06.03.1974
Neðri deild: 73. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2551 í B-deild Alþingistíðinda. (2344)

252. mál, jarðræktarlög

Fjmrh. (Halldór E. Sigurðsson):

Herra forseti. Frv. á þskj. 440 er flutt í samræmi við frv. á þskj. 441 um breytingar á Stofnlánadeild landbúnaðarins. Er það tengt þeirri breytingu, sem fyrirhugað er að gera í sambandi við það að leggja Landnám ríkisins niður. Með frv. þessu er lagt til, að framlag til byggingar og endurnýjunar gróðurhúsa, sem greitt hefur verið samkv. lið í 61. gr. l. nr. 45 16. apríl 1971, um Stofnlánadeild landbúnaðarins, landnám, ræktun og byggingar í sveitum, verði greitt með öðrum framlögum til jarðræktar og húsabóta samkv. jarðræktarlögum. Er það í samræmi við það, sem gert hefur verið áður um breytingu á jarðabótastyrk, sem nú er að öllu leyti greiddur út á vegum Búnaðarfélags Íslands og í einu lagi.

Ég sé ekki ástæðu til að orðlengja þetta frekar, en legg til, að frv. verði vísað til 2. umr. að lokinni þessari umr. og hv. landbn.