06.03.1974
Neðri deild: 73. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2559 í B-deild Alþingistíðinda. (2350)

253. mál, Stofnlánadeild landbúnaðarins

Fjmrh. (Halldór E. Sigurðsson):

Herra forseti. Á þskj. 441 er frv. til l. um breyt. á l. um Stofnlánadeild landbúnaðarins, landnám, ræktun og byggingar í sveitum. Ég hafði hugsað mér að fylgja þessu frv. úr hlaði með nokkrum orðum, en ekki langri ræðu, en að vísu sé ég, að það er á margan hátt óþarfi, því að hv. 1. þm. Sunnl. hefur tekið það ómak af mér. Munu þess fá dæmi í hv. d., að mál sé tekið til meðferðar, áður en það er raunverulega tekið til umr., eins og þessi hv. þm. gerði. Raunar var nú betur en það, því að hann tók einnig til meðferðar mál í hv. Ed., sem þar hefur verið til meðferðar. Hv. þm. gat betrumbætt þetta allt saman, svo að ekki reyndist honum neitt erfitt að fást við öll þessi mál, sem eru til umr. eða hugsanlega koma til meðferðar hér í hv. d., á einum og sama vettvangi.

Það er alllangt síðan ég lét þá skoðun í ljós hér á hv. Alþ., að ég teldi, að rétt væri að leggja niður Landnámið sem sérstaka stofnun í þessu landi. Það var meðan ég var í stjórnarandstöðu og hv. 1. þm. Sunnl. var landbrh., sem þessi skoðun mín var látin í ljós. Ég lét þá líka í ljós þá skoðun, að hægt væri að leggja niður Vélasjóð ríkisins. Mundi vera hægt að sinna þeim verkefnum alveg eins vel eftir sem áður, vegna þess að verkefnin og möguleiki til að leyst þau væru gerbreytt frá því, sem verið hefði, þegar þessar stofnanir hefðu verið settar á stofn. Það var ekki af vanmati á þessum stofnunum eða starfi þeirra manna, sem við þær hafa unnið, sem ég lét þessa skoðun mína í ljós, heldur hinu, að það bæri nauðsyn til að reyna að þjappa saman í ríkiskerfinu, eins og mögulegt væri. Það heyrist a.m.k. stundum um það rætt að of lítið sé að því gert. Þess vegna kemur það á óvart, ef verið er að reyna að gera tilraun í þá átt, þegar viðbrögðin eru slík, að á móti er talað, áður en fyrir slíku máli er talað.

Það frv., sem hér er til meðferðar nú og ég tala fyrir við 1. umr., er afleiðing af þeim frumvörpum og þeim lögum, sem áður hafa verið afgreidd og ganga í þá átt að fá einum og sama aðila verkefni, en ekki skipta þeim milli margra stofnana. Þannig var gert með jarðræktarl., að þar var horfið að því ráði, að styrkur sá, sem veittur er til jarðræktar í landinu, er nú allur greiddur á vegum Búnaðarfélags Íslands, og eins fer styrkur sá, sem greiddur er vegna húsbygginga, í gegnum Stofnlánadeild landbúnaðarins. í Búnaðarbankanum. Þetta frv. gengur því í sömu átt og var upp tekið með þeirri stefnu, sem þá var mörkuð, og er framhald af henni.

Það er ekki ætlunin með þessu frv., að dregið verði úr þeirri þjónustu, sem Landnám ríkisins hefur annast til þessa, áætlanagerð og annað því um líkt, heldur verði aðeins um breytt vinnulag að ræða þar að lútandi, en ekki að eigi að draga úr þessum áætlanagerðum, heldur að vinna að þeim áfram af engu minni orku en gert hefur verið, og ber ekki að vanmeta það, sem Landnámið hefur gert í því efni.

Þetta frv. kveður á um það í 2. gr. og gerir skýrara ákvæðið um hlut ríkisins til greiðslu á mótframlagi vegna stofnlánadeildargjaldsins, vegna þess að það þótti ekki nógu tvímælalaust, hvernig taka ætti niðurgreiðslurnar til greina í því sambandi, ef þær væru notaðar á landbúnaðarvörur. Hins vegar mun framkvæmdin hafa verið sú, að greiðslan mun hafa verið miðuð við verðlagið óniðurgreitt, en ekki við útsöluverð á niðurgreiddri vöru. Um þetta eru tekin af öll tvímæli með þeirri breyt., sem hér er gerð.

Hin breyt., sem er aðalefni þessa frv., er sú, að lagt er til. að Landnám ríkisins verði lagt niður sem sérstök stofnun. Er þá miðað við það að fela þau verkefni, sem það hefur nú með höndum, öðrum stofnunum, sem fyrir eru og vinna að þessum verkefnum einnig.

Það er kunnara en frá þurfi að segja, að Landnám ríkisins á margar jarðir, en ríkið á einnig mikið af jörðum, sem jarðeignadeild ríkisins fer með, og ekkert er eðlilegra en sameina þetta í eitt og láta jarðaeign ríkisins vera á einum og sama stað, enda fer best á því, að svo sé gert, bæði þegar litið er á málið frá sjónarmiði kostnaðar og einnig þegar litið er á málið frá því, sem er hagkvæmt fyrir þá, sem um þessi mál vilja vita og fjalla, og sé þá jarðaskráningin í landinu einnig á sömu hendi.

