06.03.1974
Neðri deild: 73. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2562 í B-deild Alþingistíðinda. (2351)
253. mál, Stofnlánadeild landbúnaðarins
Pálmi Jónsson:
Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir til umr. á þskj. 441, hefur þann megintilgang, eins og fram kom í ræðu hæstv. landbrh., að leggja niður Landnám ríkisins. Frv. er væntanlega endahnykkurinn í málatilbúnaði hæstv. ríkisstj. og hæstv. landbrh, í þessu skyni. En eins og fram kom í ræðu hans og hv. alþm. er kunnugt, hafa verið flutt allmörg mál, er snerta landbúnaðarlöggjöfina, sem öll hafa að meira eða minna leyti þennan sama tilgang. Það skal því mikið við þurfa til þess að koma þessari ríkisstofnun fyrir kattarnef.
Hæstv. landbrh, sagði í ræðu sinni hér áðan, að meginmarkmiðið með þessum aðgerðum öllum væri að koma á bættu skipulagi og hnika þessum málum þannig til hagkvæmni og sparnaðar í ríkiskerfinu og jafnframt að gera þá þjónustu, sem veitt yrði, ekki minna virði fyrir landbúnaðinn og þá, sem hennar eiga að njóta. Hæstv. ráðh. skýrði frá því áðan, að hann yrði að mæla verið í þessu skyni, og ekki er mikil þörf á að endurtaka það. — Ég hlýt að harma það, ef hæstv. ráðh. er svo tímabundinn, að hann má ekki vera að því að sitja hér í salnum til að hlýða á umr. um þessi mál. Ég óska eftir því við hæstv. forseta, að hann léti kanna, hvort tími ráðh. er svo naumur, að hann geti ekki verið hér við umr. (Forseti: Ég vil geta þess, að hæstv. ráðh. skýrði frá því áðan, að hann yrði að mæla fyrir öðru máli í hv. Ed., og ég hygg, að hann sé bundinn í umr. þar nú. Hins vegar get ég orðið við tilmælum um að fresta um skeið umr. um þetta mál, ef ræðumaður æskir þess.) Ég vil óska eftir, að það verði kannað, hvort ráðh. getur ekki verið hér við og frestað því máli, sem hann þarf að sinna í Ed., og hafa ekki of mörg mál í takinu í sem. Meðal þess, sem væntanlega horfir að í dómi hæstv. ráðh. í átt til betra hagræðis, aukins sparnaðar og hagkvæmara skipulags í landbúnaðarlöggjöfinni, er það, að um leið og Landnám ríkisins er lagt niður, þá skuli í sama mund sett á stofn önnur ríkisstofnun, sem fái til meðferðar einn þátt þeirra mála, sem Landnám ríkisins starfar nú að og hefur haft með höndum frá upphafi. Þar á ég við Heykögglaverksmiðjur ríkisins, sem ætlað er að koma á fót með sérstökum lögum, sem frv. að liggur nú fyrir hv. Alþ. Um leið og lagðar eru niður landnámsnefndir í héruðunum, sem eru ólaunaðar ráðgjafandi nefndir, er ætlunin að koma á fót 23 svokölluðum byggðaráðum, sem eiga að verða valdstofnanir og ætla má, að þurfi veruleg laun, auk þess sem leggja þarf út annan kostnað við þær stofnanir, ef að líkum lætur. Ég fæ ekki séð, að þessi dæmi sanni, að þessar skipulagsbreytingar horfi til þeirrar áttar, að um aukna hagkvæmni og sparnað í ríkiskerfinu verði að ræða.
Þeir, sem hafa kynnt sér kostnað, er leitt hefur af störfum Landnáms ríkisins, hafa getað sannfærst um, að þar hefur ekki verið farið með mikla fjármuni. Ég skal ekki rekja það hér, en ég hygg, að þar hafi verið haldið spart á málum, að því er snertir rekstrarkostnað, miðað við það, sem gerist hjá ríkisstofnunum.
