál. um bætt skipulag tónlistarnáms. Till er svo hljóðandi:
„Alþingi ályktar að skora á ríkisstj. að taka til gagngerðrar endurskoðunar allt tónlistarnám í landinu. M.a. skal starf hinna einstöku tónlistarskóla samræmt skyldunáminu og almenn tónlistarkennsla skipulögð, þar sem engin er nú. Skal að því stefnt að færa undirstöðukennslu í hljóðfæraleik inn í alla skyldunámsskóla nemendum að kostnaðarlausu. Við þessar aðgerðir, svo og aðrar, sem nauðsynlegar reynast, skal stuðst við álit tónmenntunarnefndar menntmrn. frá 30. ágúst 1972.“
Það skal þegar tekið fram, að ég hef hér fyrst og fremst í huga landsbyggðina, alveg sérstaklega þá fjölmörgu staði, þar sem aðstaða til tónlistarnáms er engin eða aðeins nafnið tómt. Ég veit, að með samþykkt grunnskólafrv, verður stigið stórt skref til aukningar alls tónlistarnáms á skyldustiginu. Ég get varla efast um, að grunnskólafrv. í einhverri mynd hljóti að ná fram að ganga með öllum þeim kostum, sem það hefur, m.a. í þessu sérstaka tilliti. Hitt er þá eftir allt of víða, að koma á því skipulagi, sem frv. gerir ráð fyrir í framkvæmd, og seint mun takast að gera það alls staðar.
Ég hef sem skólamaður staðið í því ár eftir ár að tryggja nemendum mínum, þótt ekki væri nema smávegis innsýn í tónmennt, en það hefur allt saman komið fyrir lítið. Söngurinn t.d. sem skyldugrein hefur allt of víða setið algerlega á hakanum, sumpart fyrir skilnings- og viljaleysi, sumpart fyrir skort á hæfum kennurum til að taka verkefnið að sér. Átak í þessum málum, sem tryggði lágmarksárangur, yrði því vissulega að vera stórt, og þess þyrfti víða að sjá stað, ekki síst í skipulagðri menntun nægilega stórs hóps kennara, sem gætu sinnt verkefninu sómasamlega. Þar er kannske brýnasta verkefnið að finna.
Það þarf mikið átak til þess að koma upp aðstöðu til vissrar tónmenntunar hvarvetna á landinu, og það er líka sannarlega meira en að segja það. Í þessari grein erum við það langt á eftir, það margt er þar óunnið, að engum kemur til hugar, að úr sé hægt að bæta á auðveldan að ekki sé nú talað um ódýran hátt. Hins vegar álít ég það eina af frumskyldum menntayfirvalda að huga vel að þessari grein einmitt vegna þess, hversu afleitt ástand hennar er, og þá einnig vegna þess, hve greinin er í raun þýðingarmikil sem uppeldis- og þroskagjafi.
Hið ágæta framtak menntmrn, að fela sérstakri n. það verkefni að gera ítarlega till. um tónmennt á skyldustigi er vissulega þakkarvert, og álit n., sem till. mín vísar sérstaklega til. er góð undirstaða allra skynsamlegra athafna í málinu. Á hinn bóginn er ætíð fyrir hendi sú hætta, að því stærra sem vandamálið er og torleystara, því erfiðara sé um vik að koma á umbótum, hvað þá framkvæma allt það, er þyrfti.
Fjarri sé það mér að vanmeta allt það starf, sem unnið hefur verið að tónmenntunarmálum hér á landi, og allar þær framfarir, sem þar hafa orðið. Margir skólar hafa átt á að skipa ágætum starfskröftum til söngskennslu, enda starf þeirra borið ríkulegan ávöxt, en því tilfinnanlegri verður hlutur hinna enn fleiri, sem við allsleysi hafa búið í þessum efnum.
Ekki skal ég heldur gera lítið úr því ágæta áhugastarfi, sem unnið hefur verið viða, ótrúlega víða, jafnt gagnvart söng og kennslu í hljóðfæraleik. Þar hafa tónlistarskólarnir og félögin, sem þá hafa rekið, oftlega sýnt undraverðan árangur, þó að ýmislegt væri af vanefnum gert, og hefur góður andi og óbilandi áhugi skilað margföldum arði. En aftur kemur þá í hugann hlutur hinna allt of mörgu, sem hér hafa borið skarðan hlut frá borði eða engan af einhverjum ástæðum, oft óviðráðanlegum með öllu. Ekki skal ég vanmeta stuðning ríkis og sveitarfélaga í þessum þætti, stuðning þeirra við tónlistarfélög og tónlistarskóla almennt. Þar hefur gjarnan verið stórmannlega að staðið og af ríkum skilningi, þótt um hitt sé einnig dæmi. En allt þetta sannar það, að bætt skipulag þessara mála ásamt miklu átaki og góðu þarf til að koma, ef viðunandi árangur á að nást, ég tala nú ekki um viðunandi jöfnuð, þannig að sveitabarnið eigi sem líkasta möguleika og Reykjavíkurbarnið til að njóta söngiðkunar, — þannig að barn hins fátækasta eigi sömu möguleika til að læra hljóðfæraleik og barn hins ríkasta. Og auðvitað ber allt að sama brunni hér sem í öðru. Það er ekki hið svokallaða frjálsa einkaframtak, sem leysir vandann í heild. Það er samhjálp og aðgerðir ríkisvaldsins, sem geta ein leitt til þess, að þessi grein megi hljóta þann sess hjá öllum, sem hún á skilið.
