05.03.1974
Sameinað þing: 64. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2513 í B-deild Alþingistíðinda. (2318)
222. mál, boð til Alexanders Solzhenitsyn um búsetu hér á landi
Flm. (Pétur Sigurðsson):
Herra forseti. Ég hef lengi velt því fyrir mér og þá frá sjónarmiði þess, sem bæði þekkir til og hefur kynnst slíkum hlutum, hvað það sé, sem valdi því, að einstaklingur og stundum lítill hópur manna gengur svo fram, þegar hætta steðjar að öðrum en þeim sjálfum, að þeir setja eigið líf í bráða hættu, stundum svo, að fram undan virðist opinn dauðinn og ekkert fái bjargað nema yfirnáttúrlegir líkams- og sálarkraftar, auk þess sem einskærar tilviljanir virðast í mörgum tilfellum ráða, hvort um líf eða dauða sé að tefla. Engin þjóð á betur að vita um slíka reynslu en einmitt Íslendingar. Barátta okkar Íslendinga við þau náttúruöfl. sem er barist við á hafinu af sjómönnum og á landi af fólki, sem býr t.d. á hinum erfiðu stöðum, sem búið er á hér á landi, — þessi barátta er tíðari og það er öflugri mótstaða, sem þetta fólk fær, heldur en gerist t.d. hjá okkar nágrannaþjóðum. Ég hef sérstaklega dregið fram þetta atriði á sjó, en auðvitað, eins og ég hef þegar tekið fram, þekkjum við þetta líka á landi. En sú spurning hlýtur að koma upp: Hvað veldur þessu? Hvað veldur þessum viðbrögðum þessara manna? Er þetta heimska eða hugrekki? Og þá mætti þá kannske segja til viðbótar: Hvað er þetta hugrekki? Er þetta vit eða vitfirring? Er þetta vinátta við þá, sem í hættunni og erfiðleikunum standa, eða er það einhver innibyrgður vilji til sjálfstortímingar?
Allar þessar spurningar og hundruð annarra kom upp, þegar mál Alexanders Solzhenitsyns er rætt. Það veit ég, að allir aðrir rithöfundar taka undir, að það lýsir miklu hugrekki, að einstaklingur í Sovétríkjunum, sem sjálfur hefur reynt þrælavinnubúðafyrirkomulagið þar í ríki á annan áratug, skuli hafa hug og þrek til að berjast fyrir þeirri frjálsu hugsun og frelsi einstaklingsins, sem hann hefur gert, að þessi maður skyldi voga sér, eftir það sem undan var gengið, með þrjú kornung börn sín á framfæri og fósturson, að ráðast einn með að vísu samhjálp nokkurra mikilmenna andans — gegn ómanneskjulegu þjóðskipulagi, sem annar Nóbelsverðlaunahöfundur, Halldór Kiljan Laxness, hefur lýst að væri fasismi, og að þessi sami maður skyldi verða sigurvegari í okkar augum, sem stöndum fjær. Þetta er meira en hugrekki í mínum augum. Þetta er meira en hugrekki þess, sem fer á stað með þetta. Þetta er það, sem ég tel hreysti þess, sem sigrar. Og ég held, að Alexander Solzhenitsyn hafi sigrað í sinni baráttu. Auðvitað vita allir, að þessi heimsfrægi rithöfundur harmar þau örlög, sem honum voru búin með dómi þess eina réttar, þess einræðisfyrirkomulags, sem ræður í Sovétríkjunum. Með þessum dómi, sem orsakar hans brottflutning, er hann sviptur tengslum við sína eigin þjóð, við vini sína og fósturjörð og máske einnig við fjölskyldu sína, — við vitum ekki um það enn þá. Þau örlög þessa manns, sem auðvitað verður ekki talinn annað en einn með mestu andans mönnum á þessari öld, og höfum við þó marga slíka til viðmiðunar, m.a. hér á Íslandi, sem hafa boðið sig fram sem slíka, — þau örlög hljóta auðvitað að beina hug okkar Íslendinga að örlögum forfeðra okkar, sem gengu þessum sömu örlögum á vald, m.a. vegna þess, sem hefur verið orðað sem hugrekki, — eða örlagavaldur, eins og einhver góður maður orðaði það einu sinni, — en kannske þvert gegn staðreyndum bæði náttúruafla og þess, sem varð séð fyrir, að mundi valda þeirra dauða, eða þá því, sem ég vitnaði til fyrst í máli mínu, að þeir fórnuðu sjálfum sér og máske öðrum til björgunar þeim, sem verr voru á vegi staddir.