Um það, að ekki eigi að draga úr þeirri þjónustu, sem Landnám ríkisins hefur veitt, þá vil ég leggja á það mikla áherslu, að sá þáttur, sem hvað þýðingarmestur er nú í mínum augum af störfum Landnáms ríkisins og lítið hefur til þessa verið sinnt, er skipulags- og áætlanagerð í sveitum landsins. Hæstv. ráðh. gat þess, enda þótt með óljósum orðum væri, að þessir þættir yrðu látnir heyra undir aðra aðila, og að því er best verður séð af þeim málatilbúnaði, sem hér hefur verið hafður í frammi, þá eigi það helst að heyra undir landbrn. og hin svokölluðu jarðalög. Nú er það svo, að ég er hæstv. ráðh. sammála um það atriði, er hann gat um, að skipulagsmál í sveitum ættu ekki að heyra undir skipulagsstjórn ríkisins. Ég lít svo á, að skipulag í sveitum sé það sérstakt mál, að það réttlæti það, að um það fjalli stofnun, sem hefur sérþekkingu á landbúnaðarmálum, og þarna hygg ég, að við hæstv. ráðh. séum sammála. Sú stofnun, sem um þessi mál fjallar nú, er Landnám ríkisins, og enginn dregur í efa þekkingu þeirrar stofnunar og starfsmanna hennar að því er þetta varðar. Ég vil ekki kasta því fyrir róða, að þessi stofnun fjalli um þennan málaflokk áfram, og fá í staðinn annað skipulag, sem allt er mjög óljóst í sniðum, og ég fæ ekki enn áttað mig á, hvernig muni að þessum málum vinna.
Það er kunnara en frá þurfi að segja, að fyrsta verkefni, sem Landnám ríkisins hefur fjallað um á þessum vettvangi, er hin svokallaða inn-Djúpsáætlun. Landnám ríkisins vann það verk í nánu samráði við sveitarstjórnir og forráðamenn búnaðarsamtaka og sambands sveitarfélaga á Vestfjörðum, og ég hygg, að heimamenn þeir, sem að þessum málum hafa komið, hafi þá sögu eina að segja, að þáttur Landnáms ríkisins í þessu starfi hafi verið mjög til fyrirmyndar og frumkvæði þess að hrinda þessum málum áfram lofsvert. Það er enda svo, að allir þm. Vestf., þ. á m. 4 stuðningsmenn núv. hæstv. ríkisstj., hafa flutt um það till. til þál. hér á Alþ. að fela Landnámi ríkisins framkvæmd þeirrar áætlunar, sem gerð hefur verið, og þar með að auka við starfssvið þeirrar stofnunar, sem hæstv. ráðh. er nú að mælast til. að lögð verði niður. Þetta eru mjög einkennileg vinnubrögð, og tek ég undir það, sem fram kom í upphafi ræðu hv. 1. þm. Sunnl.: það er eins og vinstri höndin viti ekki, hvað sú hægri gerir. Svo virðist sem á sama tíma sem hæstv. landbrh. er að leggja til, að Landnám ríkisins sé lagt niður, vilji ýmsir stuðningsmenn þessarar hæstv. ríkisstj. fela því aukin verkefni.
Því er svo háttar um allt starf Landnáms ríkisins, er lýtur að skipulagsmálum í sveitum og lýtur að hverju einu atriði, er hefur áhrif á þróun byggðar í sveitum, sem frá upphafi hefur verið eitt af meginverkefnum Landnámsins, að engar ákvarðanir eru teknar án þess að hafa um það náið samráð við hlutaðeigandi sveitarstjórnir og landnámsnefndir, sem hæstv. ráðh. hefur gert lítið úr og telur ekki miklu skipta, þótt lagðar séu niður. Þetta er algerlega viðtekin regla í öllu starfi Landnámsins, og er ég því gerkunnugur, þar sem ég á sæti í stjórn þess. Þetta er einmitt sú höfuðregla, sem ég vil að haldist, að til sé stofnun, sem hafi yfir starfsmönnum að ráða, er hafi sérþekkingu á landbúnaðarmálum og helst skipulagsmálum strjálbýlis, sem sé samræmingaraðili og aðili, sem hefur frumkvæði og úrslitavald um skipulagsmál, en starfi samt í nánum tengslum við þá aðila heima fyrir, sem eru bærastir þess að veita umsögn og alla nauðsynlega staðháttaþekkingu og auk þess að koma fram sínum vilja í sambandi við meðferð mála. Þessu skipulagi vil ég halda, þessu skipulagi vil ég ekki kasta fyrir róða.
