05.03.1974
Sameinað þing: 64. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2478 í B-deild Alþingistíðinda. (2296)

205. mál, tekjustofnar sýslufélaga

Flm. (Friðjón Þórðarson):

Herra forseti. Á þskj. 358, hef ég leyft mér að flytja till. til þál. um aukna tekjustofna sýslufélaga ásamt hv. 4. þm. Sunnl. Till. er á þessa leið:

„Alþingi ályktar að skora á ríkisstj. að gera nú þegar ráðstafanir til að auka tekjur sýslufélaga, svo að þeim verði gert kleift að sinna lögboðnu hlutverki og aðkallandi viðfangsefnum.“

Í 76. gr. stjórnarskrárinnar segir, að rétti sveitarfélaganna til að ráða sjálf málefnum sínum með umsjón stjórnarinnar skuli skipað með lögum. Nú gilda um þessi efni hin almennu sveitarstjórnarlög, nr. 58 frá 1961, og í þeim l. fjallar IV. kafli sérstaklega um sýslufélög. Í 1. gr. þessa kafla, 92. gr. sveitarstjórnarlaga, er fjallað um helstu verkefni sýslufélaga, og eru þau ærið margþætt, eins og upptalningin ber með sér. Sýslufélögum ber að annast m.a. eftirlit með fjárreiðum allra hreppa innan sýslufélagsins, endurskoðun á úrskurðum ársreikninga þeirra og allra fyrirtækja, sem rekin eru á vegum hreppanna, umsjón með, að hreppsnefndir starfi yfirleitt í sveitarstjórnarmálum samkv. gildandi lögum og reglugerðum. Sýslunefndum ber að annast setningu reglugerða um notkun afrétta, fjallskil. fjárheimtur, smalanir haust og vor og fleira af slíku tagi, sjá um, að markaskrár séu prentaðar eigi sjaldnar en 10. hvert ár yfir fjármörk, o.s.frv. Þá ber sýslufélögum einnig að hafa umsjón og stjórn vegamála samkv. vegal. og sýsluvegasamþykktum, og er þetta allstór þáttur starfa þeirra. Þá er um að ræða afskipti af forðagæslu samkv. búfjárræktarlögum og fleira á því sviði. Þá fjalla sýslunefndir um setningu byggingarsamþykkta fyrir sýsluna samkv. l., enn fremur um álitsgerðir mála, er varða einstaka hreppa sýslunnar eða sýsluna í heild, enda skal engu slíku máli til lykta ráðið, fyrr en álitsgerðar sýslunefndar hefur verið leitað.

Þá er rætt um í 92. gr., að eitt af verkefnum sýslunefndar sé að tilnefna þrjú hreppstjóraefni, þegar skipa skal hreppstjóra. Enn fremur er rætt um, að á vegum sýslufélaga fari fram stjórn allra sveitarstjórnarmála, er varða sýsluna í heild, svo og till. um hvað eina, sem verða má sýslunni til gagns eða til að afstýra bjargarskorti eða hallæri. Og loks ber sýslunefnd að fjalla um önnur þau störf, er lög og reglugerðir mæla fyrir um.

Af þessari upptalningu má ráða, að hlutverk sýslunefnda er ærið margþætt. En þó vil ég vekja sérstaka athygli á næstsíðasta lið, sem þarna er talinn, en samkv. honum ber að fjalla á vegum sýslunnar eða í sýslunefnd um till. um hvað eina, sem verða má sýslunni til gagns. Þetta er æði víðtækt orðalag, gripur yfir allt það, sem verða má héraðinu til gagns og heilla. Þá má segja, að af þessu leiði jafnframt, að sýslunefndir hafa verið nokkuð misjafnlega starfsamar.

Þegar um svona víðtækt hlutverk er að ræða, fer óneitanlega oft þannig, að sumir láta sér nægja það, sem nauðsynlegast er að framkvæma úr verkefnaskránni, en aðrir — í þessu tilviki aðrar sýslunefndir — leggja sig fram um að fjalla um flest, sem til gagns og heilla má horfa. Þess vegna er það svo, a.m.k. sumir sýslusjóðir, þar sem ég hef þekkt til á undanförnum árum, láta stórfé af hendi rakna til margra málaflokka. Má nefna menntamál, heilbrigðismál og atvinnumál, sem síðan flokkast í ótal undirgreinar. En þessum verkefnum verður ekki unnt að gera skil í stuttu máli. Þau eru, eins og segir í grg., óteljandi og ótæmandi. Það er vikið að því hér, að á vegum sýslnanna og sýslunefnda hafa verið reknir skólar, byggð bókasöfn, komið á fót byggðasöfnum og héraðsskjalasöfnum, staðið að byggingu og rekstri elliheimila, sjúkrahúsa, læknisbústaða og hafnarframkvæmda, og þannig mætti lengi upp telja. Þá er og vitað, að mörg sýslufélög hafa af fremsta megni og af fátækt sinni, ef svo má segja, reynt að styðja að margs konar menningar- og líknarstarfsemi í héraði, svo sem styrkt íþrótta- og ungmennafélög, kvennasamtök, björgunar- og sjúkrahjálp. Einnig hafa margar sýslunefndir látið náttúruverndarmál, skógrækt og gróðurvernd og annað slíkt mjög til sín taka og lagt fram af litlum efnum fé til margs konar málefna, svo sem til jarðhitaleitar, til þess að hraða framkvæmdum í raforkumálum, svo að dæmi séu nefnd.