Nú er ég einn af þeim, sem hafa marglýst því yfir, og ég hef marglýst yfir, bæði erlendis og hér heima, að ég hef enga trú á því, að það fólk, að íbúar Sovétríkjanna sjálfra, sem ég hef — guði sé lof — mörgum kynnst og að öllu góðu, — að þetta fólk hafi á nokkurn hátt, hvorki með því að sýna það í framkomu né að það hafi það í hugsun, að það vilji heyja styrjöld við einhverja nágranna sína eða fjarlægar þjóðir og allra síst kannske hin kapítalísku ríki, þótt sumir haldi, að svo sé. Ég held, að þetta sé alrangt. Ég átti kost á því fyrir mörgum árum, rétt eftir síðustu heimsstyrjöld, að kynnast nokkuð alþýðumönnum í Rússlandi, og þau kynni voru mér ákaflega geðþekk. Ég átti kost á því á s.l. sumri að kynnast enn fleiri úr þeirri stétt, og þau kynni voru enn geðþekkari í mínum huga. Og ekkert er mér fjarlægara en halda, að þetta fólk óski eftir því að standa í einhverjum styrjöldum eða öðru slíku gagnvart nágrönnum sínum eða öðrum, sem í okkar heimi eru. M.a. dreg ég það af því, þegar ég kom í hinn fræga kirkjugarð í Leningrad, þar sem grafin eru lík milljón manna, sem stóðu í því að verja Leningrad á sínum tíma gegn árás nasista, og þegar við áttum þess kost, þeir sem þá voru þar á ferð, að kynnast því og sjá það, sem ég hafði reyndar séð nokkuð mörgum árum áður, að sjá það fólk, sem enn þá mundi þær hörmungar, sem dundu yfir þeirra borg og land. Auðvitað dettur engum það í hug, að þetta geti komið til vegna óska þessa fólks. Ég held, að það sé enginn maður svo vitlaus að halda það.
Það er hins vegar skipulagið hjá þessari þjóð, það er þjóðskipulagið, það er einræðið, það er kúgun hugans, það er kúgun skoðana, það er það, sem við kannske hræðumst mest hér á Vesturlöndum, sem viljum og höfum reynt að halda okkar frelsi, m.a. gegn því, sem við sáum fyrir í stríðslok og sjáum enn fyrir, með því að ganga í varnarbandalag með öðrum þjóðum. Og hvernig eigum við að geta gert annað, þegar við höfum það fyrir framan okkur einn af þekktustu og virtustu höfundum heimsins í dag, Nóbelsverðlaunahöfundinn Alexander Solzhenitsyn, sem m.a. hefur ásamt Morgunblaðinu á Íslandi upplýst það, að þetta þjóðskipulag í Sovétríkjunum stendur á þeim merg, að það þurfi vinnubúðaþræla til þess að standa undir hagvexti þar? Ég leyfi mér að spyrja þá, sem vilja gylla þetta þjóðskipulag: Er þetta það, sem koma skal? Eða eru einhverjir rithöfundar á Íslandi, sem máske vilja taka upp slíkt þjóðskipulag til þess að koma verkum sínum á framfæri og þá kannske að aðrir, sem verr eru settir, séu fluttir úr landi, að þeir séu kannske settir með valdi upp í Loftleiðaflugvél og þeir séu settir út einhvers staðar á viðkomustað og sagt: Hér skalt þú vera. Þú ert sviptur ekki aðeins landsréttindum, sviptur vinnuréttindum, þú ert sviptur öllum réttindum? — Enga trú hef ég á því, að nokkur Íslendingur vilji þetta. Hitt er annað mál, að við verðum að hafa það í huga, að sú þróun, sem hefur átt sér stað í þessu stóra ríki, sem við skulum ekki segja annað hér á Íslandi heldur en hafi verið okkur vinveitt í sambandi við viðskipti, þótt mörgum þyki kannske nokkuð hallað undir flatt upp á síðkastið, m.a. máske vegna þeirra undirskrifta, sem hafa átt sér stað hér á Íslandi, þar sem er mótmælt brottför varnarliðsins, sem ég tel þó að þeim ágætu mönnum komi ekkert við frekar en öðrum, þetta er innanríkismál okkar. En það hafa hins vegar ýmsir aðilar tekið þar til máls og komið að máli við okkar ráðamenn og sagt: Þið eigið að gera öðruvísi, - vegna þess að þeir kannske töldu, að við Íslendingar ættum að haga okkur og hugsa öðruvísi en við höfum gert.
