11.03.1974
Efri deild: 74. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2657 í B-deild Alþingistíðinda. (2408)

46. mál, jarðalög

Frsm. minni hl. (Steinþór Gestsson):

Herra forseti. Eins og fram kemur í nál. á þskj. 437, gat landbn. þessarar hv. d. ekki orðið sammála um afstöðu til jarðalagafrv., sem hér er til 2. umr. Minni hl. n., en hann skipa auk mín hv. 2. þm. Vesturl., Jón Árnason, og hv. 5. þm. Reykn., Jón Árm. Héðinsson, hefur skilað séráliti.

Ég hefði nú vænst þess, að þegar þetta mikilvæga frv. væri hér til umr., hefði hæstv. landbrh. verið viðstaddur. Ég sé, að svo er ekki, og þykir mér það heldur miður. En ég mun þó ekki gera kröfu til þess, að hann verði sóttur, en mér sýnist, að það lýsi ekki umhyggju fyrir því málefni, sem hér er fram borið, að hann skuli ekki sinna því, þegar það er til umræðu.

En ég mun í þessu máli mínu leitast við að gera frekari grein en í nál. fyrir þeirri ákvörðun okkar að leggja til, að frv. verði vísað til ríkisstj. til gaumgæfilegrar endurskoðunar.

Í minnihlutaáliti okkar birtum við lítið sýnishorn af þeim fjölmörgu umsögnum, sem bárust til n. Flestar þeirra eru jákvæðar, þannig að menn telja þörf á endurskoðun lagaákvæða um jarðir, nýtingu þeirra og ráðstöfun. En brtt. frá ýmsum umsagnaraðilum eru svo margar og viðamiklar og fjölmargar á styrkum rökum reistar að dómi okkar í minni hl. n., að þær þarf að skoða vel, og eðlilegast verður og vænlegast til þess að ná góðum árangri að endursemja frv. til þess að tryggja, að því marki verði náð, sem að er stefnt, en það er, að eignarráð á landi til búsetu á jörðum sé í samræmi við hagsmuni sveitarfélaga og þeirra, sem landbúnað stunda, eins og segir í grg. með frv. Ég er sammála um, að þessu marki þarf að ná, en ég tel, að frv., eins og það liggur fyrir og eins og áformað er að afgreiða það frá þinginu, stuðli ekki að því, svo sem þörf er á. Ég tel nauðsynlegt til upplýsingar fyrir hv. þdm. að kynna nokkru nánar umsagnir ýmissa þeirra aðila, sem leitað var til.

Form. landbn., sem mælti hér fyrir meirihlutaálitinu á dögunum, fór nokkrum orðum um þær umsagnir, sem borist höfðu, og geri ég engar athugasemdir við það, sem hann sagði um það. En eigi að síður og með tilliti til þeirrar ræðu hans hér á dögunum tel ég þörf á að kynna nokkra þætti úr þeim umsögnum, sem hafa borist.

Ég mun þá fyrst snúa mér að því að geta umsagnar, sem barst frá skipulagsstjórn ríkisins sem skipulagsstjóri skrifar undir í umboði skipulagsstjórnar. Þar segir m.a.:

„Skipulagsstjórn ríkisins telur, að stefna beri að því, að landið verði allt skipulagsskylt og þar með verði felld niður sú aðgreining, sem nú er í l. milli þeirra staða, sem skipulagsskyldir eru, og annarra. Jafnhliða því þyrfti sjálfsagt að breyta stjórn skipulagsmála og starfsliði Skipulags ríkisins. Á þessu stigi þykir ekki ástæða til að ræða það frekar, en að sjálfsögðu er skipulagsstjórnin reiðubúin til viðræðna um það, ef óskað er.

Af þessum ástæðum telur skipulagsstjórn ekki ráðlegt í nýrri löggjöf að viðhalda og jafnvel auka aðgreiningu, sem nú er í lögum milli skipulagsskyldra staða og annarra, eins og I. kafli frv. virðist gera ráð fyrir. Á það skal bent, að nú þegar eru ýmis sveitarfélög, bæði hrein strjálbýlissveitarfélög og sveitarfélög, sem eru að langmestu leyti strjálbýl, að eigin ósk orðin skipulagsskyld. Samkv. 1. mgr. 4. gr. virðist svo sem skipulagsskylda ýmissa sveitarfélaga samkv. skipulagslögum nr. 19 1964, félli niður, ef sú grein yrði samþykkt óbreytt. Svo virðist sem úrskurðarvald landbrh. um, hvað sé þéttbýlissvæði, sbr. 2. mgr. 4. gr., geti rekist á 4. mgr. 4. gr. skipulagslaga, en samkv. þeirri grein úrskurðar félmrh. um skipulagsskyldu. Að auki er vandséð, hvernig þéttbýlissvæðin verða skilgreind. Slíkur vandi gæti t.d. rísið í einhverju eftirtalinna sveitarfélaga, sem nú eru skipulagsskyld.“ — Og þar telur skipulagsstjóri upp 20 sveitarhreppa í landinu, sem eru að nokkru leyti með strjálbýli og nokkru leyti með þéttbýli, sem nú þegar hafa vegna eigin áhuga tekið á sig skipulagsskyldu. Ég hirði ekki að telja upp nöfn þeirra sveitarfélaga, það hefur ekki þýðingu.

„Skipulagsstjórn virðist sem byggðaráðum, sem stofna á samkv. l., séu fengin í hendur verkefni, sem þan hafa varla skilyrði til að leysa, t.d. að gera till. um skipulagsmál í — sveit, sbr. upphaf 13. gr. Nú er vitað, að gerð skipulags er bæði flókið og kostnaðarsamt verkefni og til þarf að koma atbeini ýmissa sérhæfðra aðila, ef vel á að vera. Er vandséð, hvernig ráðið verður fram úr þessu þrátt fyrir ákvæði 3. mgr. 21. gr. frv. Að vísu segir í 2. tölul. 6. gr., að byggðaráð skuli eiga samvinnu við hlutaðeigandi sveitarstjórn og skipulagsyfirvöld um skipulag dreifbýlis.“

Ég vil aðeins í þessu sambandi benda á, að það er ein af till. meiri hl. n. að fella niður 2. tölul. 6. gr., þar sem gert er ráð fyrir að fella þetta út, að byggðaráðin skuli eiga samvinnu við hlutaðeigandi sveitarstjórn og skipulagsyfirvöld um skipulag dreifbýlis, en öðrum skipulagsákvæðum við haldið. Þá heldur áfram umsögn skipulagsstjórnar:

„Að sjálfsögðu þarf til að koma náin samvinna við sveitarstjórn, sem í hlut á. En þær sveitarstjórnir, sem frv. tekur til, geta tæplega veitt þá aðstoð, sem nauðsynleg er við sjálft skipulagsstarfið. Ekki verður séð, hvaða skipulagsyfirvöld átt er við. Helst mætti ætla, að átt væri við skipulagsstjórnina, en þá kemur á móti, að verksvið skipulagsstjórnar er algerlega bundið við þá staði, sem skipulagsskyldir eru samkv. skipulagslögum.

