05.03.1974
Sameinað þing: 64. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2512 í B-deild Alþingistíðinda. (2317)
221. mál, kaup á jarðbor
Flm. (Halldór Blöndal):
Herra forseti. Ég get verið stuttorður um þessa till. Efni hennar er það, að þegar í stað verði gerðar ráðstafanir til þess, að keyptur verði jarðbor, sem geti borað niður í allt að 2 km dýpi, enda henti hann til borunar við Kröflu.
Ástæðan fyrir því, að þessi till. er borin fram, er sú, að hér á landi er aðeins einn jarðbor, oft nefndur gufubor, sem er nægilega stór, til þess að hægt sé að nota hann við þær boranir, sem nauðsynlegar eru við Kröflu og fram eiga að fara á næsta sumri, sumarið 1975 og sumarið 1976, að því er mér hefur verið tjáð. Gufuborinn, þessi eini bor nægilega stór hér á landi, mun verða algerlega upptekinn allt næsta ár við verkefni hér á Suðvesturlandi vegna hitaveituframkvæmda og borana fyrir Reykjavíkursvæðið. Verður því ekki hægt að nota þann bor nyrðra á sumrinu 1975. Á hinn bóginn er orkuskorturinn á Norðurlandi svo mikill, að það þolir enga bið að reisa gufuvirkjun á háhitasvæðinu við Kröflu.
Mér er ekki kunnugt um, að af opinberri hálfu hafi verið haft neitt frumkvæði að því að kaupa hentugan jarðbor til landsins, þó að fyrirsjáanlegt sé, að nú nálgumst við kúf af verkefnum næstu 3–4 árin vegna orkuskortsins í heiminum. Það er rétt, að bor af þessu tagi er nokkuð dýr, hann kostar kannske 150 eða 200 millj. kr. Það er þó ekki meira en svo sem einn skuttogari. Þeir eru nú farnir að skipta tugum hér á landi, þó að afraksturinn af hverjum þeirra fyrir sig verði ekki sambærilegur við þennan bor, ef vel tekst til. Ég álít, að það sé kominn tími til þess að taka af skarið um þetta. Mér hefur fundist, að sá sofandaháttur, sem verið hefur um rannsóknirnar í Kröflu á undanförnum árum og eins nú við afgreiðslu fjárlaga, beri með sér, að það sé ekki raunverulegur áhugi fyrir hendi hjá yfirvöldum, að þessar boranir fari fram, og ég óttast mjög, að því verði borið við á næsta ári að af tæknilegum ástæðum verði ekki hægt að gera þær boranir við Kröflu, sem lofað hefur verið. Ég fæ ekki skilið, að tómlæti hæstv. iðnrh. í þessum efnum geti átt sér aðrar orsakir.
Ég þarf ekki að taka fram, að hjá umbjóðendum mínum á Norðurlandi er mikill áhugi á þessu máli. Menn óttast mjög, hvað við tekur fyrir norðan. En eins og ástandið er núna og oft hefur verið rætt um hér á hinu háa Alþingi, er nú komið svo, að menn fá ekki rafmagn til húsahitunar á Norðurlandi, nokkrum mánuðum eftir að ný virkjun hefur tekið til starfa, og ekki hefur heyrst frá hinu opinbera ein einasta rödd um það, hvernig staðið skuli að þeim málum né heldur hvernig unnt verði að útvega iðnaðinum á Norðurlandi þá raforku, sem nauðsynleg er.
Af verkefnum fyrir bor af þessu tagi má benda auk Kröflu á boranir á Þeistareykjasvæðinu og auk þess boranir í sambandi við væntanlega sjóefnaverksmiðju. Þá má einnig líta svo á, að hér sé einungis um endurnýjun á verkfærum að ræða. Gufuborinn er kominn til ára sinna og eðlilegt og tími kominn til þess að endurnýja hann.
Loks vil ég svo geta þess, að áhugi hefur vaknað fyrir því hér sunnanlands að framleiða rafmagn með gufuafli, eins og rætt er um í Kröflu, og skapar það að sjálfsögðu aukin verkefni fyrir slíkan bor. Mér skilst, að það geti einnig komið til álita, að fá bor af þessu tagi leigðan erlendis frá. Það mun þó vera dýrara, þegar á dæmið er litið í heild, heldur en beinlínis að kaupa borinn nú, þar sem leigan er mjög há. Hins vegar ætti að vera auðvelt að selja borinn, ef ekki er þörf fyrir hann.
Ég legg til, herra forseti, að till. verði vísað til fjvn.