Staðreyndin hlýtur að vera ljós fyrir þá, sem horfa á úr fjarska. Hún er sú, að það er hvorki einstaklingurinn né Nóbelsverðlaunahöfundurinn, sem hugsað er um, þegar hann er tekinn úr samstöðu við sína þjóð og fluttur úr landi. Hins vegar er verið að reyna að breiða yfir það, að hann hefur upplýst öllum öðrum frekar um þá staðreynd, að þrælabúðalíf viðgengst enn þá í Sovétríkjunum og allt það, sem sagt hefur verið um þá ömurlegu staðreynd á undanförnum áratugum, er satt og rétt.
Auðvitað er öllum kunnugt, hver örlög hafa verið búin Alexander Solzhenitsyn nú á síðustu dögum, — örlög, sem stjórnarfar og ráðamenn Ráðstjórnarríkjanna hafa búið honum og fjölskyldu hans, sem er kannske hvað ömurlegast. En ég held, að hinu verði ekki á móti mælt, að baráttuþrek þessa einstaklings hafi vakið óskipta athygli og aðdáun. Hann hefur af óbilandi kjarki barist gegn misbeitingu þess, sem við köllum lögregluvald, — og við köllum það misbeitingu lögregluvalds, hvar í heimi sem það er, hvort sem það var austan haft eða vestan, — fangabúðaþrælkun, sem við heyrum ekki sögur um nema að austan. En hann hefur líka barist fyrir rit- og skoðanafrelsi. Hann hefur barist gegn stjórnarháttum, sem eru á móti þessu hvoru tveggja og hann hefur barist á móti þeim stjórnarháttum, sem hafa látið í sér heyra öðru hvoru á undanförnum áratugum, t.d. með atburðunum í Eystrasaltsríkjunum, þegar þau voru bundin í ánauð, með vopnuðu ofbeldi gegn verkamönnum bæði í Póllandi og Austur-Þýskalandi, með blóðinu í Ungverjalandi og með vopnaðri innrás í Tékkóslóvakíu og nú með þessari tilraun til að drepa Alexander Solzhenitsyn bæði andlega og út á við, ef ég mætti orða það svo í mjög veikum orðum.
Við Íslendingar eigum einn rússneskan fósturson. Það er maður, sem er heimsfrægur vegna sinna lista. Hann hefur stundum verið kallaður tengdasonur Íslands, giftur íslenskri listakonu með íslenskan ríkisborgararétt samkvæmt ákvörðun Alþingis Íslendinga, börn sín íslensk, og með þá heitustu ósk hans sjálfs, að faðir hans aldraður fái að koma í heimsókn til Íslands, þess föðurlands, sem hann hefur valið sér, eftir að hann slapp úr fangelsinu stóra, m.a. til að sýna afa barnanna sinna, hver þau væru, hvernig þau litu út. Þessi maður hefur ekki fengið fararleyfi, jafnvel þó að tengdasonur Íslands eigi í hlut. Hins vegar hefur þessi maður okkar íslensku þjóðar sagt það, og hann hefur sagt það við opinbera fjölmiðla, að það væri stærsti vináttuvottur, sem hægt væri að gera við þetta mesta andans stórmenni í dag, Alexander Solzhenitsyn, að við byðum honum það, sem við leggjum hér til með okkar till. Vegna hvers? Jú, hann kann hvergi við sig í fjölmenni. Hann vill vera á norðlægum slóðum. Hann vill vera í fámenni. Hann vill vinna að sínum ritstörfum. Og það væri verulegur bústaður fyrir hann að vera móti gamla kommúnistanum, — gamla sósíalistanum vildi ég nú frekar kalla það og leiðrétti mín orð hér með, — Halldóri Kiljan Laxness uppi í Mosfellssveit, og mætti íslensk þjóð einhvern tíma búa við þá staðreynd, að þessir tveir Nóbelsverðlaunahafar byggju þar.
Ég minntist á það og hef heyrt getið um það, að Valdimir Ashkenazy, sá hinn heimsfrægi listamaður, hafi sagt þessi orð, sem ég vitnaði til. Og ég vil líka undirstrika þau orð hans, að það væri sérstakur vináttuvottur við alla þá, sem stæðu í baráttunni við þetta ómanneskjulega vald, sem m.a. við Íslendingar eigum að vera hreyknir af að berjast gegn, — þetta ómanneskjulega vald stjórnunarmanneskjunnar, sem við, sem höfum flutt þessa till., viljum m.a. taka undir, að við séum á móti, með því að óska eftir því, að Alþingi Íslendinga samþykki till.
