05.03.1974
Sameinað þing: 64. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2520 í B-deild Alþingistíðinda. (2319)
222. mál, boð til Alexanders Solzhenitsyn um búsetu hér á landi
Svava Jakobsdóttir:
Herra forseti. Það er áreiðanlega alveg hárrétt, sem kom fram í ræðu hv. þm. Péturs Sigurðssonar, að okkur Íslendingum er í blóð borið að standa vörð um frelsi andans og frelsi á öllum sviðum. Þess vegna er það mjög undarlegt, að þeim, sem tala máli Solzhenitsyns, virðist illa við, að málið sé rætt á víðtækari grundvelli og að menn reyni að sýna viðsýni varðandi vandamál, sem er stórfellt harmrænt vandamál fyrir rithöfunda hvarvetna í heiminum. Þegar Alþb.-menn hafa fordæmt aðgerðirnar gegnvart Solzhenitsyn, hefur Morgunblaðið ætlað að ærast af geðvonsku, í stað þess að gleðjast yfir því að eiga bandamenn til að standa vörð um þetta frelsi andans, sem þeir bera svo mjög fyrir brjósti. Ég held, að mér sé óhætt að fullyrða, að þetta sé í algjörri andstöðu við þann málflutning, sem alþjóðasamtök rithöfunda nota í sinni baráttu. A vegum alþjóðasamtaka rithöfunda, Penklúbbsins, er starfandi nefnd, sem berst fyrir hinu frjálsa orði, sem best í þágu rithöfunda, sem fangelsaðir hafa verið hvarvetna um heim, sem berst í þágu fjölskyldna þessara manna, sem hafa hvorki til hnífs né skeiðar langtímum saman. Á vegum þessarar nefndar er starfandi sjóður. Nóbelsverðlaunaskáldið Heinrich Böll gaf 10% af Nóbelsverðlaunum sínum í þennan sjóð með þeim fyrirvara, að þeim skyldi varið til hjálpar þessum rithöfundum, hvar í heimi sem væri, án tafar, vegna þess að þörfin væri svo brýn. Fyrir tæpu ári átti ég þess kost að sitja fund framkvæmdanefndar Penklúbbsins í Stokkhólmi. Í sambandi við þennan fund voru haldnar hringborðsumræður, sem stóðu í þrjá daga, og var boðið þangað mörgum helstu rithöfundum heims. Þangað hafði boðað komu sína gríska skáldið Yannis Ritsos. Á síðustu stundu sendi hann afboð, vegna þess að hann hafði rökstudda ástæðu til að ætla, að stjórnvöld landsins mundu ekki hleypa sér aftur heim. Á þetta þing átti að koma formaður gríska Penklúbbsins Coutsoheras. Hann gat ekki einu sinni sent afboð, því að fáum dögum fyrir brottförina var honum svo misþyrmt af fasistalögreglunni í Grikklandi, að hann var kominn á spítala, hafði misst sjón á öðru auga, og var hætt við, að hann yrði alveg blindur. Hins vegar kom gríska skáldið Vassiii Vassiiikos á þingið, vegna þess að hann er útlagi í París. Þar var hann staddur, þegar gríska herforingjastjórnin tók völdin, og var ekki þorandi fyrir hann að snúa aftur heim. Á þetta sama þing hafði boðað komu sína tyrkneska skáldið Yasar Kemaí, — ég get upplýst hv. síðasta ræðumann um, að þetta eru allt mjög frægir rithöfundar, — á þetta sama þing hafði boðað komu sína tyrkneska skáldið Yasar Kemal. Á síðustu stundu sendi hann afboð, því að kona hans átti yfir höfði sér handtöku fyrir að hafa þýtt nokkrar greinar, sem stjórnvöldum landsins þóttu vinstri sinnaðar, og hann þorði ekki að skilja hana eina eftir í landinu.
Ég vildi beina þeim tilmælum til hv. flutningsmanna þessarar till. og þeirra, sem fjálglegast hafa talað um það „varnarbandalag“, sem við erum aðilar að, hvort þeir gætu ekki beitt áhrifum sínum til að þessir bandamenn þeirra hætti þessum ofsóknum. Ég trúi ekki öðru en að NATO færi að óskum hv. þm. Péturs Sigurðssonar og Sverris Hermannssonar að því leyti, og ég trúi ekki öðru en að hugur þeirra sjálfra standi til þess að reyna að hjálpa þessum mönnum, eftir allt, sem þeir hafa sagt. (Gripið fram í.) Ég býst ekki við, að hv. þm. þurfi leyfi mitt til þess. Ef hann kemur með brtt., er honum það í sjálfsvald sett.
Ég geri ráð fyrir því, að ég sé nánast komin undir fallöxi Morgunblaðsins, því að í Reykjavíkurbréfinu síðasta sunnudag eða sunnudaginn þar á undan, í grein um mál Solzhenitsyns, voru höfð stór orð um þá rithöfunda, sem dirfðust að ræða mistök á Vesturlöndum í sömu andrá og ofsóknir í Sovétríkjunum. Og Morgunblaðið sagði: „Það verður fylgst með þeim mönnum, sem jafna saman ofsóknum í Sovétríkjunum og mistökum á Vesturlöndum.“ Hvað er þetta? Er þetta ekki hótun? Hvernig verður fylgst með þeim og hvað verður gert? Það væri gott ef Morgunblaðið vildi hugsa hugsun sina til enda og upplýsa okkur um það, hverjar verða afleiðingarnar fyrir þá, sem dirfast að ræða málið út frá þeim hliðum, sem þeir kjósa sjálfir.
Herra forseti. Ég hef talið nauðsynlegt að draga þetta fram, bæði til þess að lýsa yfir andúð og viðbjóði á sýndarmennsku í málflutningi Morgunblaðsins og sjálfstæðismanna, þegar þeir ræða um frelsi andans, — það frelsi andans, sem á ekki að þekkja nein landamæri, og vegna þess, að ég tel nauðsynlegt, að þetta vandamál sé gert Íslendingum miklu kunnara en það virðist vera. Ég álít það ekki sæmandi menningarþjóð að deila á andstæðinga fyrir það, að þeir skuli taka málið upp á víðsýnni og víðtækari grundvelli.