Enda þótt frv. til jarðalaga sé hér ekki á dagskrá, hafa bæði hv. þm. og eins hæstv. ráðh. blandað því inn í þessar umr., svo að það ætti ekki að reynast mér saknæmt, þótt ég viki þar aðeins að, enda þótt ræða megi það mál frekar, þegar eða ef það kemur til þessarar hv. d. Með því að fela þessi skipulagsmál svokölluðum byggðaráðum, sem skipuð eru af ráðh. og eiga að starfa í nánum tengslum við rn, og Búnaðarfélag Íslands, hygg ég, að a.m.k. yrðu lausari bönd á öllum þessum málum. Það er einnig verið að fara fram hjá sveitarstjórnunum í landinu, eins og berlega er gagnrýnt í umsögnum sveitarstjórnarmanna víðs vegar af landinu um frv. til jarðalaga. Ég hygg, að skynsamlegra sé að halda því skipulagi, sem vel hefur gefist, því skipulagi, sem ætla verður, að falli best í geð bæði bændunum sjálfum og sveitarstjórnarmönnum um land allt, með því að þessir aðilar komi sínum sjónarmiðum að í gegnum landnámsnefndirnar og sveitarstjórnirnar og hafi í gegnum þær samráð við Landnám ríkisins, eins og nú er.
Mér hefur orðið nokkuð tíðrætt um skipulagsþáttinn í störfum Landnáms ríkisins vegna þess, hversu þar er gífurlega mikið verk óunnið, og það er verk, sem verður að vinna, hvort sem Landnám ríkisins verður lagt niður eða ekki. Ég treysti þessari stofnun betur fyrir því starfi heldur en nokkurri annarri. En enda þótt Landnámíð verði lagt niður, þarf að sinna þessu verki. Verkefnin hverfa ekki, þó að ein stofnun verði úr sögunni. Þess vegna hygg ég, að bæði sé svo með þetta verkefni og önnur þau, er nú eru til meðferðar hjá l.andnámi ríkisins, að enn þurfi mannafla til þess að sinna þeim störfum, enda þótt Landnámið sé lagt niður.
Það væri fróðlegt að heyra einhverjar áætlanir um það frá hæstv. ráðh., hvar hann hyggist koma við sparnaði í sambandi við þessa skipulagsbreytingu. Og mér hefði þótt vænt um það, ef þeir, sem eru talsmenn þessara breytinga, létu koma fram einhverjar tölulegar upplýsingar um það, með hvaða hætti þessi sparnaður kemur fram. Með hlíðsjón af því, að hæstv. ráðh. og hæstv. aðstoðarráðh. landbúnaðarmála hafa hér báðir lýst því yfir, að það hafi haft sparnað og hagkvæmni í för með sér að færa tiltekin framlög úr höndum Landnáms ríkisins yfir til annarra stofnana, þá vænti ég, að þessar umsagnir þeirra séu byggðar á einhverjum raunhæfum tölum. Nú skal ég ekki mæla því í mót, að slík breyting geti verið hagkvæm og átt rétt á sér. En úr því að ráðh. tala svo hiklaust um þessi efni, þá vænti ég, að þeir geti gefið þar frekari upplýsingar um.