Ég held, að það væri tímabært að láta skrá hér í þingsögu Íslendinga, hvað þessi tengdasonur Íslands hefur sagt á alþjóðavettvangi, og því leyfi ég mér, herra forseti, að vitna nokkuð til orða hans, auk þessara orða, sem ég hef þegar haft um, að það væri stærsti vináttuvottur, sem hægt væri að sýna Alexander Solzhenitsyn nokkru sinni, ef eitt þjóðþing samþykkti, að honum væri það boðið, sem við leggjum nú til. Hann segir m.a. í viðtali, sem hann átti við eitt af dagblöðunum hér í Reykjavík, og ég vænti, að enginn fari að gagnrýna það, að rétt sé með farið, þótt ég kannske geti búist við, að svo verði síðar meir, — en með leyfi forseta, segir Vladimir Ashkenazy á þessa leið:
„Fyrstu viðbrögðin við síðustu atburðum varðandi Alexander Solzhenitsyn eru þau, að brottvísun hans úr landi sé hápunkturinn í baráttu flokksins gegn sérhverri tilraun fámenns hóps hugrakkra Rússa til að segja sannleikann og dreifa sönnum upplýsingum. Hjá því verður ekki komist að álita enn á ný, að í þessum aðgerðum felist enn ein hreinskilin viðurkenning á öryggisskorti af hálfu ríkjandi einræðisstjórnar. Eina leiðin til að viðhalda óbreyttu ástandi er að varpa rýrð á virðingu og verk Solzhenitsyns, m.ö.o. að lýsa hann lygara, föðurlandssvikara og þar af leiðandi fjandmann þjóðarinnar. Sú leið að láta hann halda áfram starfi sínu, jafnvel undir stöðugum ofsóknum, hafði stöðugt meiri áhættu í för með sér, þar sem áhrif hans jukust svo ört og voru orðin yfirvöldunum sú ögrun, sem krafðist svars. útilokað er orðið að virða að vettugi ásakanir hans í garð yfirvaldanna, og nú vitum við svar þeirra. Efni og inntak aðgerða sovéskra yfirvalda er beint til þjóðarinnar, og meining þeirra er: Enginn hefur heimild eða fær heimild til að segja neitt það, sem flokkurinn telur ekki rétt eða ekki viðeigandi. — Afleiðingin, sem beitt var við aðgerðirnar, á að höfða til vestrænna ríkja og segja þeim: Sjáið, hvað við erum mannúðlegir. Við sleppum honum heilum á húfi vestur yfir, og þar getur hann án efa fengið að lifa þægilegu lífi.“
Og áfram heldur Vladimir Ashkenazy: „Það er mikils virði að láta ekki blekkjast af þessari mannúð. Þetta er ítarlega íhuguð mannúð og ekkert annað. Helst hefðu yfirvöldin viljað varpa Solzhenitsyn í sitt illræmda fangabúðaútlegðarkerfi. En hann er of þekktur og nýtur óvenjulega öflugs og almenns stuðnings í öðrum hlutum heims. Hugsanlegt píslarvætti hans í fangelsi yrði sovéskum yfirvöldum of þung byrði að bera. Möguleikar sovésku stjórnarinnar á að fá vilja sínum framgengt á öryggisráðstefnu Evrópu og varðandi bætta sambúð ríkja yrðu enn minni en þeir hafa verið til þessa. Þess vegna kom fangelsi ekki til greina.“
Og áfram heldur Vladimir Ashkenazy, þessi heimsfrægi listamaður, sem í sjálfu sér er flóttamaður frá þessu sama ríki, — hann segir:
,,Við megum ekki gleyma þeim tugum minna þekktra manna í Sovétríkjunum, sem hafa látið lífið og eru að því í fangelsunum, á geðveikrahælunum fyrir jafnvel enn minni sakir en Solzhenitsyn, heldur minnast þeirra, þegar við dæmum þessar nýjustu aðgerðir stjórnvaldanna.“
Ég skal ekki hafa frekari tilvitnanir í þessi ummæli Ashkenazys. Ég vil þó minna á það, að þessi maður hefur m.a. orðað það, sem hefur skeð á þessum vettvangi, sem harmleik. Og þetta er harmleikur, að það skuli geta gerst í hinu mesta vísinda- og að nokkru leyti menningarríki allra þjóða, Sovétríkjunum, að þau skuli geta leyft sér að setja einn af mestu andans mönnum þeirra upp í flugvél og segja: „Þú ferð úr á næsta áfangastað, og þú mátt aldrei koma hingað aftur.“ Þetta er eitt af því ómanneskjulegra, fyrir utan allt hitt, sem áður hafði skeð, og sem við hér á landi þekkjum í sögu frjálsrar hugsunar, frá því að þeir voru að brenna þá á torgum í Róm og hengja þá á dögum nasistanna og brenna bækur þeirra. Það er auðvitað það, sem komið hefur í dagsins ljós með þennan höfund í Sovétríkjunum, að hann hefur ekki fengið að birta sín ritverk þar, eftir að það fyrsta var birt, heldur hafa þau verið bönnuð, en hins vegar pöntuð bönn bæði á hann sjálfan, fjölskyldu hans og ritverk.
