12.03.1974
Sameinað þing: 66. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2711 í B-deild Alþingistíðinda. (2476)
223. mál, stórvirkjun á Norðurlandi vestra
Flm. (Pálmi Jónsson):
Herra forseti. Á þskj. 386 hef ég ásamt hv. 2. þm. Norðurl. v., Gunnari Gíslasyni, leyft mér að flytja till. til þál. um stórvirkjun á Norðurl. v. Till. hljóðar svo með leyfi hæstv. forseta:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að láta hraða svo sem mögulegt er öllum nauðsynlegum undirbúningi, til þess að unnt sé að taka ákvörðun um stórvirkjun á vestanverðu Norðurlandi, er verði næsta stórvirkjun landsmanna og verði annaðhvort í Blöndu eða Jökulsá eystri eða vestri í Skagafirði. Skal allur undirbúningur, þ. á m. lokarannsóknir og hönnun, við það miðaður að hefja megi virkjunarframkvæmdir eigi síðar en árið 1977. Þá skal og við það miðað, að sem minnst spjöll verði á landi, og hafa um þau efni náið samráð við hlutaðeigandi sveitarstjórnir og gróðurverndarnefndir.“
Að undanförnu hafa farið fram miklar umr. um orkumál. Þetta á sér þær rætur fyrst og fremst, að þegar olíukreppan reið yfir heiminn á s.l. hausti, vöknuðum við Íslendingar eins og aðrar vestrænar þjóðir við vondan draum. Þessi orkugjafi, sem við notum í gífurlegum mæli, olían, kostaði tvöfalt til þrefalt á við það sem verið hafði að undanförnu. Enn er ekki séð fyrir endann á því, hvert verður verð olíunnar og raunar spádómar í þá átt næsta fánýtir. Nýlega hefur olía til húsahitunar hækkað upp í 11.50 kr., og er talið, miðað við núverandi innkaup og samninga um olíuverð, að hún muni á næstunni hækka upp í 12.50 kr. Hvað síðar verður, skal ekki hér getum að leitt, en það er í hinni mestu óvissu, eins og þegar er að vikið.
Í annan stað hefur orsökin til þeirra miklu umr. um orkumál. sem hér hafa átt sér stað á hv. Alþ., verið sú, að nóv. og des. s.l. voru óvenjulega kaldir sem orsakaði það að orkuskorturinn kom skýrar í ljós en ella hefði gerst. Þetta tvennt opnaði augu okkar Íslendinga fyrir því, að við höfum með óhæfilegum hætti vanrækt að nýta okkar eigin orkulindir á undanförnum árum og nú er ekki eins og skyldi unnið að því að undirbúa og koma í framkvæmd virkjunum, sem nægðu til þess að útrýma orkuskortinum. Þessi orð eru fjarri því sögð hér til þess að vekja um þetta efni deilur, heldur er nauðsynlegt að gera sér grein fyrir því, að það er okkur lífsspursmál að vinna að því með svo miklum hraða sem unnt er og veita til þess aukið fjármagn að undirbúa fleiri virkjanir og hagnýta bæði raforku og jarðvarma fyrir okkar eigin þjóð.
Nú er það ljóst af þessum orsökum, að eftirspurn eftir raforku vex stórkostlega á næstu árum. Nú er meiri eftirspurn eftir raforku til húsahitunar en nokkru sinni fyrr, og er það ekki að undra, miðað við hinar gífurlegu verðhækkanir á olíu, sem ég hef þegar drepið á. Ef að því væri horfið að koma upp raforkuverum, sem gætu framleitt orku, til þess að allir Íslendingar, sem ekki eiga kost á jarðvarma, gætu hitað upp hús sín með raforku, þá er ljóst, að gera þarf stórkostlegt átak, til þess að því megi verða hrundið í framkvæmd.
Það hefur komið fram í fjölmiðlum, að talið er, að unnt kunni að vera að teygja jarðvarmahitun til allt að 65% landsmanna. Þau 35%, sem þá eru eftir, verða að miklu leyti um sinn að sæta því að hita hús sín með olíu. Til upphitunar með raforku þarf fyrir þennan hluta landsmanna, að því er talið er, allt að 800–1000 gwst. á ári. Þessar 800–1000 gwst. samsvara því, að til þyrfti virkjanir, er væru nálega 200 MW.
