11.03.1974
Neðri deild: 77. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2674 í B-deild Alþingistíðinda. (2415)
244. mál, veiðar með botnvörpu, flotvörpu og dragnót í fiskveiðilandhelginni
Forsrh. (Ólafur Jóhannesson):
Herra forseti. Það var aðeins út af síðara atriðinu, sem hv. 4. þm. Austf. drap á, að það hafa ekki borist neinar kærur til dómsmrn. yfir veiðum breskra togara á þessu svæði, og mér er ekki kunnugt um það eftir fregnum frá Landhelgisgæslunni, að þeir hafi veitt á þessu svæði. Þegar þetta var ákveðið, var utanrrn. beðið að tilkynna það breska sendiráðinu, og það var gert.
Það er kannske ástæða til þess, þó að það sé ekki vert að tefja umr. um þetta mál, en úr því að það er farið að minnast á það í þessu sambandi, að rifja upp, hvert tilefnið var til þess, að þessar reglur voru settar. Það var m.a. það, að fyrir rúmri viku eða hálfum mánuði stóð einn hv. þm. upp í Ed. utan dagskrár og beindi til mín fsp. um það, hvað væri gert til þess að vernda veiðar báta á þessum svæðum, sem þeir teldu, að þeir ættu hefðbundinn rétt til. Þá voru taldir upp, ef ég utan rétt, í skýrslu, sem hann var þar með, um 11 eða 12 bátar, sem töldu sig hafa orðið fyrir veiðarfæratjóni, og var talið upp, hversu stórfellt það var. Og þá voru breskir togarar bornir þeim sökum að vera að veiða þarna, en íslenskir togarar voru ekki nefndir í því sambandi og þess ekki látið getið, að þeir væru að veiða á þessu svæði. Ég óskaði þá eftir því, að þessir bátaskipstjórar gæfu skýrslu um tjón sitt fyrir viðkomandi sýslumönnum, bæði á Ísafirði og á Patreksfirði, til þess að það væri hægt að undirbyggja skaðabótakröfur á hendur breskum skipstjórum. En mér er ekki kunnugt um, að þessar skýrslur hafi verið gefnar enn, nema e.t.v. ein. En jafnframt lét ég þess getið, að ég mundi snúa mér til sjútvrn. með þetta, þar sem það heyrði undir það, að setja reglur um friðun. Ég hygg þess vegna, að það hafi ekki verið að tilefnislausu, að það var gripið til þess að setja þessar reglur. Hitt er svo annað mál. að það kemur sjálfsagt á daginn, eins og ég sagði þá í umr., að þar sem fiskur er, þangað leita allir, jafnt togarar og þeir, sem stunda annars konar veiðar. En eins og hæstv. sjútvrh. gat um, er ekki löng bið í það, að þetta endi að þessu sinni, þar sem það er miðað við 15. þ.m.