07.03.1974
Efri deild: 72. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2580 í B-deild Alþingistíðinda. (2366)

237. mál, vöruhappdrætti fyrir Samband íslenskra berklasjúklinga

Flm. (Oddur Ólafsson):

Herra forseti. Ég hef á þskj. 404 leyft mér að bera fram ásamt þeim Birni Fr. Björnssyni, Geir Gunnarssyni og Jóni Árm. Héðinssyni frv. til. l. um breyt. á l. nr. 18 frá 1959, um vöruhappdrætti fyrir Samband ísl. berklasjúklinga.

1. gr. frv. hljóðar svo:

„Fyrri málsliður a-liðar 1. gr. orðist svo:

Hlutatalan má ekki fara fram úr 75 þús.“

Vöruhappdrættislög SÍBS eru frá 1949, og þeim var breytt árið 1959. 1. gr. þeirra laga hljóðar í heild þannig:

„Heimilt skal SÍBS að reka vöruhappdrætti með eftirfarandi skilyrðum:

a) Hlutatalan má ekki fara fram úr 65 þús. Draga skal í 12 flokkum á ári hverju, og skal dráttur fara fram fyrir einn flokk 10. jan. ár hvert og síðan 5. dag hvers mánaðar.

b) Hlutina má selja í heilu eða hálfu lagi. Iðgjöld fyrir hvern hlut ákveður fjmrh. að fengnum till. frá stjórn SÍBS.

c) Vinningar skulu vera að verðmæti samtals a.m.k. 50% af iðgjöldunum samantöldum í öllum 12 flokkum.

d) Dráttur skal fara fram opinberlega í Reykjavík.“

Þá segir í 3. gr. laganna:

„Ágóða af happdrættinu skal varið til að greiða stofnkostnað við byggingarframkvæmdir vinnuheimilisins að Reykjalundi, til byggingar og rekstrar vinnustofu fyrir öryrkja og til annarrar félagsmálastarfsemi SÍBS, sem viðurkennd er af ríkisstj.“

Vöruhappdrætti SÍBS hefur því 1950 verið aðaltekjulind SÍBS og staðið undir framkvæmdum við byggingu vinnuheimilisins að Reykjalundi. Vinnuheimilið að Reykjalundi þekkja flestir og þess merku starfsemi. Það var stofnað 1945 til þess að endurhæfa berklasjúklinga. En vegna þeirrar miklu og snöggu breytingar, sem varð á högum berklasjúklinga varð strax eftir 1950 sýnilegt, að hægt var að nota þá uppbyggingu og þá starfsemi, sem þar fór fram, til endurhæfingar öryrkjahópa. Og sú hefur orðið raunin á, að enda þótt berklasjúklingum hafi stórfækkað, hafa aðrir hópar öryrkja tekið við, þannig að nú er aðeins mjög lítill hluti af þeim vistmönnum, sem eru á Reykjalundi, þar vegna fyrrverandi berklaveiki.

Reykjalundur hefur sífellt verið að stækka og vaxa, og nú stendur yfir mjög mikil stækkun og aukning þeirrar starfsemi, sem þar fer fram. Eru byggingarframkvæmdir þar í gangi, sem munu kosta 50–60 millj. kr. eða jafnvel meira. Þeim er ætlað í fyrsta lagi að fjölga rúmum þar, í öðru lagi að bæta almenna þjónustu og í þriðja lagi, að bæta skilyrði til starfsendurhæfingar.

Eitt af þeim verkefnum, sem Reykjalundur hefur frá upphafi annast, er starfsendurhæfing. Þetta er tiltölulega ný vísindagrein, og þar af leiðandi verða miklar og örar breytingar á starfsendurhæfingu á hverjum áratug og jafnvel á hverju ári. Þetta hefur það í för með sér, að sú stofnun, sem ein í landinu á að sinna starfsendurhæfingu, verður að hafa fjármagn og fjárráð til þess að geta fylgst með nýjungum og til að geta tekið í notkun og notfært sér þær nýjungar, sem verða í starfsendurhæfingu. Í þeim tilgangi er sú uppbygging framkvæmd, sem nú fer fram á Reykjalundi og þetta er ein af ástæðunum til þess, að SÍBS er nauðsyn að hafa svo mikil not happdrættis síns sem kostur er á.

Undanfarin ár hefur ástandið verið þannig, að í mörgum umboðum félagsins úti um landið hafa happdrættismiðar verið uppseldir við hver áramót, og af þeim yfir 130 umboðum, sem munu vera starfrækt um allt land, var uppselt í 50 umboðum við síðustu áramót. Þess vegna telur stjórn sambandsins nauðsyn fyrir sig að fá heimild til að fjölga hlutamiðum úr 65 þús. og upp í 75 þús.

Varðandi þá uppbyggingu, sem nú fer fram á Reykjalundi, vil ég taka fram, að Reykjalundur hefur nú um langt árabil gegnt því hlutverki að hafa allmarga svonefnda langlegusjúklinga, sem eru þá ýmist þar í endurhæfingu eða til langlegu. Þetta er nú eitt af mestu nauðsynjaverkum í þessu landi núna, að skapa pláss fyrir langlegusjúklinga. Það er ein mest aðkallandi þörf úrbóta einmitt núna fyrir landið allt. Í þessu sambandi þá er ætlast til, að hægt verði að fjölga verulega rúmum á þessu ári og því næsta, getur farið upp í 175–200 rúm eftir því, hve mikið af húsnæði verður að taka undir starfsfólk.

Ég vonast svo til þess, að þetta frv. fái greiða afgreiðslu. Ég held, að það sé nauðsynlegt að fá það samþykkt nú á þessu þingi, svo að sambandsstjórnin geti farið að undirbúa þá fjölgun á hlutamiðum, sem farið er fram á.

Ég vil svo leggja til, herra forseti, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og heilbr: og trn.