Eins og hv. alþm. er kunnugt, eru nú hafnar framkvæmdir við Sigölduvirkjun, og er talað um, að Sigalda gefi um 100 MW. Enn fremur er til meðferðar Alþingis frv. um heimild til að virkja jarðgufu við Kröflu, og yrði sú virkjun 55 MW. Það er því svo ljóst sem verða má, að enda þótt þessar virkjanir kæmust í gagnið, sem vonandi verður á árunum 1976–1978, duga þær ekki til þess að mæta orkuþörf landsmanna til húsahitunar, þó að ekkert annað sé talið. Er þá ekki vikið að því, sem allir vita í dag, að orkuskorturinn í landinu, miðað við aðra þætti, er gífurlegur, og auk þess þarf að gera ráð fyrir stóraukinni orku til iðuvæðingar og jafnvel stóriðju, eins og raunar þegar er á dagskrá, og ætlunin er, að hluti af orkuframleiðslu Sigölduvirkjunar verði notaður til.
Það er því augljóst, að það er alger nauðsyn að taka sem allra fyrst ákvörðun um næstu stórvirkjun landsmanna og stefna að því með þeim hraða sem unnt er að ljúka öllum nauðsynlegum rannsóknum og undirbúningi og hefja síðan byggingarframkvæmdir með þeim hraða sem mögulegt er til þess að ráða bót á þessu stórkostlega vandamáli.
Það er ósk okkar allra, að vel takist til við að koma áfram þeim virkjunarframkvæmdum, sem í gangi eru eða eru í undirbúningi. Um Kröfluvirkjun er þó að segja, að þar hafa enn ekki farið fram boranir, sem nægja til þess, að vita, hvort um tilskilið gufuafl er að ræða, en talað er um, að ef það bregst, muni verða virkjað við Námafjall. Óskandi er, að þær vonir, sem bundnar eru við þessa virkjun, bregðist ekki, og þrátt fyrir það, að þar verði árangur svo góður sem vonir og óskir standa til, þá er eigi að siður nauðsyn á því að hef,ja sem allra fyrst undirbúning og framkvæmdir við nýja virkjun.
Í till. þeirri, sem hér er flutt, er lagt til, að tekin verði ákvörðun um, að næsta stórvirkjun landsmanna verði á Norðurlandi vestra. Í till. er bent á tvo virkjunarkosti, þ.e. við Blöndu og Jökulsárnar í Skagafirði. Þessir kostir eru á marga lund svipaðir, að því er sérfræðingar Orkustofnunar telja, en þar skilur þó á milli, að rannsóknir eru nokkru lengra á veg komnar á Blöndusvæðinu en við Jökulsárnar. Rétt er að átta sig á því, hvað mikilvægast er að hafa í huga, þegar velja skal orkuvinnslufyrirtæki stað og þá ekki síst stórvirkjun. Hingað til hefur eitt atriði verið nálega allsráðandi fyrir mönnum við staðarval orkuvinnslufyrirtækja, og það er hagkvæmni. Hagkvæmni hlýtur alltaf að verða a.m.k. eitt af þeim skilyrðum, sem nauðsynlegast er að kanna, þegar athuga skal nýja virkjunarstaði. Hingað til hefur öðrum þáttum verið miklu minni gaumur gefinn, og á ég þá fyrst og fremst við öryggi. Öryggi er þáttur í þessum efnum, sem gefa verður sívaxandi gaum og hefur sívaxandi þýðingu vegna þess, hve allt okkar líf er háð raforku og vaxandi notkun hennar. Aðrir þættir, sem þetta mál snertir, eru m.a. náttúruverndarsjónarmið, að forðast það að spilla landi, náttúruminjum eða valda vistfræðilegri röskun, og einnig tel ég réttmætt, að höfð sé hliðsjón af byggðasjónarmiðum. Þau styðja fyrst og fremst þá stefnu að dreifa orkuverum um landið.