Í frv. er t.d. í 3. tölul. 6. gr. og 13. gr. talað um gerð till. um úthlutun lands til ákveðinna þarfa og skipulagsmála að öðru leyti, en ekki verður séð, hvernig fari um meðferð þeirra till., t.d. hver taki við till., hvort þær skuli lagðar fram opinberlega, staðfestar og þá af hverjum o.s.frv.

Ekki eru í l. veittar neinar leiðbeiningar um efni slíks skipulags, sem frv. fjallar um, sambærileg ákvæðum 13. gr. skipulagslaga, sbr. og reglugerð n. 21 1966, um gerð skipulagsáætlana.

Í 5. tölul. 6. gr. virðist sem byggðaráðum sé ætlað að hafa með höndum byggingareftirlit að vissu marki, en slíkt er fengið öðrum aðilum samkv. l. nr. 108 1945, um byggingarsamþykktir fyrir sveitir og þorp, sem ekki eru löggiltir verslunarstaðir.

Rétt þykir að vekja athygli á, að ákvæði í 2. mgr. 13. gr. frv. virðast óeðlileg, þegar um er að ræða nauðsynlega útfærslu byggðar eða framkvæmd skipulags, og varla samrýmast ákvæðum 26. og 28. gr. skipulagslaga eða a.m.k. vera óþarflega þung í vöfum.

Skipulagsstjórn virðist sitthvað í frv. horfa til bóta, en telur hins vegar rétt, eins og áður segir, að benda á framangreind atriði til íhugunar í sambandi við meðferð málsins á Alþingi.“

Ég verð að segja, að okkur, sem í minni hl. erum, þykir þessi umsögn skipulagsstjórnar vera svo vel rökstudd, þegar hún er borin saman við frv. að jarðalögum og þau lagaákvæði, sem bent er til í umsögninni, að til hennar hefði verið rík ásfæða til að taka miklu meira tillit en gert er í meðförum Alþ., ef frv. verður samþykkt með þeim breytingum, sem meiri hl. gerir ráð fyrir.

Í nál. bendum við lauslega á umsögn landnámsstjórnar eða landnámsstjóra. Ég vildi til frekari skýringar kynna hér 2–3 atriði úr umsögninni. Ég má segja, að frsm. meiri hl. hafi haft orð á því, að þessi umsögn væri gefin af landnámsstjóra einum, en ekki landnámsstjórn, og það er rétt. En ég vil vekja athygli á því, að stjórnarmönnum í Landnáminu mun hafa þótt fullt eins eðlilegt, þar sem meiri hl. þeirra á sæti á Alþ., að viðhorf þeirra kæmi fram á Alþingi sjálfu, eins og þeir færu að gefa umsögn sína í landnámsstjórn, og fólu þess vegna framkvæmdastjóra stjórnarinnar, sem er landnámsstjóri, að gefa umsögnina. En á þessa þætti langar mig að benda í umsögn landnámsstjóra.

„Sú stefna, sem fram kemur í frv. til jarðalaga um að sameina í einu frv. lög um afmarkaða þætti í landbúnaðarlöggjöf okkar, tel ég nokkuð vafasama í þeim tilvikum, er hér um ræðir. Má í því sambandi benda á lög um Jarðeignasjóð. Mér fyndist eðlilegra að fela t.d. Búnaðarbankanum gæslu þess sjóðs eða efla veðdeild Búnaðarbankans til þess að annast þau viðfangsefni, sem fram koma í 33. gr.

Þetta er atriði, sem mér sýnist, að vel hefði mátt taka til athugunar, og þess vegna vil ég benda á það í ræðu minni.

Í öðru lagi: „Núverandi fyrirkomulag í skipulagsmálum í dreifbýli var mótað með I. nr. 45 1971, um Stofnlánadeild landbúnaðarins, landnám, ræktun og byggingar í sveitum, og hefur sú stefnumótun smátt og smátt verið að taka á sig fastara form. Má í því sambandi nefna, að jarða- og ábúendaskráning er óðum að komast í rétt horf og þegar orðin grundvöllur að skráningu í lífeyriss,jóð bænda og auk þess til viðmiðunar í Stofnlánadeild landbúnaðarins.“

Ég vil hér minna á það og benda á, að sú skráning, sem landnámsstjórn hefur með höndum um jarðir og ábúendur, er sú eina skráning um slíkt efni í landinu, sem er tæmandi. Það er sagt, að Fasteignamatið hafi sína skráningu, og það er rétt, að hún er fyrir hendi, en þar er allt í óvissu um, hverjir eru ábúendur á ,jörðum, og það er ekki endurnýjað og lá ekki einu sinni alls staðar fyrir, þegar gengið var frá fasteignamatinu. Í annan stað hefur verið talað um, að Búnaðarfélag Íslands hafi jarðaskráningu með höndum, og það er rétt að vissu marki. Það skráir alltaf, þegar einhver breyting verður á í ræktun á hverri jörð í landinu. Aftur á móti hefur Búnaðarfélagið ekki fylgst með ábúendum jarða, og ef ekki verður hreyfing í jarðabótum á viðkomandi jörðum, geta þær fallið niður úr skráningu hjá Búnaðarfélaginu, þannig að það er engin önnur skráning til, sem er tæmandi en er hjá landnámsstjórn.

Þá heldur landnámsstjóri áfram: „Landbúnaðaráætlanir eru komnar af stað og línur að skýrast, hvernig unnið verði að þeim málum. Má í því sambandi benda á Inn-Djúpsáætlun, sem væntanlega kemst á framkvæmdastig á þessu ári. Þá hefur verið byrjað lítillega á landamerkingum, sem er einn liður í samstarfi við Landmælingar Íslands og Rannsóknastofnun landbúnaðarins og Fasteignamat ríkisins um landamerkingar, grunnkortagerð, gróðurdreifingu og skráningu lands, en þetta starf er grundvöllur, sem þarf að vinna, áður en eiginlegt skipulagsstarf getur hafist á einstökum jörðum og skráning fasteigna kemst í raunhæft form, að því er landið varðar. Ég álít því, að það muni ekki flýta fyrir þróun eða framkvæmd þessara verkefna að flytja þau inn í landbrn. og leggja niður landnámsstjórn og Landnám ríkisins.“

Ég gat þess við 1. umr., að ég væri vantrúaður á, að það væri til hagræðis að gera þá breytingu, sem hér er lagt til í þessum lögum, að legg,ja niður Landnám ríkisins og fella fjölmörg verkefni þess undir landbrn. Það er skoðun mín, að það væri sönnu nær og líklegra til þess, að af því yrði jákvæður árangur, að flytja fremur jarðeignadeild ríkisins undir Landnámið heldur en fella Landnámið niður og flytja það inn í landbrn. Það er eitt af þeim atriðum, sem ég tel, að hefðu verið til athugunar í þessu sambandi og hefði þurft að ræða í alvöru, þegar frv. var til athugunar.

