11.03.1974
Neðri deild: 77. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2672 í B-deild Alþingistíðinda. (2412)
244. mál, veiðar með botnvörpu, flotvörpu og dragnót í fiskveiðilandhelginni
Frsm. (Garðar Sigurðsson):
Herra forseti. Á þskj, 456 liggur fyrir nál. frá sjútvn. hv. d. um frv. til I. um breyt. á l. um 102 1973, um veiðar með botnvörpu, flotvörpu og dragnót í fiskveiðilandhelgi. Þetta frv. er til leiðréttingar á mistökum, sem hafa, eins og segir í grg., orðið við gerð uppdrátta, sem sýndu fyrirhugaðar togveiðiheimildir fyrir Norðurlandi. Þá gleymdist sem sagt að taka með í reikninginn þrjá grunnlínupunkta, frá Siglunesi, Flatey og Lágey. Með þessu frv. leiðréttast þessi mistök.
Sjútvn. hefur rætt frv. á fundum sínum og leggur til, að það verði samþ. óbreytt.
Ég vil að lokum leyfa mér að mælast til þess við hæstv. forseta, að afgreiðslu þessa máls verði hraðað svo sem kostur er.