Þá liggur og fyrir Alþ. nú frv. til l. um heykögglaverksmiðjur, þ.e. heildarskipulag á uppbyggingu heykögglaverksmiðjanna. Það miðar einnig við það, að um heildarskipulag sé að ræða á þessum eignum ríkisins, sem heykögglaverksmiðjurnar verða. Ég geri það ekki að neinu stórmáli, hvort yfir hverri einstakri sé sérstök stjórn, en það verður að vera sameiginleg heildarstjórn fyrir þær allar til þess að sjá um þá höfuðþætti, sem eru sameiginlegir fyrir þessar heykögglaverksmiðjur.

Þá er gert ráð fyrir því í jarðalagafrv., sem hv. 1. þm. Sunnl. gerði hér mjög að umræðuefni áðan, að skipulag byggðar í sveitum verði fært heim í héruðin, og það fer alls ekki saman, að skipulag ríkisins eigi að fara með skipulag í sveitum. Ég vil líka segja, að það fer ekki heldur saman, að samtök sveitarfélaganna eigi að ráða nema að takmörkuðu leyti um sérmál sveitanna. Það vita allir, sem til þekkja, að í samtökum sveitarfélaganna ráða bæirnir og stærri kauptúnin meginmálunum, en sveitahrepparnir ekki. Þess vegna er ekki nema eðlilegt, að þau mál, sem sérstaklega varða þá, séu annar staðar en hjá slíkum samtökum. Það segir hins vegar ekki, að dregið skuli úr samstarfi, enda munu þær breytingar, sem hafa verið gerðar á frv. í Ed., hafa miðað í þá átt að tryggja betur þetta samstarf. Ég skildi ekki, hvað hv. 1. þm. Sunnl. taldi, að þar hefði gerst, sem væri sönnun þess, að frv. næði ekki fram að ganga.

Þá hefur jafnhliða þessum frumvörpum verið flutt frv. að nýjum ábúðarl., og inn í þetta fellur félagsræktun, stofnun nýbýla og endurbygging og sameining jarða, stofnun grænfóðurverksmiðja, eins og ég gat um, og úthlutun ríkisframlaga til landbúnaðarins samkv. þeim l., sem þar að lúta.

Það er því ekki nema eðlilegt, að þessi frumvörp, sem hér eru á ferðinni, séu fylgifiskar þeirra frv., sem er búið að leggja fram hér á hv. Alþ. í tengslum við þessi frumvörp.

Hv. 1. þm. Sunnl. gerði mikið úr því hér áðan um undirbúning að þessum málum, að nauðsyn bæri til, að menn fengju að fjalla betur um þau. Í því sambandi vil ég minna á, að þessi frv. voru lögð fram á hv. Alþ. á síðasta vetri, þá til kynningar. Þau hafa farið fyrir Búnaðarþing, þau hafa farið fyrir aðalfund Stéttarsambands bænda, og þau hafa verið kynnt á kjörmannafundum og fundum búnaðarsambanda. Og ég dreg í efa, að önnur frv., er landbúnað snerta, hafi verið meira kynnt en þessi frv. hafa verið. Hv. 1. þm. Sunnl. má svo hafa sína skoðun á þeim málum mín vegna, það breytir engu þar um.

Ég vil að lokum undirstrika það, að ég ætla ekki að fara að flytja hér langa ræðu eða fara í miklar kappræður um þessi mál, hafði ekki hugsað mér það, en hef að vísu eytt of miklum tíma í að víkja að því, sem hv. 1. þm. Sunnl. gat hér um áðan, vegna þess að efni frv. er svo einfalt, að það þarf ekki sérstakra eða margvíslegra skýringa við. Hinu geta hv. þm. haft misjafna skoðun á, hvort stefnan, sem tekin er með því, sé rétt eða rétt ekki. En ég vil að lokum endurtaka, að það, sem hér er verið að gera, er, að það er verið að reyna að sameina verkefnin hjá þeim stofnunum, sem fyrir eru í landinu, eins og Búnaðarfélag Íslands, landbrn. og slíkum stofnunum, og hafa ekki þriðju stóru stofnunina, sem fjallar um þessi mál sem öll ganga í sömu átt. Ég er líka sannfærður um það, að hvort sem þetta mál nær fram að ganga á þessu þingi eða ekki, þá nær það fram að ganga, því að hér er stefnt í rétta átt. Ég er líka sannfærður um það, að framkvæmdin á þessum málum verður auðveldari með þeim hætti en áður hefur verið. Hér er ekki verið að stefna að því að vega að einum eða neinum, heldur er verið að gera skipulagsbreytingu til hagræðis, miðað við þær aðstæður, sem við nú búum við. Það segir ekki, eins og ég tók fram áðan, að þessi mál séu ekki jafnnauðsynleg og þau voru, þegar um tilveru þeirra var upphaflega að ræða, og þau hafi lokið sínu verki. En eins og nú er komið, er ástæðulaust að vera með svo marga aðila, sem fjalla um sömu þætti, eins og hér hefur verið.

Ég legg svo til, herra forseti, að að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til 2. umr. og hv. landbn.