Þá langar mig að minna á þennan kafla í umsögn landnámsstjóra:

„Ég tel, að það skipti mestu máli í sambandi við búsetu á þeim jörðum, sem sveitarstjórnir og viðkomandi stjórnvöld vilja halda í ábúð, nú landnámsstjórn, að einfalda ákvæði ábúðarlaga og gera þau ákveðnari og á þann hátt að auðvelda sveitarstjórnum að tryggja fasta búsetu á jörðum og byggja þær hæfum bændum, hver sem er eigandi jarðar eða jarðarhluta. Ég álít, að þetta skipti meira máli en hver á jörðina. Ef jarðeigendum yrði ljóst, að ekki væri hægt að kaupa eða eiga jörð án þess að leigja hana með eðlilegum kjörum og eðlilegu frjálsræði ábúenda um framkvæmdir, þá held ég, að ásókn í jarðir minnkaði og jarðaverð kæmi til með að verða eðlilegt. Þar á ég ekki við kyrrstöðu í verði í krónum, heldur að verð á jörðum og mannvirkjum sé í samræmi við verðþróun peningamála.“

Ég vil sérstaklega undirstrika þennan kafla í umsögn landnámsstjóra. Ég held, að þarna sé komið að veigamiklu atriði í þessu stóra máli, sem hér er til umr., þ.e. að það er skipulagið og það eru kvaðirnar um ábúð, sem hafa langmesta þýðingu um það, hvaða verðlagsþróun jarðamálin taka, og eins hitt, hvernig fer um nýtingu jarða.

Frsm. meiri hl. n. gat um það réttilega, að frv. hefði verið sent búnaðarsamböndunum í landinu til umsagnar. Mér skilst, að 4 þeirra hafi ekki sent svör. 5 búnaðarsambönd mæla með samþykkt frv., eins og það er, og ræða það ekki frekar. 4 þeirra hafa óskað eftir breytingum á þeim í fleiri eða færri atriðum. Ég vil kynna hér lítils háttar viðhorf þeirra til þessa máls. Mér finnst eðlilegt, að það sé gert, ekki síst fyrir þá sök, að þetta frv. lá fyrir næstsíðasta Búnaðarþingi og fékk þar heilmikla athugun og voru gerðar við það brtt., sem að miklu leyti og líklega flestu leyti hafa verið teknar til greina og verið felldar að frv., áður en það nú er lagt fyrir Alþ., þó að allar hafi þær ekki komist þangað. Því hefur jafnvel verið haldið fram, að það hafi þess vegna verið afgreitt mál meðal bændasamtakanna, sagt, að þau væru ánægð með frv. eins og það lægi fyrir. En mér sýnist, að brtt. og umsagnir frá þessum fjórum búnaðarsamböndum, sem einhverjar till. hafa um breytingar, sýni, að svo er ekki enn, og er það ekkert til að furða sig á. Málið er stórt og yfirgripsmikið, og þarf enginn að segja mér, að það verði skoðað ofan í kjölinn á örstuttum tíma.

Ég ætla þá að snúa mér að því að fara lítils háttar niður í þær umsagnir frá búnaðarsamhöndunum, sem gera ráð fyrir breytingum á frv. Kem ég fyrst að umsögn formanns Búnaðarsambands Suðurlands, Stefáns Jasonarsonar bónda í Vorsabæ. Hann segir svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Ég hef yfirfarið frv. og fagna því, að svo virðist sem tilgangur þess, ef að lögum verður, sé fyrst og fremst að tryggja sem öruggasta búsetu á bændabýlum, þar sem lífvænleg aðstaða er til búrekstrar, svo og að bæta úr ýmsum ágöllum, sem torveldað hafa kynslóðaskipti að undanförnu. Mér er og ljóst, að frv. þetta nær yfir yfirgripsmikinn þátt í íslensku þjóðlífi og verður varla fullmótað í einum áfanga né þannig afgreitt frá Alþingi, að ekki megi betur gera að ýmissa áliti, enda þótt þar um fjalli menn, sem vilji gera sitt besta í þessu efni.

Ekki hefur gefist tækifæri að gera allsherjarkönnun á efni frv. meðal sunnlenskra bænda á vegum Búnaðarsambands Suðurlands. Hins vegar hef ég leitast við að kynna efni þess ýmsum bændum hér í héraðinu og leitað álits þeirra um efni frv. Það, sem bændur leggja áherslu á, að fram komi við afgreiðslu frv. á Alþ., er m.a. þetta:

1. Jarðasjóður verði það öflugur fjárhagslega, að hann geti sem best skilað því hlutverki, sem honum er ætlað, sbr. 33. gr.

2. Að tryggt verði sem best samstarf milli byggðaráðs og sveitarstjórna í sambandi við eigendaskipti fasteigna, sbr. 6. gr.

3. Að tryggt verði, að söluverð jarða til búrekstrar verði ekki hærra hverju sinni, miðað við verðlag búvara og búrekstraraðstöðu, en það að kynslóðaskiptin geti farið fram með farsælum hætti, svo að áframhaldandi búskapur verði sem viðast tryggður í íslenskum sveitum.

4. Jafnan verði höfð hliðsjón af fasteignamati við matsgerðir bújarða.

5. Komið verði í veg fyrir, að fjársterkir aðilar, sem ekki eiga lögheimili í viðkomandi sveitarfélagi og ekki hafa búskap í huga, geti haldið góðum jörðum án ábúðar árum saman.

6. Þær bújarðir, sem gerðar verða að óðalsjörðum, sbr. VI. kafla frv., verði afhentar óðalserfingja með gögnum og gæðum á sem bestum kjörum, enda sé óðalserfingja skylt að halda við húsum, ræktun og öðrum mannvirkjum á jörðinni.

Stjórn Búnaðarsambands Suðurlands hefur ekki fjallað um efni frv. sameiginlega.

Ég vil að lokum leggja áherslu á það persónulega álit mitt, að mikils er um vert, að vel takist til með afgreiðslu frv. til jarðalaga á Alþ.