Þá vil ég einnig vekja athygli á því, að um langa tíð hefur það viðgengist, að nágrannasýslufélög hafa tekið höndum saman til þess að ýta áfram stórum málum. Ég nefni t.d. samstarf sýslna í byggingarmálum, skólamálum og orkumálum. Þar get ég nefnt dæmi af Vesturlandi, þar sem hinu ágæta fyrirtæki, Andakílsárvirkjun, sem starfað hefur frá árinu 1947, ef ég man rétt, er komið á fót í samstarfi Mýra-og Borgarfjarðarsýslna við Akraneskaupstað. Þetta fyrirtæki hefur mjög vel gefist, og það eru margir á Vesturlandi, sem telja nú, að samstarf sýslnanna á þessu sviði eigi að auka, þannig að Andakílsárvirkjun færi út starfssvæði sitt og taki til alls Vesturlands, þar starfi allar sýslur á Vesturlandi ásamt Akraneskaupstað að því að fullnægja þörfum og óskum íbúanna í orkumálum.

En þegar kemur að þeim ákvæðum í sveitarstjórnarlögum, sem fjalla um tekjustofna sýslufélaga, og þó einkum 101. gr., horfist maður í augu við, hvaða fé sýslurnar hafa úr að spila til þess að geta staðið straum af öllum þeim mörgu og margþættu verkefnum, sem ég hef nú gert nokkra grein fyrir. Segir í 141. gr., að sýslunefnd skuli á aðalfundi semja áætlun um tekjur og gjöld sýslusjóðs fyrir yfirstandandi ár. Síðan segir: „Því, sem á vantar, að tekjur sýslusjóðs hrökkvi fyrir útgjöldum hans, skal jafnað niður á hreppana“ eftir vissum reglum, sem þar eru nánar upp taldar. Þetta orðalag, sem mun hafa staðið svona óbreytt a.m.k. alllengi, virðist augljóslega benda til þess, að sýslusjóðir eigi að hafa aðgang að öðrum tekjustofnum en þarna eru taldir. En það gengur verr að finna þá tekjustofna, og í raun er það svo, að sýslusjóðsgjaldið, sem kemur út úr þeirri niðurjöfnun, sem rætt er um í 101. gr., er svo til hinn eini og einasti tekjustofn sýslufélaganna, þær tekjur, sem sýslurnar verða að nýta til að standa straum af öllum þeim útgjöldum, sem þeim ber að standa undir.Og það er svo með þetta sýslusjóðsgjald, að því er fyrst og fremst jafnað niður á íbúa viðkomandi byggðarlags, þannig að þarna getur orðið um tilfinnanleg útgjöld að ræða, einkum þar sem eiga í hlut fámennir og fátækir hreppar. En yfirleitt eru sveitarfélögin á Íslandi þannig stödd, að þau hafa nóg að gera við tekjustofna sína. Það vill verða svo, að bæði ríki og sveitarfélög séu síleitandi að auknum tekjustofnum til margháttaðra útgjalda og gengur stundum treglega að finna slíka tekjustofna.

Ekki fer hjá því, að okkur flm. er fullljóst, að það getur verið erfitt að finna tekjustofn, sem kæmi til greina til að styrkja hag sýslufélaganna. Í niðurlagi grg. nefnum við sem dæmi, að til greina geti komið t.d. einhver hluti af söluskatti. Einnig nefnum við Byggðasjóð, en við vitum allir, að hlutverk hans er að stuðla að jafnvægi í byggð landsins. Fleira mætti sjálfsagt nefna. Við vitum, að þessi tekjustofnamál, bæði ríkis og sveitarfélaga, hafa lengi og árum saman verið til umr., bæði hér á hv. Alþ. og á mörgum öðrum stöðum, og eru enn. Það hefur verið bætt úr fyrir þessum aðilum að ýmsu leyti, en ég tel, að hvað tekjustofna snertir hafi hv. alþm. algerlega sparað sér ómakið að hugleiða tekjustofna sýslufélaga, og sýslufélög hafa að þessu leyti orðið eftirbátur bæði ríkis og sveitarfélaga. Má því vera fullljóst af þessu, sem ég nú hef nefnt, að hina brýnustu nauðsyn ber til þess að efla sýslusjóðina og auka tekjustofna þeirra.

Þessum málum hefur að vísu verið hreyft. Það var snemma á áratugnum 1960–1970 flutt hér þáltill. um að endurskoða tekjustofna sýslufélaga, og hún var meira að segja samþykkt, en lítið sem ekkert í málinu gert. Ég spurðist fyrir um þetta mál á hv. Alþ. í fyrra, en fékk mjög lítil svör hjá þeim hæstv. ráðh., sem ég beindi fsp. til. Ég sá mér því ekki annað fært en að hreyfa þessu máli í þessu formi ásamt hv. 4. þm. Sunnl. til þess að vekja athygli á því, að hér er mál. sem hefur verið vanrækt af hálfu hv. alþm. í öllu því tekjustofnatali, sem hér hefur farið fram á undanförnum árum. Ég held, að mér sé óhætt að segja, að við flm. teljum þetta mál, aukningu tekjustofna sýslufélaga, tvímælalaust í flokki hinna allra mikilvægustu byggðamála. Okkur hefur verið sagt, að þau fjárlög, sem gilda fyrir þetta ár, séu byggðafjárlög, byggðamál er á hvers manns vörum, og jafnvægi í byggð landsins hefur verið það mjög lengi. En hér er mál, sem menn geta látið til sín taka, ef þeir vilja hugsa um þessi mál í fullri alvöru.

Ég hef þessi orð mín ekki fleiri að sinni, en legg til, þegar umr. verður frestað, að málinu verði vísað til hv. allshn.