Það hefur verið rætt um það hér, að vel megi fela öðrum aðilum að halda jarðaskrá fyrir landið, og víst getur það verið. Staðreyndin er hins vegar sú, að jarðaskrá hefur löngum verið haldin af tveimur stofnunum hér á landi, í fyrsta lagi hjá Landnámi ríkisins og í annan stað hjá Búnaðarfélagi Íslands. Einhvern veginn hefur það reynst þannig, að sú jarðaskrá, sem Landnám ríkisins hefur haldið, hefur reynst fullnægjandi og örugg, en því hefur ekki alltaf verið að heilsa með þá jarðaskrá, sem annars staðar hefur veríð skráð. Þetta á sér þær orsakir, að skráning allra býla í sveitum landsins er í höndum Landnámsins og raunar þarf, eins og gildandi lög gera ráð fyrir, samþykki landnámsstjórnar, til þess að nýbýli verði sett á stofn, tvær jarðir sameinaðar eða aðrar þær breytingar gerðar, er hafa áhrif á þróun byggðar í sveitum, sem þetta snertir. Þess vegna er það ekki að undra, að einmitt sú stofnun, sem þetta starf hefur með höndum, skuli halda rétta jarðaskrá.
Mér hefði þótt vænt um það, að hæstv. landbrh. yrði hér áfram við þessar umr. En kannske heyrir hann svo vel, að þó að hann sé í öðrum sal, þá heyri hann það, sem sagt er hér í þessari deild.
Annar þáttur þessa frv., sem er miklu veigaminni heldur en sá, sem ég hef hér vikið að, fjallar um það að færa framlög til íbúðarhúsa og endurbyggingar íbúðarhúsa í sveitum úr höndum Landnáms ríkisins til Stofnlánadeildar landbúnaðarins. Það er eðlilegt, ef Landnám ríkisins er lagt niður, að þessi þáttur, sem aðrir af störfum þess sé færður í hendur annarra aðila. Það, sem vekur sérstaklega athygli í sambandi við þetta efni, er þó það, að gert er ráð fyrir því, að þessi framlög standi óbreytt að krónutölu frá því, sem verið hefur nú nálega 3 ár. Á mánudaginn var mælti ég hér fyrir frv., sem ég hef flutt ásamt tveimur öðrum þm. Sjálfstfl. um breyt. á l. um Stofnlánadeild landbúnaðarins, landnám, ræktun og byggingar í sveitum. Þar er lagt til að hækka þessi framlög úr 120 þús. kr. í 200 þús. kr. Ég gat þess þá, að sú væri saga þessara framlaga, frá því að þau komu fyrst inn í löggjöfina 1957, að þau hefðu verið hækkuð öðru hverju nokkurn veginn til samræmis við verðlagsbreytingar. Vegna þess að enginn hæstv. ráðh. var í salnum, þegar ég flutti þessa framsögu, vil ég rifja upp örfá atriði, sem ég sagði um þetta mál þá.
Ef svo væri haldið á málum að hækka þessi framlög nokkurn veginn til samræmis við verðlagsbreytingar, þá er rétt að átta sig á því, að byggingarvísitala hefur hækkað frá 1. júlí 1971 til 1. nóv. 1973 um 70.65%. Enn hefur ekki verið gefin út byggingarvísitala frá 1. mars s.l., en ég hygg, að hún sé væntanleg á morgun eða svo. Ég hef heyrt spásagnir um það, að sú byggingarvísitala muni fara upp í 970 stig og hafi þá hækkun byggingarvísitölunnar frá 1. júlí 1971 numið 81.3%. Það er því augljóst svo sem verða má, að á þessu tímabili, þessum nálega þremur árum, hafa orðið gífurlegar verðlagsbreytingar í landinu, og kemur það víst engum á óvart; það þekkja allir af eigin raun. Ef það ætti að gerast, svo sem gerðist í tíð fyrri ríkisstj., sem kennd var við viðreisn, að hækka þessi framlög nokkurn veginn til samræmis við verðlagsbreytingar, þá þyrftu þessi framlög að hækka a.m.k. í 200 þús. Þó er það ekki nægilegt til þess að fylgja verðlagsþróuninni eftir að fullu, jafnvel þó að einungis sé miðað við 1. nóv. s.l., því að hækkun framlaganna úr 120 þús. kr. í 200 þús. kr. er hækkun, sem nemur 66.7%.