Virðingarfyllst. Stefán Jasonarson.“

Í sambandi við þá umsögn, sem ég hef hér kynnt frá formanni Búnaðarsambands Suðurlands, vil ég vekja sérstaka athygli á því, að hún fellur saman við skoðanir mínar á frv. í vissum atriðum. sem ég tók fram við 1. umr. um þetta jarðalagafrv., sem sé það, að það kemur í ljós t.d. í sambandi við Jarðasjóð, að honum eru nú ætluð svo miklu, miklu stærri verkefni en áður var, að það verður að efla hann miklu meira en gert er ráð fyrir í frv. Þetta undirstrikar formaður Búnaðarsambandsins. Það þarf einnig að tryggja sem best samstarf milli byggðaráðs og sveitarstjórna, segir hann. Þar greinir okkur nokkuð á. Ég tel, að byggðaráðin séu óþörf og sveitarstjórnum megi fela þau verkefni, sem byggðaráðum eru ætluð.

Þá vil ég geta um, að hann bendir sérstaklega á, að það sé mikilvægt að hafa þau fyrirmæli í l., að eigendur geti ekki haldið góðum bújörðum án ábúðar árum saman. Þessu hygg ég, að sé auðveldast að ná fram í gegnum skipulagið, eins og komið var að áðan í umsögn skipulagsstjórnar ríkisins.

Þá er það eitt atriði enn, sem Stefán Jasonarson minnist hér á og mér finnst vera mjög mikilvægt, að sé undirstrikað, og það er, að þegar jarðir eru keyptar af ríkinu og gerðar að óðalsjörðum, þá verði þær afhentar óðalserfingja með gögnum og gæðum. Það er tekið fram í þessu frv., að hlunnindi skuli vera undanskilin við afhendingu, þ.e. gögn og gæði landsins. Ég tel það hins vegar mikilvægt, að ekki verði farið öðruvísi að með þær jarðir heldur en aðrar jarðir í landinu, þar sem ekki má skilja að hlunnindi og jörð.

Þá vil ég hér aðeins kynna stutta umsögn frá Búnaðarsambandi Snæfellinga. Hún er á þessa leið:

„Stjórn Búnaðarsambandsins mælir eindregið með því, að frv. til jarðalaga verði lögfest á Alþingi í vetur, með þeim fyrirvara, að hert verði nokkuð á ákvæðum eignarnámsheimildar sveitarfélaga og ríkisins á landi, sem ekki er nýtt til búrekstrar. Þá telur stjórn sambandsins, að leng,ja eigi frest um veitingu forkaupsréttar samkv. 24. gr. um 5 sólarhringa í 10 sólarhringa. Einnig verði hækkað framlag í Jarðasjóð úr 12 millj. í 20 millj. Æskilegt væri, að skipuð yrði sérstök stjórn fyrir sjóðinn. Þetta tilkynnist hér með.

Virðingarfyllst,

f.h. Búnaðarsambands Snæfellinga,

Leifur Kr. Jóhannesson.“

Hér kemur Búnaðarsamband Snæfellinga að þessu sama með jarðeignasjóðinn, að til þess að hann geti svarað sínu hlutverki, þarf að efla hann meira en gert er ráð fyrir, og einnig kemur Búnaðarsambandið hér að því, sem ég gat um áðan og komið hefur um till. frá öðrum stöðum, að sérstök stjórn yrði fyrir sjóðinn, en heyrði ekki beint undir rn.

Þá sé ég ástæðu til að minna hér lítils háttar á umsögn Búnaðarsambands Skagfirðinga. Þeir gera ákveðnar brtt. við jarðalagafrv. um vissar greinar þess. Ég ætla ekki að lesa þær brtt., aðeins þær skýringar, sem stjórnin gefur um þessar brtt., sem mér þykir ástæða til að kynna, svo að menn átti sig betur á þeim:

„1. Áríðandi er, að sveitarstjórnir séu jafnan hafðar með í ráðum og leitað umsagnar þeirra varðandi mörg þau mál. er byggðaráð kemur til með að fjalla um, þannig að sem viðtækust samstaða skapist heima fyrir um þær ákvarðanir, sem teknar kunna að verða og snerta hin einstöku sveitarfélög.“

Ég vil taka það fram hér, að ég sé að vísu, að í brtt. meiri hl. n. hefur verið fallist á þetta sjónarmið að nokkru leyti, þar sem orðinu „sveitarstjórn“ hefur verið bætt inn í frv. á einum

4–5 stöðum frá því, sem áður var. — Enn fremur segir svo:

„2. Fráleitt er að heimila að undanskilja hlunnindi, svo sem námuréttindi, rétt til efnistöku, vatns- og hitaréttindi umfram heimilisþörf, þegar um sölu á ríkisjörðum er að ræða. Þetta ákvæði 31. gr., eins og það er nú í frv., er alger mótsögn við tilgang og anda frv. Engin frambærileg rök eru til fyrir þessu ákvæði og því rökrétt að fella það niður úr frv.“

Þetta kemur heim við það, sem Stefán Jasonarson hafði á orði í sinni umsögn, að bændur leggja mikla áherslu á það, munu gera það og gera, að þarna verði ekki gengið á rétt landeigenda í þessu efni. — Enn segir svo:

„3. Frv. gerir ekki ráð fyrir, að Jarðasjóður hafi sérstaka stjórn, en starfi á vegum jarðadeildar.“

Stjórn Búnaðarsambands Skagfirðinga telur miklu eðlilegra, að sjóðurinn starfi undir sérstakri stjórn, og tekur því upp till. Búnaðarþings 1973 bar að lútandi.

„4. Vegna hinna sífelldu verðhækkana á öllum sviðum verður að gera ráð fyrir verulegu árlegu fjármagni til Jarðasjóðs, svo að hann geti sinnt hlutverki sínu. Þetta framlag verður einnig að fylgja verðlagsbreytingum. Því er lagt til, að það hækki í hlutfalli við ríkisframlag til jarðræktar og húsabóta hverju sinni.

5. Eðlilegt þykir, að Jarðasjóður greiði kostnað við fjallskil vegna eyðijarða í eigu sjóðsins, m.a. vegna þess, að hluti tekjustofna fjallskilasjóða er stundum reiknaður af landverði jarða.

6. Þá teljum við, að VI. kafli frv. hafi lítinn tilgang,“ — þ.e. kaflinn um óðalsjarðir, — „þar sem jörð er yfirleitt ekki gerð að óðali, nema menn séu skyldaðir til þess vegna kaupa á ríkisjörð. Þá má benda á, að lög þessi skapa í mörgum tilfellum misrétti milli barna óðalseigenda.“

Þetta eru greinargerðir með till. Búnaðarsambands Skagfirðinga, sem öll stjórnin skrifar undir: Gunnar Oddsson, Marinó Sigurðsson, Jónas Haraldsson, Bjarni Halldórsson og Haraldur Hermannsson. Ég tel, að í þessum ábendingum Búnaðarsambands Skagfirðinga sé einnig að finna mikilvægar ábendingar um það, sem betur mætti fara í frv., og ég tel. að þess hafi ekki verið gætt við afgreiðslu n. á því.