Ef vikið er að því, hvernig þetta ástand er í dag í sambandi við dreifingu orkuvera og með hliðsjón af öryggi landsmanna, þá er það ekki í nándar nærri eins góðu lagi og vera þyrfti. Búrfellsvirkjun og Sigölduvirkjun, sem hafið er að framkvæma, eru báðar á mesta jarðelda og jarðskjálftasvæði landsins. Kröfluvirkjun, sem yrði þriðja stærsta virkjun landsmanna af þeim, sem má segja að ákveðnar séu, er einnig á hinu sama eldfjalla- og jarðskjálftasvæði, en þetta eldfjallasvæði er á belti eftir móbergssvæðinu, sem liggur frá norðaustri til suðvesturs þvert yfir landið og fylgir sömu stefnu og Atlantshafshryggurinn og sú sprunga, sem talin er liggja eftir honum endilöngum. Það er sannarlega ósk mín og allra Íslendinga, að þær virkjanir, sem nú eru byggðar og eru í byggingu á þessu svæði, megi standast um alla framtíð. Við höfum þó reynslu fyrir því, Íslendingar, að eldsumbrot geta orðið það hörð, að engin mannvirki standast. Það er fjarri mér, að ég sé með neina spádóma um það, að til slíkra óskapa komi í nánd þeirra virkjana, sem hér um ræðir. Það væri þó fásinna, ef framhald yrði á þeirri stefnu að setja niður á þetta svæði allar helstu stórvirkjanir landsmanna á næstu árum. Í því mundi felast slíkt ábyrgðarleysi og slík áhætta, að ekki væri verjandi fyrir neina ráðamenn í þessu landi.
Hér skal ekki vikið fleiri orðum að þessum þætti málsins. En ég get ekki látið hjá líða að minna á það, að einungis nafnið Sigalda hefur ekki góð áhrif á mann. Það væri fróðlegt að fá að vita, við hvað það örnefni er bundið. Og þó að það sé kannske ekki vitað, gefur það í skyn, að þar hafi orðið jarðsig eða hreyfing á jarðlögum.
Það hefur verið vikið að því á yfirstandandi Alþingi, hver nauðsyn er að dreifa orkuverum um landið, og hefur hv. 1. þm. Vestf. ásamt fleirum flutt till., sem styður það sjónarmið.
Þegar vikið er að þeim virkjunarkostum, sem um er rætt í þeirri þáltill., sem hér er til umræðu, benda rannsóknir til þess, að virkjun Blöndu og Jökulsánna í Skagafirði bjóði upp á mjög mikla hagkvæmni. Þar er um stórar virkjanir að ræða. Talað er um 150 MW Blönduvirkjun og álíka stóra virkjun í Jökulsá vestri í Skagafirði. Auk þess er álitlegt að virkja allt að 50–60 MW í Jökulsá eystri. Að áliti starfsmanna Orkustofnunarinnar er hagkvæmni slík á þessum stöðum, að vænta megi þess, að framleiðsla á hver,ja kwst. yrði þar frá 1/6 til 1/3 hagkvæmari en við Sigölduvirkjun. Það þýðir það, að ef t.d. verð á kwst. frá Sigölduvirkjun yrði 60 aurar, þá mundi samsvarandi verð frá Blöndu eða Jökulsárvirkjun verða 40–50 aurar. Hér er því um mjög mikinn mismun að ræða, mjög mikla hagkvæmni, sem óvíst er að unnt sé að finna meiri annars staðar. Þetta atriði eitt ætti að nægja til þess, að hraðað yrði svo sem verða mætti lokarannsóknum við þá virkjunarkosti, sem hér um ræðir. Fleiri atriði eru þarna mjög jákvæð.
Eins og fram hefur komið margsinnis hér á hv. Alþingi og landsmenn raunar allir vita, hefur verið tekin ákvörðun um það af núv. ríkisstj. að tengja saman Laxárvirkjunarsvæðið og Landsvirkjunarsvæðið með svokallaðri byggðalínu. Raforkulínur eru dýrar í byggingu, en þær hafa ýmsa kosti, enda þótt umdeildar hafi verið til þessa. Þær geta, ef rétt er á haldið, aukið mjög öryggi landsmanna til þess að njóta raforku. Það gerist þó því aðeins að raforkuverum sé dreift hæfilega með tilliti til flutnings orkunnar eftir þessum línum. Ef ætti að standa þannig að þessum málum að flytja raforku úr einni átt og frá raforkuverum á takmörkuðu svæði til fjarlægra landshluta, fylgir því mikið öryggisleysi. Ef unnt er að flytja orku frá stórum orkuverum úr fleiri áttum, býður það aftur á móti upp á aukið öryggi. Reynslan sýnir, að raforkulinur bila. Línan frá Búrfellsvirkjun hefur bilað hvað eftir annað, og er þar þó um nýlegt mannvirki að ræða. Þar er einnig um mannvirki að ræða, sem tæpast er hægt að segja, að liggi á svæði, þar sem óveður geisa hörðust á landinu. Í þeim tilraunum, sem fram fóru á s.l. vetri um línubút uppi á öræfum upp af Eyjafirði, þá kubbuðust fingursverir vírar í sundur hvað eftir annað eftir upplýsingum, sem ég hef fengið hjá starfsmönnum Rafmagnsveitna ríkisins. Línubilanir eru tíðar hér á landi, eins og nýleg og eldri dæmi sanna. Hins vegar er það fátítt, að línubilanir verði nema á tiltölulega takmörkuðu svæði í senn, og þess vegna er höfuðatriði fyrir notendur orkunnar að eiga þess kost að fá raforku úr fleiri en einni átt.
