11.03.1974
Neðri deild: 78. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2675 í B-deild Alþingistíðinda. (2420)

233. mál, ríkisreikningurinn 1971

Fjmrh. (Halldór E. Sigurðsson):

Herra forseti. Á þskj. 397 er frv. til l. um samþykkt ríkisreikningsins fyrir árið 1971. Yfirskoðunarmenn ríkisreikningsins gengu frá endurskoðun hans 10. apríl 1973, en það mun hafa verið um það leyti sem Alþingi lauk störfum á þeim vetri.

Eins og venja er til, fylgja þessum ríkisreikningi fyrirspurnir yfirskoðunarmanna ríkisreikningsins um allt, sem þeir spurðu um, og svör við því, sem þeir spurðu um. Kemur fram hjá yfirskoðunarmönnum ríkisreikningsins, að þeir hafa fengið svör við fsp. sínum, sem þeir telja fullnægjandi og skýra málið á þann veg, sem þeir óska. Þau atriði, sem þeir hafa helst við að athuga og vekja sérstaka athygli á, eru kostnaður við framkvæmdir hjá Ríkisútvarpinu, er þar um að ræða innheimtustofnun Ríkisútvarpsins og kaffistofu sjónvarpsins, sem lauk á því ári, en hafði áður komið hér við sögu, og enn fremur að einum lögfræðingi hafði verið fengin yfirstjórn innheimtunnar. Sá lögfr. hafði opna skrifstofu á eigin vegum og rak hana í stofnuninni. Við þetta hafa yfirskoðunarmenn athugasemdir að gera, telja það óheppilegt og vilja sérstaklega vekja athygli á því. Önnur atriði í athugasemdum þeirra eru ekki þess eðlis, að ástæða sé til að gera þau að umræðuefni.

Eins og venja er til, fóru á þessu ári gjöld nokkuð fram úr því, sem gert var ráð fyrir í fjárlögum, enda ekki undarlegt, því að þegar fjárlög voru afgreidd fyrir það ár, var ekki búið að ganga frá kjarasamningum við ríkisstarfsmenn, og var þá gert ráð fyrir einni tölu til þess að mæta þeim útgjöldum, en í reikningnum hefur þetta verið fært á hvern lið fyrir sig.

Ég sé ekki ástæðu til að ræða ríkisreikninginn frekar, hann fór ath.semdalaust í gegnum hv. Ed. Alþingis, en legg til, herra forseti, að að lokinni þessari umr. verði frv. vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn. Ég treysti hv. n. til að hraða svo störfum, að reikningurinn verði afgreiddur á þessu þingi.