Ég rakti stuttan kafla úr umsögn Búnaðarsambands Suður-Þingeyinga í nál. okkar í minni hl. Ég sé ástæðu til að bæta hér litlu við og einmitt úr þeirra nál. Er það svo hljóðandi, með leyfi hæstv. forseta:

„Stjórn Búnaðarsambands Suður-Þingeyinga hefur tekið til meðferðar frv. það til jarðalaga, er henni var sent til umsagnar. Stjórnin hefur orðið sammála um að styðja þá meginstefnu, sem í frv. felst, að torvelda með löggjöf óæskilegt jarðabrask í hagnaðarskyni, án þess að frelsi bænda til eðlilegs raunverðs á fasteignum þeirra verði skert óeðlilega með löggjöf umfram eignir annarra þjóðfélagsborgara í landinu. Af þessu tilefni leggur stjórn sambandsins áherslu á, að öll eignarskerðingarákvæði frv. verði endurskoðuð, en enn frekar með hliðsjón af gildandi ákvæðum stjórnarskrárinnar, svo að tryggt sé, að endanleg afgreiðsla frv. verði í fullu samræmi við hana. Þá telur stjórnin hæpin þau ákvæði frv. að leggja Landnám ríkisins niður að svo komnu máli, þar sem það hefur á jákvæðan hátt stuðlað að raunhæfu viðnámi gegn byggðaeyðingu í sveitum landsins og auk þess sinnt veigamiklu hlutverki í uppbyggingu og rekstri fóðurvinnslu úr íslensku grasi, sem ber að efla sem mest á næstu árum.“

Ég ætla ekki að vitna í lengra máli í umsögn Búnaðarsambands Suður-Þingeyinga. Hefur verið fellt inn í nál. niðurlag umsagnarinnar, sem ég vænti, að menn hafi veitt athygli, þar sem Búnaðarsambandið leggur til, að frestað sé afgreiðslu málsins, það endurskoðað og athugað betur. En undir þessa álitsgerð skrifar öll stjórn Búnaðarsambands Suður-Þingeyinga: Hermóður Guðmundsson, Baldvin Baldursson og Teitur Björnsson.

Ég hef nú rakið hér umsagnir búnaðarsambandanna, sem höfðu eitthvað um málið að segja, þ.e.a.s. sem höfðu sýnilega farið ofan í það og kynnt sér það að verulegu marki og höfðu við það brtt. Ég tel, að margar þeirra hafi verið þess eðlis, að það hefði verið fullkomin ástæða til að taka þær til greina að verulegu leyti, og þess vegna hef ég viljað kynna þær hér frekar til þess að leggja áherslu á þýðingu þeirra.

Ég kemst ekki hjá því að taka hér upp lítils háttar úr umsögn sveitarfélaganna í þessu efni. Ég hef í nál. bent á vissa þætti úr umsögn Sambands ísl. sveitarfélaga, en umfram það, sem þar er sagt, hefði ég viljað benda hér á einhverja stutta kafla úr umsögn Samtaka sveitarfélaga í Suðurlandskjördæmi. Þar segir svo:

„Stjórn Samtaka sveitarfélaga í Suðurlandskjördæmi hefur fjallað ítarlega um frv. og þó einkum þær hliðar þess, er snúa að sveitarstjórnarmálum. Stjórnin vill með þessari umsögn sinni benda á það, sem henni þykir betur mega fara í frv., og leggur áherslu á það, að ekki verði reynt að lögfesta það í núverandi mynd.“

Ég ætla að sleppa hér 1. liðnum, hann fellur nokkurn veginn alveg saman við umsögn skipulagsstjórnar ríkisins. Ég tel því ástæðulaust að vera að þylja það hér upp. Hins vegar vil ég benda á, að það fellur þar saman.

„2. Í 3. gr., sbr. grg. frv., er gert ráð fyrir, að landbrn. sjái um, að haldin verði skrá af einum aðila yfir allar jarðir, svo og að gerðir verði uppdrættir með landamerkjum af sveitum landsins. Í þessu sambandi skal á það bent, að með frv. til l. um skráningu og mat fasteigna er gert ráð fyrir, að sérstök stofnun taki til starfa, Fasteignaskrá, og hún hafi þessi störf m.a. með höndum, og að sú stofnun heyri undir annað rn, fjmrn.

Í 4. gr. frv. er gert ráð fyrir, að landbrh. skeri úr ágreiningi um það, hvað telja skuli þéttbýlissvæði, en í skipulagslögum er gert ráð fyrir, að félmrh. skeri úr í þessu efni. Hér er alveg á sama hátt dæmi um ósamræmi milli þeirra l., sem í gildi verða, ef þetta frv. verður lögfest. Þá sem sagt rekast á jarðalög og skipulagslög.

Í 5. gr. frv. fjallar um byggðaráð. Þar er gert ráð fyrir, að sýslunefndir, búnaðarsambönd og ráðh. tilnefni byggðaráð. Á það skal bent, að mikið hefur verið rætt og ritað um ofvöxt ríkiskerfisins. Hér er ætlunin að stofna nýtt kerfi með ráðum, sem gætu orðið alls 24, með þremur aðal- og þremur varamönnum. Með þessu er jafnframt gengið á rétt hinna einstöku sveitarfélaga, sem til þessa hafa farið með þau verkefni, sem byggðaráðinu eru m.a. ætluð. Þá skal á það bent, að sýslunefndir eru af flestum taldar í mjög lausum tengslum við sveitarstjórnirnar í landinu, svo að ekki sé fastar að orði kveðið. Til þess að bæta úr því, sem ekki hefur tekist með starfi sýslunefnda, voru stofnuð landshlutasamtök sveitarfélaga í öllum kjördæmum landsins. Löggjafinn hefur viðurkennt tilvist þeirra og rétt með fjölmörgu móti. Varðandi landshlutasamtökin skal minnt á lög um tekjustofna sveitarfélaga, lög um Framkvæmdastofnun ríkisins og frv. til l. um grunnskóla, og loks skal minnt á áðurnefnt lagafrv. um skráningu og mat fasteigna, 18. gr. Það er þess vegna till. stjórnarinnar, að fundin verði önnur leið í samráði við sveitarfélögin og samtök þeirra um það, hvernig ná megi því, sem að er stefnt í II. kafla frv.“

Þessi umsögn hnígur að því að benda á, að byggðaráðin séu þarna óeðlileg og þau störf, sem þarf að vinna, verði fremur unnin á vegum sveitarfélaganna.

