05.03.1974
Sameinað þing: 64. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2484 í B-deild Alþingistíðinda. (2301)
209. mál, smíði eða kaup strandferðaskips
Flm. (Vilhjálmur Hjálmarsson):
Herra forseti. Þáltill. sú, sem við hv. 7, landsk. þm. flytjum hér á þskj. 363 um heimild fyrir ríkisstj. til að láta smíða eða kaupa strandferðaskip, er á þessa leið:
„Alþingi ályktar að heimila ríkisstj. að láta smíða eða kaupa skip til strandferða. Jafnframt heimilast ríkisstj. að taka nú þegar skip á leigu til sömu nota.“
Ég ætla ekki að tala langt mál fyrir þessari till., en ég hlýt þó að greina frá helstu forsendum fyrir flutningi hennar.
Fyrir fáum árum átti ríkið fjögur almenn strandferðaskip auk Herjólfs, sem einkum þjónaði Vestmanneyingum. Tvö af fjórum þessara skipa höfðu stórt farþegarými. Nú var ákveðið að selja skipin fjögur og smíða tvö ný vöruflutningaskip með tiltölulega mikilli flutningsgetu. Hraðað var sölu, en farið hægt í smíðar. Ferðir urðu því um hríð strjálli og stopulli en þekkst hafði hér við land í áratugi og með þeim afleiðingum m.a., að vöruflutningar færðust í vaxandi mæli yfir á bíla á þeim árstímum öllum, þegar nokkurt viðlit var að brjótast landleiðina. Eftir það koma svo til nota með um það bil árs millibili tvö sérsmíðuð vöruflutningaskipa. Þau hafa síðan verið í hringferðum yfirleitt með tiltölulega litlum frávikum.
Hér var í rauninni brotið blað í strandsiglingunum. Farþegaflutningar á sjó með ströndum Íslands landshluta í milli voru hér niður lagðir — alveg má segja. Það er utan sviðs þessarar till. að ræða um þann þáttinn, þ.e. farþegaflutninga á sjó. Ég vil þó rétt segja það hér, að ég hef aldrei getað sætt mig við það, að þetta sé eðlileg þróun. Ég trúi því ekki, að það sé eðlilegt ástand, að strandþjóð eins og Íslendingar eigi ekkert farþegaskip, hvorki til siglinga með ströndum fram né landa á milli.
Fyrir að mig minnir 3–4 árum flutti ég ásamt fleiri þm. till. til þál. um athugun á smíði og rekstri farþegaskips. Ég var búinn að flytja hana aftur, en hún var samþ. að lokum, og það hefur einhver athugun farið fram á þessu máli. Það hafa þó ekki verið birtar opinberlega niðurstöður þeirrar athugunar, og væri raunar þörf á því, en þær niðurstöður munu ekki vera jákvæðar. En ég tel þó fyrir mína parta fulla ástæðu til þess, að slíkum athugunum verði haldið áfram og þessu máli haldið vakandi.
Með sölu strandferðaskipanna fjögurra var einnig önnur meginbreyting sú, að síðan hafa aðeins tvö flutningaskip siglt með ströndum fram í stað fjögurra áður.
Reynslan af tveggja skipa kerfinu er að því er varðar þjónustu við fólkið ekki nægilega góð. Flutningsgetan sjálf er ekki nóg á annatímum a.m.k. Sem einstök dæmi skal ég bara nefna tvennt: Annars vegar það, að oft er mjög löng bið eftir því að fá pláss fyrir bíla, sem flytja þarf úr Reykjavík austur á firði, það er mér persónulega kunnugt um. Og fyrir skömmu varð að skilja eftir hér í Reykjavík 45 tonn af fóðurblöndu, sem átti að fara austur á Reyðarfjörð frá Reykjavik. Svona tilvik geta verið býsna alvarleg, t.d. þetta seinna, sem ég nefndi. Það getur haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar og valdið beinu tjóni, ef menn geta ekki haldið áfram að gefa búfé fóðurbæti.
Ferðirnar eru of strjálar með tveimur skipum. Skipin fara úr Reykjavík með 11–14 daga millibili samkvæmt áætluninni. Þetta er ófullnægjandi, eins og nú er háttað atvinnulífi og mannlífi yfir höfuð. Og sem frávik frá þessari reglu, sem áætlunin inniheldur, þessari almennu reglu í áætluninni, má nefna það, að nú fyrir áramótin, í nóv., voru tvívegis 15 dagar á milli brottfarar frá Reykjavík hjá þeim skipum, sem sigldu austur um. Og síðasta áætlunarferð austur fyrir jól var 6. des., fyrsta ferð eftir áramót 5. jan. Þarna leið heill mánuður á milli áætlunarferða vöruflutningaskipa austur á firði. Á þessum árstíma er landleiðin oftast lokuð og flug ákaflega stopult, og þannig var þetta þá, að í raun og veru er enginn möguleiki til flutninga fyrir hendi milli höfuðstaðarins og Austurlands, sem verulegt gagn var í, nema um loftið. Og auðvitað nýtist ekki flug nema að takmörkuðu leyti til vöruflutninga, síst á þessum árstíma. Þá vil ég minna á það, að þegar skip fer í slipp vegna eftirlits, strjálast ferðirnar óhjákvæmilega frá því, sem er gert ráð fyrir í áætluninni. Og ef um meiri háttar aðgerðir er að ræða, t.d. vegna sjótjóns, sem er alls ekki fátítt á siglingum með ströndum fram, verður strax algert öngþveiti í vöruflutningum, á meðan svo háttar eins og nú, að aðeins eru til tvö strandferðaskip. Þetta þarf ekki að skýra fyrir hv. þm. Þetta má öllum ljóst vera, sem út í það hugsa, að þegar annað skipið af þessum tveimur er úr leik, þá er ófremdarástand skollið á jafnskjótt.
