12.03.1974
Sameinað þing: 65. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2699 í B-deild Alþingistíðinda. (2447)

195. mál, bundnar innistæður í Seðlabanka Íslands

Sjútvrh. (Lúðvík Jósepsson):

Herra forseti. Það voru aðeins örfá orð í sambandi við þær aths., sem hér voru gerðar af hv. fyrirspyrjanda.

Það er rétt, að oft hafa staðið deilur um það, hversu langt ætti að ganga í þeim efnum að draga inn fé til Seðlabankans með þeim hætti, sem gert er samkv. þessum reglum. En það er misskilningur, sem ég hef heyrt, að ég hafi t.d. sérstaklega verið á móti því. Það er fjarri því. Ég tel, að það þurfi einmitt að draga inn fé með þessum hætti. En það er ekki sama, með hvaða hætti það er gert. Þegar þessar reglur voru upphaflega settar, komu þær inn í frv. varðandi Seðlabankann einmitt í tíð fyrrv. vinstri stjórnar, en þeim hefur hins vegar ekki verið beitt að neinu ráði, fyrr en allmiklu seinna.

Það er ekki rétt að mínum dómi, að þessar bindireglur stefni sérstaklega að því að draga fé frá dreifbýlinu til þéttbýlisins, og þegar litið er í reikninga bankanna, verður því ekki haldið fram, að það hafi verið meginstefnan, síður en svo. Miklu frekar væri hægt að segja, að fé hafi verið dreift út til landsbyggðarinnar á þennan hátt í gegnum bankakerfið. Ég vil hins vegar ekki leggja neinn dóm á það að svo stöddu, hvað langt þessi binding á að ganga eða hvort þörf er á því að beita bindingunni jafnt á allar peningastofnanir í landinu. Það kemur fyllilega til mála að undanþiggja þar viss landssvæði af efnahagslegum ástæðum. Það er alveg rétt. Ég held hins vegar, að það sé enginn vafi á því, að eins og peningamálum okkar er nú háttað, verður ekki undan því vikist að draga inn nokkuð af því fé, sem kemur inn í bankakerfið, og ráðstafa því með hliðsjón af því, sem talið er nauðsynlegt fyrir heildina. — Því get ég svarað, að það eru ekki uppi neinar beinar till. um að breyta þessu að svo komnu máli. En ég fyrir mitt leyti get vel hugsað mér það, eins og ég hef sagt, að það yrði linað eitthvað á bindiskyldunni gagnvart vissum svæðum, sem þá væri liður í ákveðinni efnahagslegri uppbyggingu. En ég held, að ekki sé slíkt ástand ríkjandi hjá okkur nú, að það sé ástæða til þess að draga úr bindiskyldunni almennt séð.