„13. gr. frv. gerir ráð fyrir því, að byggðaráðin verði enn einn aðili, sem fari með skipulagsmálin í landinu. Stjórnin telur frekar þörf að samræma og efla stjórn þessara aðila að skipulagsmálum í landinu í heild, áður en gengið er að því að setja upp nýtt kerfi á vegum ríkisins. Með þessu vill þó stjórnin alls ekki hafa á móti virkari aðild Búnaðarfélags Íslands um skipulagsmál í sveitum landsins. Má þar benda á, að t.d. gæti þótt eðlilegt, að Búnaðarfélag Íslands öðlaðist rétt til að tilnefna fulltrúa í skipulagsstjórn ríkisins.“

Ég held, að ég taki ekki fleira upp úr þessari umsögn, til þess að lengja ekki mál mitt a.m.k. ekki allt of mikið, en vil þó hafa hér yfir síðustu orð umsagnarinnar: „Það fer m.ö.o. ekki mikið fyrir hlut sveitarfélaga í frv., en við nánari lestur kemur í ljós, að ætlunin er að færa valdsvið sveitarfélaga og eignar- og umráðarétt bænda í ríkum mæli yfir í hendur ríkisvaldsins.“

Undir þetta álit skrifa formaður sambandsins, Ölver Karlsson, og framkvstj. þess, Sigfinnur Sigurðsson.

Þá vil ég að lokum aðeins kynna hér ályktun, sem mér hefur borist í hendur frá Landeigendafélagi Austur-Húnavatnssýslu um frv. til jarðalaga. Þangað var þetta frv. að vísu ekki sent til umsagnar, en mér hefur borist þessi ályktun, og ég vildi gjarnan fá að kynna hana hv. þdm. Er hún á þessa leið, með leyfi hæstv. forseta:

„Stjórn Landeigendafélags Austur-Húnavatnssýslu hefur haft til athugunar frv. til jarðalaga, er liggur fyrir Alþ. því, er nú situr. Telur stjórnin ýmis ákvæði þess í veigamiklum atriðum svo gölluð eða orka svo tvímælis, að ekki sé viðunandi að óbreyttu.

Segja má, að eignar- og umráðaréttur landeigenda sé svo stórlega skertur, að stappi næst því, að þeir séu sviptir sjálfsforræði til að ráðstafa jörðum sínum til sölu á frjálsan hátt, næstum hvernig sem á stendur, og verða að sæta mati á sölu, sem þýðir í flestum tilfellum miklu lægra verð en fáanlegt væri fyrir þær á frjálsum markaði.

Til að benda á nokkur atriði litur stjórnin svo á, að byggðaráði sé ætlað óeðlilega mikið vald til hvers konar afskipta og íhlutunar í sambandi við kaup og sölu jarðeigna, og álitur, að í stað byggðaráðs væri eðlilegt, að sýslunefnd og búnaðarsamband kysu sinn manninn hvort til fjögurra ára í senn til að vera sveitarstjórnum og öðrum forkaupsréttarhöfum til aðstoðar og ráðgjafar, ef með þyrfti. Þess vegna vill stjórnin fella niður öll ákvæði um íhlutun Búnaðarfélags Íslands og landbrh. í frv. þessu, nema um ríkisjarðir sé að ræða. Álítur stjórnin, að allt það vald, sem þessum aðilum er ætlað í frv.. eigi að vera í höndum heimaaðila, þ.e. sveitarstjórna með aðstoð búnaðarsambands og sýslunefndar, — ekki meira vald til opinberra aðila í Reykjavík. Það virðist ganga sem rauður þráður í gegnum frv., að náist ekki samkomulag um söluverð jarða, þá skuli mat dómkvaddra manna ráða. Meðan sams konar ákvæði um sölu fasteigna í kaupstöðum er ekki áformað eða í lög leitt, getur stjórnin ekki fallist á þetta og mótmælir því, enda vafasamt, að slík skerðing á eignarrétti stæðist samkv. ákvæði stjórnarskrár um friðhelgi eignarréttarins.

Eftir atvikum getur stjórnin fallist á kaflann um Jarðasjóð ríkisins, nema 39. gr. Þar er bersýnilega verið að draga allt vald úr höndum hænda til embættismanna utan bændastéttarinnar, og vísast til þess, sem áður er fram tekið, að það verði í höndum heimamanna. Þá virðist sjóðnum ætlað of lítið fjármagn til að valda hlutverki sínu.

Um óðalsjarðir: Vafasamt er, að þessi kafli eigi nokkurn rétt á sér, a.m.k. í því formi, sem frv. gerir ráð fyrir. Vist má telja, að fáir bændur verði fúsir til að binda jarðir sínar í þær viðjar að verða að afhenda þær jafnvel til fjarskyldra ættingja fyrir hálft fasteignamat eða jafnvel ekki neitt, ef á þeim hvíla skuldir. Gert er ráð fyrir í frv., að l. um ættarjarðir falli úr gildi, og er það vel.

Blönduósi, 8. febrúar 1974.

Konráð Eggertsson,

Sigurður Þorbjarnarson,

Pétur Hafsteinsson,

Erlendur Eysteinsson,

Björn Jónsson.“

Fyrst mér barst þetta í hendur, þótti mér rétt að kynna það hv. þdm. Í því eru ýmis atriði, sem eru athyglisverð og ég tel. að rétt væri að hafa til athugunar, ef farið yrði að till. okkar um að endurskoða frv. nánar.

Ég tel. að næst væri eðlilegt að víkja lítils háttar að þeim breyt., sem meiri hl. landbn. hefur lagt til, að gerðar yrðu á frv., til þess að sjá, að hverju þær stefna og hvers megi vænta af þeim.

Nokkrar þeirra eru einungis gerðar til leiðréttingar, eins og 1. till.

2. till., sem ég hef nú aðeins lítilsháttar fjallað um hér, er um það, að 2. liður 6. gr. falli niður, en hann er um það, að byggðaráðum er ætlað að stuðla að skipulagi dreifbýlis, m.a. með ábendingum og tillögugerð sveitarstjórnar. Ég hygg, að þetta muni vera lagt til þess að undirstrika það, að byggðaráðin megi ekki verða skipulagsaðilar. En það er fjarri því, að þetta nægi til þess, því að það er gert ráð fyrir því blátt áfram í 6. gr., að byggðaráð á að gera till. um úthlutun landssvæða til ræktunar, byggingar sumarbústaða og almennra útilífsnota, þar sem þörf er talin fyrir land í þessu skyni. Byggðaráð á að fylgjast með töku hvers konar jarðefna. Byggðaráð á að gæta þess, að mannvirki verði ekki reist án heimildar réttra yfirvalda. Það sem sagt stendur eftir, að byggðaráðin eigi að fjalla um skipulagsmálefni, þó að þessi eini liður sé felldur burt, þar sem gert er ráð fyrir, að þau eigi að stuðla að skipulagi dreifbýlis með ábendingum til sveitarstjórna.