Enn er svo þess að geta, að á nokkrum stöðum eru svo erfið hafnarskilyrði, að til stórvandræða horfir, síðan Herðubreið og Skjaldbreið voru seldar. En unnið er að því að sjálfsögðu að ráða bót á þeim vanköntum.
Þessi till. er aðeins um heimild fyrir ríkisstj. til að afla nýs strandferðaskips og til bráðabirgða að taka skip á leigu. En það þarf vissulega fleira til. að vöruflutningar á sjó skipi eðlilegan sess í samgöngukerfinu, og skal ég hér aðeins nefna aðstöðu Skipaútgerðar ríkisins í Reykjavík, sem lengi hefur verið fyrir neðan allar hellur. Síðan ég kom á þing öðru sinni 1967, hef ég og fleiri þm. æ ofan í æ hamrað á því með tillöguflutningi og á annan hátt, að hér yrði ráðin bót á, og Alþ. gerði á sínum tíma ályktun í þessa stefnu. Nú standa þessi mál þannig í stuttu máli sagt, að samið hefur verið um aðstöðu fyrir Skipaútgerðina í gömlu höfninni vestanverðri. Er verið að gera þar fyllingu fyrir þessa aðstöðu. Arkitektar eru með frumdrög að nýju húsnæði á teikniborði sínu, og samgrn. hefur veitt heimild til að teikna. Og ég verð að segja, að minna gat þetta varla verið eftir allan þann tíma, sem þetta ástand hér í Reykjavík hefur verið til stórvandræða. Ef nú yrði mót venju, verð ég að segja, vel á eftir þessu fylgt, mætti ætla, að grundvöllur væri fyrir ákvörðun og fjáröflun til framkvæmda þegar á næsta ári.
En meðan hér er beðið úrbóta í formi nýbygginga, verður að gera bráðabirgðaráðstafanir til að bæta afgreiðsluna hér í Reykjavík og sennilega jafnframt meðferð farmsins um borð og svo á ströndinni. Það er varla einleikið, verð ég að segja, hve oft maður heyrir talað um skemmd á vörum, sem fluttar eru sjóleiðis hafna í milli, stundum af hnjaski og stundum af bleytu. Seinast nú fyrir fáum vikum bárust mér fréttir um það, sem ég hef enga ástæðu til að rengja, að til Neskaupstaðar voru fluttar pappaumbúðir og rafsuðuþráður, sem hvort tveggja varð ónýtt vegna bleytu, og sendingar af gólfteppum, sem einnig urðu blautar. Og það er a.m.k. alveg óþolandi, sem ég og margir fleiri verða þrásinnis varir við, fá þrásinnis að heyra, þegar fyrirtæki hér í Reykjavík eru beðin að senda minni háttar sendingar með ríkisskipum, þá eru svörin nálega alla tíð á þá leið, hvort það sé ekki mögulegt að senda þetta með einhverjum öðrum hætti, senda með bíl, senda með flugvél, bara ekki með skipunum, vegna þess, hve erfitt sé að koma vörunni á afgreiðslu hér í Reykjavík. Þetta er náttúrlega alveg óþolandi ástand.
Þessi þátturinn er utan við efni þeirrar till., sem hér er til umr., enda held ég, að úrbætur á aðstöðu Skipaútgerðarinnar hér í Reykjavík séu komnar á það stig, að það sé óþarft að gera þær að sérstöku þingmáli enn einu sinni. En ég vil nota þetta tækifæri til þess að skora mjög alvarlega á Skipaútgerðina og samgrn. í fyrsta lagi að hraða varanlegum úrbótum, svo sem framast er unnt, og í öðru lagi að gera þegar í stað einhverjar þær ráðstafanir til bráðabirgða, sem bætt gætu aðstöðuna hér í Reykjavik, og loks taka um leið til rækilegrar athugunar, hvað hæft er í kvörtunum um óeðlilegar vöruskemmdir, og bæta um, ef þær kvartanir reynast á rökum reistar.
Um till. sjálfa vil ég svo að lokum aðeins segja það, að ég tel mig hafa leitt veigamikil rök að því, að bein þörf sé á þriðja vöruflutningaskipinu á ströndina og það nú þegar til þess að auka tíðni ferða, til þess hreint og beint að anna flutningaþörfinni á annatímunum og til öryggis, þegar skip tefjast af einhverjum ástæðum. Flm. þessarar till. leggja áherslu á báða þætti till.: heimild til að láta smíða eða kaupa skip og til bráðabirgða heimild til að taka skip á leigu. Vegna íslenskra staðhátta og vegna veðurfars hér við land er nægur skipakostur til strandsiglinga okkur brýn nauðsyn. Og fyrst við þurfum að eiga skipin, ber okkur auðvitað að nýta þau vel. Vöruflutningar á sjó eru líka þjóðhagslega séð réttmætir, þar sem þeim verður við komið með eðlilegum hætti. En út í það verður ekki nánar farið að þessu sinni.
Ég vil svo leyfa mér að leggja til, herra forseti, að till. verði vísað til fjvn.