Það fer ekki hjá því, að það komi ýmsum á óvart, þegar hæstv. ríkisstj. leggur fram frv. um þetta efni, að þá skuli gert ráð fyrir því, að þessi framlög standi óbreytt. Sömu sögu er að segja um þau framlög til gróðurhúsabygginga, sem um var fjallað í frv. áðan, á þskj. 440. Það er nákvæmlega sama sagan með það. Ég hlýt að spyrja hæstv. landbrh., hvort það sé stefna hans og hæstv. ríkisstj., að svo skuli með þessi framlög fara, að þau verði látin eyðast upp í eldi verðbólgunnar. Ef þau verða látin standa óbreytt, verða þessi framlög næsta lítils virði að skömmum tíma liðnum og eru raunar þegar orðin það. Og ef framhaldið verður svo sem verið hefur nú undanfarna mánuði, þá verða þau sama og einskis virði að fáum misserum liðnum. Mér þætti vænt um að heyra það hjá hæstv. ráðh., hvort þetta séu fyrirætlanir hans og hæstv. ríkisstj. hvað þetta snertir.
Það má segja, að eðlilegt sé að skoða framlög til íbúðarhúsabygginga í sveitum í samræmi við lánveitingar til þeirra framkvæmda. Lán til íbúðarhúsa í sveitum voru 1971 600 þús. kr., en eru nú 800 þús. kr. Það er því mjög fjarri því, að lánin hafi hækkað til samræmis við verðlagsbreytingar. Ef tekin væru saman framlög og lán, eins og þau voru 1971 og eins og þau þyrftu að vera nú, miðað við verðlagsbreytingar, þá var framlag og lán til íbúðarhúsa í sveitum að hámarki 1971 720 þús. kr., en ef miðað er við byggingarvísitölu 913, eins og hún var 1. nóv. s.l., þyrfti framlag og lán að vera 1228 þús. kr., en ekki 920, eins og raun ber vitni í dag.
Ég skal ekki fara fleiri orðum um þennan þátt, en ég hef lagt fram spurningar til hæstv. ráðh., og ég vænti þess, að svör fáist frá honum um þetta efni.
Það er sjálfsagt ekki ástæða til þess fyrir mig að orðlengja þetta öllu frekar nú. Ég vil þó aðeins ítreka það, að ástæða væri til þess fyrir hæstv. ríkisstj. og Alþingi í heild að hrapa ekki mjög að þeim breytingum, sem hér eru fyrirhugaðar, enda þótt þær eigi sér nokkuð langan aðdraganda og það sé rétt, sem hæstv. ráðh. sagði, að hann hefur gefið yfirlýsingar, sem ganga í þessa átt, í nokkuð mörg ár. Þessar breytingar valda svo mikilli gagnrýni, ekki einungis frá pólitískum andstæðingum þessa hæstv. ráðh., heldur einnig viða hvar úr röðum hans eigin flokksmanna að ástæða væri til þess að skoða þessi mál öll betur. Það væri réttast að fella það frv., sem hér er á dagskrá, en ég skal ekki skýra frá því, hvaða afstöðu ég tek til þess sem aðrir af störfum þess sé færður í hendur í þeirri n., sem mælst hefur verið til, að frv. gangi til, þ.e. landbn. þessarar hv. d. Það má vel vera, að ég leggi þar til, að frv. verði fellt. En það væri e.t.v. þægilegra fyrir hæstv. ráðh. og fylgismenn hans hér á hv. Alþ., að þessu máli og öllum fylgifiskum þess verði vísað að nýju til ríkisstj., eins og hv. 1. þm. Sunnl. lagði til áðan.
Það hafa borist það margar umsagnir um sum af þessum frv., sem nú liggja fyrir hv. Alþ., þar sem mörg atriði eru gagnrýnd og ýmist er lagt til. að þeim verði vísað til ríkisstj. að nýju eða þau séu jafnvel felld, að ástæða væri til þess að hafa þann hátt á, sem ég hef lagt til og hv. 1. þm. Sunnl. Ég skal svo ekki að sinni orðlengja þetta frekar.