Þá er 3. brtt., sem mér finnst dálítið einkennileg. Hún er við 10. gr. 10. gr. fjallar um það, að ef byggðaráð neiti að samþykkja áformaða sölu fasteignar og rn. staðfestir þá ákvörðun, þá getur eigandi eða umráðamaður jarðeignarinnar gert kröfu til þess, að ríkissjóður kaupi þá eign, sem hann vildi láta af hendi. Náist ekki samkomulag um verð, skal mat dómkvaddra manna ráða. Í þessari gr., eins og hún er í frv. eru að vísu ekki nein fyrirmæli um það, til hverra hluta eigi að taka tillit við það mat, sem framkvæmt yrði, svo að það má segja, að hún yrði nokkuð botnlaus. Ég geri ráð fyrir því, að meiri hl. hafi ætlað að setja þarna skýrari ákvæði með þeirri brtt., sem lagt er til. að gerð verði, þar sem er gert ráð fyrir, að síðasti málsl. verði orðaður eins og segir í brtt.: Náist ekki samkomulag um verð, skal kaupverð eignarinnar ákveðið samkv. IX. kafla l. nr. 36 1961: — Það munu vera ábúðarlög. Nú er áformað að fella þau úr gildi með nýjum ábúðarlögum. Ég hef lesið yfir þennan IX. kafla l., og ég sé þar aðeins þetta eina ákvæði, sem getur orðið til leiðsagnar um það, við hvað eigi að miða matsgerð. Þar segir svo í 51. gr.:

„Við matsgerðir þessar ber úttektarmönnum að taka tillit til almennra verðbreytinga, sem orðið hafa á mannvirkjagerð.“ Ég tel það óeðlilegt að setja inn í ný lög ákvæði laga, sem ætlað er að nema úr gildi. Ég geri ráð fyrir, að þetta standist, en mér finnst þetta andkannalegt.

4., 5., 6. og 7. brtt. meiri hl. miða allar að því að taka tillit til tillagna sveitarstjórnanna, þannig að þessu eina orði, „sveitarstjórn“, er bætt inn í frvgr., svo að samþykkis sveitarstjórna verði leitað í ýmsum efnum, og er það vel, að þetta er tekið upp. Það er strax til bóta, þó að ég telji það alls ekki fullnægjandi.

8. brtt. er mjög lítilvæg. Hún er aðeins frekari skýring á skiptingu á kostnaði við byggðaráðin. Í 9, brtt. miðar að því, að forkaupsréttur vinnist við 8 ár á ábúð í stað 10 ára áður í frv. Ég hef engar aths. við það að gera.

10. brtt. er um fresti vegna forkaupsréttarákvæða, sem ég tel mjög eðlilegt að breyta í þá átt, sem þar er gert. Í stað 5 sólarhringa komi 10.

11. brtt. miðar í sömu átt og sú, sem ég var að lýsa áðan. Þar er tekin ákvörðun um það, við hvaða mat skuli miða, og er það gert með sama hætti og ég taldi hér fram áður.

Þær brtt., sem hér koma á eftir, eru meira til leiðréttingar og ekki mikilvægar, að mér sýnist.

Að síðustu er svo 18. brtt., sem ég vildi aðeins koma lítillega að. Hún er við 65. gr. l., gildistökugr., þar sem gert er ráð fyrir í frv. að fella úr gildi nokkur ákveðin lagafyrirmæli. M.a. er þar talað um að fella niður III.-XI. kafla l. nr. 45 1971, en XI. kaflinn er um Landnám ríkisins. Eins og ég hef bent á hér að framan, eru ýmsir aðilar, sem hafa um þetta frv. fjallað, sem telja sig andvíga því að leggja niður Landnám ríkisins. Ég hafði haldið, þegar ég sá þessa 18. till. frá meiri hl., að þeir hefðu fallist á þetta sjónarmið, því að till. er um það, að „orðin“ og III.-XI. kafli l. nr. 45 1971“ falli niður“, sem sagt miðar að því að halda ákvæðum um Landnám ríkisins í gildi enn um sinn. Ég átti ekki svo mjög erfitt með að trúa því, að þetta gæti verið þannig, að nm. hefðu fallist á þetta. Ég vil í því sambandi minna á það, að í umr. á Alþ. 31. jan. í vetur, þegar 1. þm. Vestf. ræddi um framkvæmd Inn-Djúpsáætlunar, fór hann mjög lofsamlegum orðum um vinnubrögð Landnáms ríkisins. Ég vil, með leyfi forseta, fá að vitna hér í mjög stuttan kafla úr ræðum hans:

Árið 1971 fóru fram viðræður milli landnámsstjóra og stjórnar búnaðarfélaga þessara hreppa, sem ég hef nefnt. Um svipað leyti skrifaði Ræktunarsamband Nauteyrar- og Snæfjallahrepps til Búnaðarfélags Íslands út af fjárhagserfiðleikum af rekstri við vélar sambandsins, og var það erindi sent landnámsstjóra til umsagnar. Þá fjallaði Stéttarsamband bænda í sept. 1971 um erindi oddvita og formanna búnaðarfélaga áðurnefndra hreppa, þar sem farið er fram á aðstoð til að auka ræktun við Inn-Djúp vegna kals og harðæris undanfarin ár og treysta búsetu á þessu svæði. Á þeim aðalfundi var samþykkt till., þar sem stjórn Stéttarsambandsins var falið að leita eftir því við landnámsstjóra, að Landnám ríkisins tæki að sér endurskipulagningu á ræktun í Inn-Djúpi. Landnámsstjórn tók þessi mál fyrir á fundi í okt. 1971 og fól landnámsstjóra að vinna að málinu og kanna möguleika á endurskipulagningu ræktunarmála í þessum fjórum hreppum. Má segja, að þar með hafi hafist forusta Landnáms ríkisins um frumkönnun og áætlunargerð fyrir bústofn á jörðum fyrir Inn-Djúpið.“

Og í lok ræðu sinnar sagði hv. þm. svo:

„Ég vík að lokum að þáltill. Mönnum var að sjálfsögðu ljóst, að nauðsynlegt var að fela einhverjum einum aðila framkvæmd Inn-Djúpsáætlunar. Það er ekki nóg að gera áætlun, það verður að tryggja framkvæmd hennar. Þótti mönnum þá eðlilegast að fara þess á leit við Landnám ríkisins, að það hefði yfirumsjón með framkvæmd Inn-Djúpsáætlunar, enda hefur Landnámið haft bar þá forustu, sem vel hefur tekist.“