Orkuver í Blöndu eða Jökulsánum eystri og vestri í Skagafirði liggur sérstaklega vel hvað þetta snertir. Með því móti ætti t.d. þéttbýlið hér við Faxaflóa, með þeirri gífurlegu raforkuneyslu, sem hér er, þess kost að hljóta raforku hæði frá orkuverum á Þjórsársvæðinu og eins úr gagnstæðri átt frá Blöndu eða Jökulsárvirkjun. Sömu sögu er að segja um Laxárvirkjunarsvæðið, sem ætti þá þess kost að fá raforku frá Laxárvirkjun og væntanlega Kröflu eða Námafjalli og einnig úr gagnstæðri átt frá Blönduvirkjun eða Jökulsárvirkjun. Í þessu er fólgið mjög mikið öryggi, sem, eins og ég hef þegar tekið fram, ber að leggja sívaxandi áherslu á.
Um þá virkjunarkosti, sem hér um ræðir, skal að öðru leyti segja það, að virkjanir í Blöndu og Jökulsánum eru taldar sérstaklega öruggar og auðveldar í framkvæmd. Vatninu er veitt um uppistöðulón og vötn, að stöðvarhúsi. Það veldur því, að aurframburður botnfellur og ístruflanir verða hverfandi litlar í þessum virkjunum, að því er talið er. Einnig að þessu leyti eru þessir virkjunarkostir sérstaklega hagstæðir. Um Blönduvirkjun er það eitt að segja, sem hægt er að kalla neikvætt, að þar er talið, að nokkurt land fari undir vatn. Ég vil taka það fram, að það atriði ber að skoða sérstaklega vel. Ég lít þó svo á, að þar sé fyrst og fremst um það að ræða, að virkjunaraðilar eigi að hafa samstarf við heimamenn um það og leitast við að ná samkomulagi um, hvort bætur geti komið í stað þess lands, sem tapast, og ekki síður hitt, hvort unnt sé að bæta landið upp með öðru móti, þ.e. með því að rækta upp annað land og auka gróðurlendi á öðrum svæðum, sem koma mætti í stað þess, sem tapast við virkjunarframkvæmdir. Þetta er eitt af því, sem enn er ekki fullkannað í þeim rannsóknum, sem farið hafa fram við Blönduvirkjun, en nú er verið að kortleggja þetta svæði allt og draga inn á það hæðarlinur og þegar því verki er lokið, er fyrst unnt með fullu að átta sig á því, hvað hér er um mikið landssvæði að ræða. Það er þó nokkurn veginn ljóst, að unnt er að hafa þarna veruleg áhrif á með því að þrengja þau uppistöðulón, sem um er að ræða og draga saman það land, sem við fyrstu yfirsýn virðist mundu hverfa undir vatn. Að þessu leyti er ekki hægt að segja, að neinir meinbugir séu á, að því er séð verður, í sambandi við Jökulsárvirkjun. Það kann að vera hið eina, sem bendir til þess, að Jökulsárvirkjanir yrðu hagstæðari en Blönduvirkjun, og ber að skoða það atriði sérstaklega. Í till. er að því vikið, að allt það, er snertir landspjöll og hugsanleg spjöll á náttúrufari, náttúruminjum og röskun á vistfræði, verði nákvæmlega skoðað í samráði við hlutaðeigandi sveitarstjórnir og gróðurverndarnefndir.
