08.03.1974
Efri deild: 73. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2620 í B-deild Alþingistíðinda. (2385)
255. mál, lántökuheimildir erlendis
Geir Hallgrímsson:
Herra forseti. Ég mun ekki gera þetta frv. ítarlega að umtalsefni við 1. umr. hér í d. nú, þar sem ég á sæti í fjh: og viðskn., sem ég býst við, að fái frv. til meðferðar samkv. till. hæstv. fjmrh.
Ég vil þó vekja athygli á því þegar á þessu stigi málsins, að hér er um að ræða lántökuheimildir erlendis, en þær eru auðvitað til þess fallnar, ef nýttar eru, að auka á eftirspurnina eftir vinnuafli, vörum og þjónustu innanlands, auka á spennuna í þjóðfélaginu,~og þar af leiðandi hljóta slíkar lántökur erlendis, eins og aðstæður eru nú hér á landi, að verða til þess að kynda undir verðbólgubálinu.
Ég vil enn fremur vekja athygli á því, að sumar þessar lántökuheimildir byggjast á heimildargreinum fjárl., sem smeygt var inn í fjárlagafrv. á síðasta stigi meðferðar þess, og er ætlunin að nýta það fjármagn til framkvæmda, sem mjög eru ýmist umdeildar eða vanundirbúnar.
Sem dæmi þessa vil ég nefna flutningslínu raforku Norður-Suðurland, en gert er ráð fyrir að verja til hennar 300 millj. kr. Sagt er að vísu, að leggja eigi þessa línu í sumar þannig að hún komist í notkun á næsta ári. Á næsta ári verður ekki til nein raforka hér sunnanlands til þess að flytja norður um, og því er nokkurn veginn ljóst, að þessi lina verður til lítils eða einskis gagns fyrsta árið, sem hún stendur tilbúin, og ekki fyrr en í fyrsta lagi 1976, þegar Sigölduvirkjun er lokið, ef áætlanir standast varðandi lok framkvæmda þar. Það hefur ekki verið upplýst hér, hvort búið sé að hanna þessa framkvæmd, en samkv. fróðustu manna upplýsingum er talið, að framkvæmdin ein kosti 800 millj. kr. Ef hún ber engan arð fyrsta árið og lítinn arð upp úr því, sjá allir, hversu mikil forsjálni er viðhöfð í sambandi við þessa lántöku, svo að hún sé sérstaklega gerð að umræðuefni.
Það má nefna hér fleiri dæmi. Ég get sérstaklega um ráðstöfun lánsfjár til opinberra framkvæmda að því er varðar Rafmagnsveitur ríkisins, en til þeirra er gert ráð fyrir, að varið sé í heild 538 millj. kr. Þetta fyrirtæki ríkisins er nú rekið með miklum halla, og er talið, að skorti yfir 400 millj. kr. til þess að geta staðið við skuldbindingar sínar á yfirstandandi ári. En engar till. um, hvernig ráða skuli bót á fjárskorti þessa fyrirtækis, hafa séð dagsins ljós af hendi hæstv. ríkisstj.
Í heild er gert ráð fyrir, að lánsfjáröflun til opinberra framkvæmda hækki milli ára um 86%, og þótt hluti af þeirri hækkun skýrist af dýrtíðaraukningunni og verðminni krónum, er það út af fyrir sig vitnisburður um óheilbrigða verðbólguþróun, auk þess sem aukning umfram dýrtíðarhækkunina er enn til þess fallin að kynda undir verðbólgubálið. Það er hvort tveggja í senn, að þessar lántökuheimildir erlendis eru til þess fallnar að auka á dýrtíðina, að auknar lántökur bæði erlendis og innanlands eru til þess fallnar að auka á spennuna innanlands, svo að þetta frv. beri vitni um stjórnleysi í efnahagsmálum. Ég tel því, að fjh: og viðskn. d. þurfi að kauna þetta frv. mjög nákvæmlega, áður en það kemur til 2. umr.