Að sjálfsögðu er hér ekki gert ráð fyrir öðru en því, að einstakir tónlistarskólar og tónlistarfélög, sem að þeim standa, starfi áfram sem fullkomlega sjálfstæðir aðilar að öðrum verkefnum sínum, sem eru ærin. Aðeins er til þess ætlast, að sá þáttur í starfsemi þeirra, er beint getur samræmst hinu eiginlega tónlistarnámi skyldustigsins, verði sem best nýttur í þágu skólafólksins og þar verði sem bestri og mestri samræmingu á komið.
Þá er komið að till. beint og efni hennar. Ég dreg enga dul á það, að ég álít söngkennsluna eina ekki nægilega sem hlut skólakerfisins í tónmennt okkar. Það hlýtur að vera okkar markmið að taka í æ ríkari mæli fleiri greinar tónmennta inn í námskerfi okkar, og að því stefnir grunnskólafrv. ótvírætt. Sumir skólar, sem við besta aðstöðu búa, hafa þegar útvíkkað starfsemi sína á þennan hátt. Sem uppeldis- og þroskagjafi hef sér grein fárra, hann á að vera sameign semur tónlist mikið gildi, — gildi, sem hafið er yfir allan efa. Þessi þroskagjafi má ekki vera sérgrein fárra, hann á að vera sameign sem allra flestra. Sumar þjóðir, svo sem Ungverjar, hafa náð ótrúlega langt á þessu sviði, og þeir telja sig t.d. engan veginn geta verið án þessa þáttar í uppeldi ungu kynslóðarinnar. Sem áfangi að þessu marki þarf að koma til samræming þeirra tónlistarskóla, sem víða eru úti á landi, og hins eiginlega skólastarfs. Víða er þetta gert að hluta og hefur mér vitanlega hvarvetna reynst ágætlega. Hér þarf ekki mikið átak að mínu viti til að samhæfa nám og námsefni sem best til góða fyrir nemendur, einkum þá, sem ekki treysta sér efnahags vegna til að kaupa dýra einkatíma. Hitt veit ég, að verður erfiðara, að finna lausn á vanda hinna mörgu staða, sem enga tónlistarmennt hafa, en þar dugir eflaust engin ein allsherjarlausn á vandanum.
Ég benti á það, þegar ég skaust hér snöggvast inn fyrir 17 árum, að hvað söngkennsluna snerti gæti ráðið verið umferðarkennsla í söng, þar sem erfiðast væri að koma stöðugri samfelldri kennslu við. Og enn dettur mér þetta ráð í hug, þar sem allt annað þrýtur. Mér sýnist tónmenntunarnefndin einnig gera ráð fyrir þessari leið í erfiðustu tilfellum. Það hlýtur að vekja eftirtekt mína í sambandi við þetta, að sú till., sem ég bar þá fram hér á hv. Alþ. og fól einmitt í sér þessa umferðarkennslu í söng og samþykkt var, var að mínu viti aldrei nema pappírsgagn. Mér er ekki kunnugt um, að nokkurn tíma hafi verið gert nokkuð til þess að framkvæma eitt eða neitt af því, sem hún gerði ráð fyrir.
Það er fullljóst, að margra leiða þarf að leita að þessu marki og velja síðan í hverju tilviki þá leið, sem líklegust er til árangurs. Sá liður till., sem lýtur að því að færa undirstöðukennslu í hljóðfæraleik inn í skyldunámið, er tvímælalaust hinn viðameiri, og þykir e.t.v. mörgum, að of mikið sé hér færst í fang. Ég minnti á það áðan, að ýmsir best settu skólarnir hefðu þegar farið að nokkru inn á þessa braut, og verði framkvæmd grunnskólafrv. eða væntanlegra l. í samræmi við fyrirheit, er mjög til móts við þetta sjónarmið gengið. Aðalástæða þess, að lagt er til, að í þessa átt sé stefnt, er það misrétti, sem sannarlega viðgengst í þessum efnum, ekki aðeins milli einstakra skóla, heldur einnig hinu, hve hér er um kostnaðarsama hluti að ræða. Slíkt nám má ekki og á ekki að heyra til forréttinda hinna betur stæðu í neinu. Þar þurfa allir að eiga sem jafnasta aðstöðu, og hún fæst ekki nema með einhverjum þeim hætti, sem í till. er nefndur, þ.e. að færa a.m.k. undirstöðukennsluna inn í skólakerfið og auka svo við smátt og smátt, eftir því sem möguleikar leyfa. Ég tek það enn fram, að hér eigi fyrst og fremst að tala um nemendur landsbyggðarinnar. Ég veit, að hér í Reykjavík eru ýmsir möguleikar fyrir hendi, þótt einnig þar þurfi betur að gera og ná meiri jöfnuði, þannig að allir eigi þar jafna möguleika til náms. Nú rétt fyrir áramótin, var t.d. vakin á því sérstök athygli í dagblaði einu hér í höfuðstaðnum, hver forréttindi hinna betur stæðu um tónlistarnám eru hér í raun í dag.
Ég tel óþarfa að hafa framsögu þessa máls lengri. Fyrir tillöguflutningi þessum liggja þær ástæður helstar, sem hér hafa verið raktar, þótt margar fleiri mætti til tína. Þrátt fyrir ýmislegt, sem til bóta horfir í þessum efnum nú, taldi ég rétt að vekja á málinu sérstaka athygli, því að sannarlega er á því þörf. Það er mál, að þeim forréttindum ljúki sem fyrst, sem hér hafa gilt, að sameign þessara verðmæta verði sem allra mest í staðinn. Ef þessi till. mætti stuðla að því, þótt í litlu væri, væri tilgangi hennar náð.
Ég vil svo, herra forseti, leyfa mér að leggja til. að að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til allshn.