11.03.1974
Neðri deild: 77. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2673 í B-deild Alþingistíðinda. (2414)

244. mál, veiðar með botnvörpu, flotvörpu og dragnót í fiskveiðilandhelginni

Sjútvrh. (Lúðvík Jósepsson):

Herra forseti. Það er aðeins til að svara þeirri fsp., sem fram kom hér varðandi hið auglýsta línuveiðisvæði út af Vestfjörðum, sem ákveðið var nú fyrir stuttu. Það er rétt, að það hefur komið upp greinilegur ágreiningur um það, hvort ástæða hafi verið til að lýsa það svæði, sem þar um ræðir, eingöngu sem línuveiðisvæði fyrir báta. Og þá kemur það upp, eins og skiljanlegt er, að það eru togaramenn, sem eru óánægðir með það, að þarna er af þeim tekið svæði um stuttan tíma. Ástæðurnar til þess, að rn. féllst á að auglýsa á þessum stað um þennan stutta tíma friðunarsvæði, sem væri ætlað eingöngu fyrir línuveiðar, voru þær, að borist höfðu til ráðuneytisins mjög eindregin tilmæli frá útgerðarmönnum og sjómönnum á sunnanverðum Vestfjörðum, og þessi tilmæli höfðu verið margítrekuð, þar sem þeir kvörtuðu mjög undan ágangi togara, erlendra og innlendra, á línum sínum, og þarna höfðu orðið mjög alvarlegir árekstrar. Eftir að rn. hafði kannað málið og engir þeirra aðila, sem um voru spurðir og til var leitað, höfðu mælt gegn þessu, þá var orðið við beiðninni um að lýsa þetta svæði sérstaklega friðað fyrir línu á þessum tíma, eða fram til 15. þ.m. Það eru nú eftir d dagar eða svo, þar til þetta rennur út. En síðan hefur það komið upp, — og kom okkur ekki alveg á óvart og hafði komið reyndar fram í umr. á Alþingi, þegar þm. Vestf. hafa sérstaklega verið að leita eftir því, hvort möguleikar væru á því að skipuleggja veiðarnar fyrir vestan á þennan hátt, — að það er talsvert vandasamt að setja reglur eins og þessar, þannig að allir séu ánægðir. Og það hefur komið mjög berlega fram í þessu tilfelli. Verður eflaust dráttur á því, að friðunarsvæði af þessari tegund verði sett fyrir vestan, a.m.k. meðan Vestfirðingar koma sér ekki betur saman um það en raun hefur á orðið.

Varðandi svo hitt atriðið, að þetta svæði sé opið fyrir Breta, en aðeins lokað fyrir Íslendingum, er það algjörlega rangt. Landhelgisgæslan hefur upplýst, að hún hafi stuggað breskum togurum þar frá, ekki síður en íslenskum, og fréttir voru nú að berast um það í hádegisútvarpinu, að Landhelgisgæslan hefði rekið útlendu togarana út af þessu svæði og þeir væru síðan farnir að skeyta skapi sínu á íslenskum togurum fyrir að fá ekki að veiða á þessu svæði.

Allt þetta þekkjum við, að þetta gerist auðvitað, þegar gripið er inn í veiðireglurnar á þennan hátt. Það er sem sagt ekki vandalaust að ætla að stjórna þessum veiðum á lipurlegan hátt, eins og hv. þm. sagði, því að það er erfitt að gera í þessum efnum, svo að öllum líki. En við höfum séð af þessu tilfelli, sem þarna hefur orðið, a það er jafnvel þörf á því að kanna umsóknir enn betur en gert var í þessu tilfelli, einnig heima í héruðum. Þó að almenn samtök útvegsmanna og sjómanna og opinberir aðilar, eins og sveitarstjórnir, stæðu að beiðninni og ekki væri vitað um nein mótmæli, komu þau upp síðar. Hitt er svo alveg ljóst, að við höfum leyfi til þess að auglýsa friðun með þessum hætti eða að ætla sérstökum veiðarfærum forgangsrétt á tilteknum tímum og svæðum. Útlendingum ber skylda til að virða þessi svæði, ef þau eru auglýst á eðlilegan hátt. En það er auðvitað alveg ljóst, að það er hætta á því, að þarna geti orðið um einhverja árekstra að ræða á milli mismunandi hagsmuna, sem koma upp hjá okkar eigin landsmönnum í hverju tilfelli fyrir sig.

Ég vil svo vænta þess, að umr. um þetta atriði þurfi ekki að vera til þess að tefja enn þær breytingar, sem nauðsynlegt er að gera með því frv., sem hér liggur fyrir og ég hefði vænst, að hægt hefði verið að afgreiða héðan úr deildinni í dag.