12.03.1974
Sameinað þing: 65. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2697 í B-deild Alþingistíðinda. (2445)

195. mál, bundnar innistæður í Seðlabanka Íslands

Sjútvrh. (Lúðvík Jósepsson):

Herra forseti. Spurt er um, hversu hárri fjárhæð námu bundnar innistæður banka, sparisjóða og innlánsdeilda hjá Seðlabanka Íslands um s.l. áramót? — Þær upplýsingar, sem ég hef fengið um þetta mál, eru frá Seðlabankanum og eru á þessa leið:

Bundið fé innlánsstofnana hjá Seðlabankanum nam 6797 millj. kr. í árslok 1973. Eins og kunnugt er, miðast bindiskyld fjárhæð við heildarinnlánsfé hjá hverri stofnun. Er bindiskyldan reiknuð út og greidd í einu lagi fyrir hverja stofnun. Útibú viðskiptabankanna hafa því ekki sérstaka bundna reikninga í Seðlabankanum, og Seðlabankinn reiknar ekki sérstaklega út bindiskyldufjárhæð hvers útibús.

Spurningunni um skiptingu bundna fjárins á kjördæmi verður því ekki svarað með því að líta á það, hverjir eru reikningshafar bundinna reikninga í Seðlabanka. Á hinn bóginn er unnt að veita upplýsingar um, hvernig heildarinnistæður hjá innlánsstofnunum skiptast á afgreiðslustaði í einstökum kjördæmum. Endanlegar innistæðutölur liggja ekki fyrir hjá öllum innlánsstofnunum í árslok 1973, en í lok sept. 1973 skiptust innistæður þannig: Reykjavík 17569 millj. kr. eða 57.8%, Reykjanes 2529 millj. eða 8.3%, Vesturland 1534 millj. eða 5%, Vestfirðir 1180 millj. eða 3.9%, Norðurl. v. 1156 millj. kr. eða 3.8%, Norðurl. e. 2660 millj. eða 8.8%, Austurland 1170 millj. kr. eða 3.9% og Suðurland 2588 millj. kr. eða 8.5%. Sé bundnu fé í árslok skipt í sömu hlutföllum á milli kjördæma, verður niðurstaðan svo sem hér segir: Ef gengið er út frá sömu skiptingu áfram og með þessum fyrirvara, sem greindur er, að þetta er miðað við afgreiðslustaði, þá hefði verið bundið frá Reykjavík 3929 millj. kr. eða 57.8%, Reykjanesi 564 millj., Vesturland 340 millj., Vestfjörðum 265 millj., Norðurl. v. 258 millj., Norðurl. e. 598 millj., Austurlandi 265 millj. og Suðurlandi 578 millj., eða samtals bundið 6797 millj. kr.

Þetta eru sem sagt þau svör, sem ég hef fengið varðandi þær fsp., sem hér voru fluttar, og vænti ég, að það verði að teljast fullnægjandi.