Við Íslendingar höfum fyrir okkur ákveðnar staðreyndir, sem ég hef þegar bent á, sumar og við eigum ekki að gleyma því hér á þjóðþingi Íslendinga, að fólk um alla veröld hefur fylgst með þessari herferð gegn þessum sovéska rithöfundi. Við, sem kunnum slíkt að meta, og allur heimurinn höfum dáðst að einstöku andlegu og reyndar líka líkamlegu þreki þessa manns, sem hefur leyft sér að bjóða stjórnendum annars voldugasta ríkis veraldar byrginn. Og það er auðvitað ekkert gleggra dæmi um einræðisstjórn kommúnismans, en þegar einstaklingur, sem hefur þor til að tjá hugsanir sínar, er lagður undir vald allrar Sovétstjórnarinnar og hún gripur til þess ráðs að svipta hann ríkisborgararétti og reka hann úr landi — og ekki aðeins reka hann úr landi, heldur flytja hann nauðugan úr landi. Það er staðreynd í framhaldi af þessu, að þetta skipulag í Sovétríkjunum, — og ég undirstrika aftur mín fyrri orð um almenning og alþýðu manna, sem þar lifir, en þetta skipulag gat ekki þolað þennan rithöfund, það gat ekki þolað Alexander Solzhenitsyn, og þeir komust líka að þeirri niðurstöðu, þeir sem þar ráða ríkjum, að hann væri betur geymdur í útlöndum heldur en í þrælabúðunum, sem allir vita, að fylgja þessu þjóðskipulagi, eða í fangelsunum mörgu í Moskvu, sem eru líka til. En staðreyndin er sú, þegar þeir hinir mörgu, sem tala gegn fasisma og fasistísku stjórnarfari, tala sem hæst, þá eru þeir líka að tala gegn þessu sama stjórnarfari, því að þetta er nákvæmlega hið sama. Það er sama fasistíska hugarfarið, sem ræður ríkjum í þessu ríki, þessu þjóðfélagi, og annars staðar í heiminum, sem stundum er vitnað til.
Ég held, að okkur Íslendingum væri gott að hafa það í huga, að það getur verið gott stundum í ríkjum, þaðan sem engar fréttir berast, annaðhvort að skjóta menn eða hengja þá eða fela þá í fangelsum. En það getur líka verið hættulegt að hafa þá innan sinna vébanda í sínu eigin ríki. Þess vegna var Alexander Solzhenitsyn fluttur úr landi. En við skulum muna, það, og veit ég, að margir á hv. Alþingi Íslands munu muna, að það er erfitt að stinga upp í rithöfunda og ekkert kemst viðar eða meðal fleiri heldur en einmitt það, sem rithöfundur lætur fara frá sér. Við vitum, að ritverk Alexanders Solzhenitsyns verða ekki stöðvuð héðan í frá, boðskapur hans eða upplýsingar hans. Enda var það ekki að ófyrirsynju, þó að sumir vilji meina annað, þegar illa stendur á fyrir þeim, að Svíar veittu honum Nóbelsverðlaunin. Held ég, að allur heimurinn viðurkenni í dag ritverk hans og bókmenntaleg afrek.
Ég ætla ekki að gera lítið úr því, að þessi rithöfundur mun auðvitað valda þáttaskilum í heiminum, og vonandi mun hann gera það innan síns heimalands, þar sem bann bendir m.a. á, að það þjóðskipulag, sem hann átti sjálfur þátt í að byggja upp og byggði upp, var ekki annað en það, sem hann barðist sjálfur á móti í heimsstyrjöldinni síðari, það var sjálfur fasisminn. Það var sú yfirskilvitlega stjórnun fámenns hóps, sem gat haft í höndum sér líf og heilbrigði og alla trú á framtíðina. Það gátu þessir menn haft í höndum sér með því að stjórna eins og þeir stjórnuðu.