Vegna þessara ummæla m.a. þóttist ég skilja, að það væri í alvöru meint, að sú skoðun væri komin upp, að Landnám ríkisins skyldi ekki fellt niður. En það má segja um það, að Adam var ekki lengi í Paradís. Og ég held, að daginn eftir að brtt. frá meiri hl. n. voru lagðar fram hér á Alþ. var lagt á borð okkar alþm. stjfrv. til l. um breyt. á l. um Stofnlánadeild landbúnaðarins, landnám, ræktun og byggingar í sveitum, og 4. gr. þess frv. hljóðar nákvæmlega eins og brtt. meiri hl. n. að öðru leyti en því, að þær stefna hvor gegn annarri. Frv. er flutt til þess eins að leggja niður Landnám ríkisins. Og þá verð ég að segja það, að mig furðar á þessum vinnubrögðum. Ég á erfitt með að átta míg á því, hvers konar blindingsleikur það er, sem hér er leikinn í þessum málum. Ég held, að ég, þurfi ekki að fara fleiri orðum um það. Það sjá allir heilvita menn, að svona vinnubrögð eru algerlega ósæmileg, því að þótt þeir, sem standa að meirihlutaáliti landbn. séu ekki ráðh., þá vænti ég þess, að þeir hafi einhverja hugmynd um, hvað er að gerast um stjfrv., sem lögð eru fram á þingi. Það hélt ég, að væri þingvenja.

Við, sem stöndum að áliti minni hl. n., höfum sannfærst um það við athugun á frv., að á því verði að gera veigamiklar breytingar, svo að það nái megin tilgangi sínum. Hann er svo mikilvægur, og okkur ber að búa svo um hnútana, að líklegt sé, að hann náist. Því miður virðist það ekki vera svo, að þær brtt., sem meiri hl. ber fram, valdi því að gera frv. betur úr garði að þessu leyti. Umsagnir þær, sem borist hafa til n., undirstrika þá skoðun okkar, að breytinga sé þörf. Það kemur líka í ljós, að ekki hefur verið haft samráð við þær stofnanir, sem mesta reynslu hafa um meginviðfangsefni þess mikla málefnis, sem frv. fjallar um, en þar á ég við skipulagsstjórn ríkisins, landnámsstjórn ríkisins og Samband ísl. sveitarfélaga.

Þegar 1. umr. fór fram um jarðalagafrv. fyrr á þessu þingi, gerði ég aths. við það í stuttu máli. Ég benti þá á, að auðveldast væri að hafa vald á nýtingu og eignarrétti jarða með því að færa út skipulagsskylduna, færa hana út yfir strjálbýlið allt. Þess finnast nú þegar dæmi, að sveitarstjórn hefur gripið inn í um ráðstöfun lands í krafti skipulags sveitarfélagsins. Þess er skemmst að minnast fyrir mig. Ég á aðild að því að hafa umráð yfir einni verðmætri jörð austur í Árnessýslu. Stjórn sveitarfélagsins, sem hún er í, hafði fyrir nokkru gert sveitarfélagið skipulagsskylt. Svo vildi til, að ágætir menn hér í Reykjavík, starfsmannahópur, hafði óskað eftir því að fá nokkra landsspildu úr þessari jörð til þess að reisa á sumarbústaði. Stjórnendur jarðarinnar voru nokkuð í vafa um, hvort það væri rétt að fara að því ráði að setja þar upp sumarbústaðahverfi. En eigendurnir þurftu ekki lengi að brjóta heilann um málið, því að sveitarstjórnin, sem hafði gert sveifarfélagið skipulagsskylt, tók málið í sínar hendur og bannaði, að landinu yrði ráðstafað til þessara hluta. Ég held, að þetta dæmi hafi sýnt mér það betur og sannað en nokkuð annað í sambandi við þessi mál, að það er einmitt skipulagið, sem á að koma þarna til, þegar ráðstafað er jörð og ákveðið um nýtingu á landi.

Í ræðu minni fyrr í vetur benti ég einnig á, að það væri með öllu óeðlilegt að fella úr gildi lögin um Landnám ríkisins, og nægir hér að vitna til umsagnar t.d. frá Búnaðarsambandi Suður-Þingeyinga, sem ég kynnti hér áðan og styður þetta álit okkar í minni hl. Að vísu virðist meiri hl. hafa fallist á þessa skoðun, sbr. brtt., sem ég lýsti hér áðan. En eins og ég gat um þá, virðist öll þessi saga vera í alveg furðulegum kaflaskiptum, og ég átta mig ekki á, hvar eru settir punktarnir í þeim málum.

Þá benti ég á, að þau verkefni, sem hin svokölluðu byggðaráð eiga að sinna, væru í eðli sínu sveitarstjórnarmálefni og því sjálfsagt, að sveitarstjórnirnar, sem skipaðar eru lýðræðislega kjörnum fulltrúum allra íbúa í viðkomandi byggðarlögum, hafi með höndum flest þeirra mála, sem byggðaráðunum er ætlað að annast. Við íhugun þessa frv. verður það æ ljósara, að byggðaráðin eru alls óþarfar stofnanir, og með góðu móti má leysa þau af hólmi með því að fá stofnunum, sem fyrir eru í stjórnkerfinu, öll þeirra störf í hendur.

Minni hl. leggur á það áherslu, að þrátt fyrir hinar 18 brtt., sem meiri hl. flytur, er frv. litlu nær því en áður að ná þeim megintilgangi að fyrirbyggja, að jarðeignum sé ráðstafað með óeðlilegum hætti miðað við viðskiptavenjur, né að koma í veg fyrir brask með jarðeignir í hagnaðarskyni. Að okkar mati hefur ekki tekist með ákvæðum þessa frv. að ná þessum höfuðmarkmiðum þess. Haldbetra væri að ganga þannig frá skipulagsmálum strjálbýlisins og ákvæðum um ábúð jarða, að eigendum þeirra væri skylt að halda jörðum í ábúð með hæfilegum leigukjörum og nauðsynlegu frjálsræði ábúenda til framkvæmda á þeim.

Minni hl. landbn. telur, að þar sem ekki hefur tekist samstaða nm, um að færa frv. til þess horfs, að viðunandi sé á því Alþ., er nú situr, þá beri að hafna því. Minni hl. leggur til, að því verði vísað til ríkisstj. til endurskoðunar, sem væri unnin í samstarfi við Samband ísl. sveitarfélaga, Landnám ríkisins og skipulagsstjórn ríkisins.