Herra forseti. Við flm. segjum í okkar till., orðrétt, með leyfi forseta, að þessi rithöfundur hafi verið fluttur nauðugur frá ættlandi sínu, sviptur þar öllum réttindum. Við segjum enn fremur, að sérhverri lýðfrjálsri þjóð beri skylda til að bjóða honum alla þá aðstoð, sem í té má láta, og fyrir því er þessi till. fram borin, ef Solzhenitsyn vill þiggja boð okkar. Sjálfstæðisog frelsiskennd hefur ávallt verið aðalsmerki íslensku þjóðarinnar, og við ljúkum þessari greinargerð okkar á þeim orðum, að við bjóðum með einlægum hug þessu stórmenni andans þau réttindi, sem þjóðin á dýrmætust, og það er búseta og þegnréttindi í hinu lýðfrjálsa landi — Íslandi. Við teljum, að þeir, sem vilja tjá sig í orði eða á borði, eigi hvergi betri aðstöðu en á Íslandi. Við eigum eitt andans stórmenni, sem hefur flúið frá þessu sama landi hingað og telur sig sælan að eiga hér aðsetur sem slíkan. Ég skal fúslega viðurkenna, að með þessari till. erum við máske, ef hún verður samþykkt, að firra einhverjar aðrar þjóðir ábyrgð, sem þær eiga ekki síður að bera, þegar slíkur maður lendir á þeim hrakhólum sem hann er í dag, gegn þessu, eins og ég hef áður orðað það, ómanneskjulega þjóðskipulagi. En ég held samt sem áður, að það væri bæði göfugt og gott verk fyrir íslensku þjóðina eða þjóðþing íslensku þjóðarinnar að samþykkja þessa till. Við skulum ekki gleyma því, um leið og við tölum oft frjálslega í ræðum, — ég tala nú ekki um okkar forustumenn á Norðurlandaráðsþingum, og við þekkjum mikið til Norðurlandabókmennta, — að við Íslendingar þekkjum ekki minna til rússneskra bókmennta og máske hafa rússneskar bókmenntir ekki haft minni áhrif á okkar rithöfunda og ritverk okkar Íslendinga en bókmenntir Norðurlandaþjóðanna, og má vera, að sumir þeir, sem hér eru inni, þekki eitthvað til þess.
En áður en ég lýk máli mínu, verður auðvitað að koma að því, sem hlýtur að vera mál málanna líka, og það er sú einstaka staðreynd, að enginn utan einn maður í einu dagblaði þjóðarinnar skuli minnast á það, hafandi í huga, að stór hópur þjóðarinnar yrði æpandi og skrækjandi út af áhrifum, sem kæmu frá sjónvarpi og útvarpi frá Keflavík, að áróður hefur verið leiddur út meðal þjóðarinnar frá erlendri áróðursmiðstöð, rússneskri áróðursmiðstöð, sem m.a. hefur gert það hér á landi að ráðast gegn stærstu þjóð heimsins, Kínverjum, og dreifa meðal Íslendinga áróðri gegn þjóð, sem hefur verið okkur hvað vinsamlegust í okkar landhelgismáli á erlendum vettvangi, meðan sú hin sama þjóð, sem breiðir þetta út, hefur ekki einu sinni látið neitt í té um það að hún muni styðja okkur, en hins vegar allt annað. Einum enskum fréttasnigli var vísað úr landi réttilega á sínum tíma. Hví í ósköpunum tekur ekki íslenska ríkisstj. og þeir, sem nú hafa völd, sig til og vísa þessum mönnum úr landi voru, þegar þeir líka ráðast að þessum manni, sem ég kalla mesta andans stórmenni, sem hefur komið fram á þessari öld, Alexander Solzhenitsyn? Bæði til að mótmæla því, sem kemur fram hjá þessum aðilum, þessari áróðursmiðstöð, og til þess að taka undir það, að við viljum hafa sjálfstæða utanríkisstefnu, þá tel ég, að Alþingi Íslendinga eigi að samþykkja þessa till. okkar þessa ályktun um, að ríkisstj. verði falið að bjóða rússneska rithöfundinum Alexander Solzhenitsyn og fjölskyldu hans búsetu á Íslandi með fullum þegnréttindum.