Í sambandi við fiskrækt og laxgengd er það að segja, að Blanda er mjög góð laxveiðiá. Laxveiðiá getur hún þó naumast kallast á því svæði, sem Blönduvirkjun mundi hafa áhrif á. Hins vegar hefur það þó borið við, að lax hafði veiðst mjög framarlega í Blöndu eða allt fram við Haugakvísl eða jafnvel fram við Seyðisá. Við virkjunarframkvæmdir mundi taka fyrir laxgengd þangað, en ekki verður séð á þessu stigi, að af því mundi verða tjón, svo að neinu nemi. Hins vegar virðist mega gera fastlega ráð fyrir því, að áin sem heild mundi batna verulega sem laxveiðiá, við það, að ánni er veitt í uppistöðulón og um stöðuvötn á leið til stöðvarhúss. Þá mundi taka fyrir aurframburð að verulegu leyti, rennsli mundi verða jafnara, og vatnið mundi hlýna á leiðinni til byggða við að geymast í uppistöðulónum með mjög mikinn yfirborðsflöt. Vatnið yrði því hlýrra, það yrði hreinna og rennslið yrði jafnara. Allt eru þetta atriði, sem benda til þess, að áin mundi að stórum mun batna sem laxveiðiá. Jökulsárnar í Skagafirði eru, að því er tekur til þess, sem virkjanir mundu hafa áhrif á, ekki, svo að mér sé kunnugt, laxveiðiár og ekki um fiskgengd í þeim að ræða.
Ég minntist aðeins á það fyrr í þessari ræðu, að mikilvægt er að hafa byggðasjónarmið í huga, þegar virkjunarstaðir eru ákveðnir. Allir virðast a.m.k. í orði kveðnu vilja styðja byggðastefnu og veita til þess nokkurt fjármagn. Ég skal láta ósagt um það, hver reynslan hefur orðið. Hitt er þó öllum ljóst, að verulegar tilraunir hafa verið gerðar til þess að jafna nokkuð aðstöðu þeirra, sem í hinum strjálu byggðum búa, miðað við þá, sem búa á höfuðþéttbýlissvæði landsins, nú um nokkurra ára skeið. Raforkuskorturinn hamlar nú eðlilegri þróun byggðar á mörgum svæðum landsins og ekki hvað síst Norðurlandi. Eins og nú er, er orkuvinnsla með dísilvélaafli meiri á Norðurlandi v. en orkuvinnsla með vatnsafli. Þessi staðreynd felur það í sér, að orkuvinnslan verður nú sí og æ kostnaðarsamari, og hætt er við því, að orkuverðið frá Rafmagnsveitum ríkisins, sem hafa þessa orkuöflun að mestu með höndum, verði æ hærri. Það er ekki einungis, að þeir einstaklingar og þau heimili, sem þurfa raforku til daglegra nota, verði að sæta dýrari raforku, heldur verður einnig atvinnureksturinn á þessu svæði að kaupa miklu dýrari orku en gerist víða annars staðar á landinu og þá fyrst og fremst hér á Landsvirkjunarsvæðinu, þar sem raforkan er bæði ódýrari og orkuskortur ekki tilfinnanlegur. Það er augljóst mál, að raforka er undirstaða atvinnurekstrar, um leið og hún er undirstaða alls mannlegs lífs, hvar sem er á landinu. Þegar það gerist, að þar sem orkuskorturinn er mestur, er orkan einnig dýrust, þá er ekki von, að það sé hvetjandi fyrir fólk til þess að setjast þar að og reisa atvinnufyrirtæki, og er þarna um að ræða einn þáttinn í orsökum þess mikla misvægis í byggðaþróun, sem átt hefur sér stað hér á landi á undanförnum áratugum. Þessi atriði er vert að hafa í huga og réttmætt að taka með í reikninginn, þegar verið er að velja stóriðjufyrirtæki stað hér á landi, eins og gert er ráð fyrir með þessari till., gert hið allra fyrsta.
Ég gat þess áðan, að jafnvel þó að Sigölduvirkjun og Kröfluvirkjun kæmust í gagnið t.d. 1977–1978 og sú orka yrði öll notuð til rafhitunar húsnæðis í landinu, mundi hún samt ekki duga til þess, að þeirri þörf yrði fullnægt. Það er því augljóst, að það má ekki seinna vera að fara að taka ákvörðun um næstu stórvirkjun landsmanna. Með hliðsjón af því, að hér er um svo gífurlegan orkuskort að ræða sem raun ber vitni um, þá dugir ekki að hika við, heldur verður að taka ákvörðun um þetta hið allra fyrsta.
Oft hefur heyrst, að tæpast sé unnt að virkja stórt á Íslandi án þess að selja orkuna til orkufreks iðnaðar eða stóriðju, sem svo er kölluð. Þegar eru í undirbúningi eitt eða fleiri slík fyrirtæki, og ef að líkum lætur risa þau í einhverjum mæli á komandi árum. Það er enda svo, að við olíukreppuna og þann mikla orkuskort í heiminum, sem af henni hefur sprottið, verður eftirspurn eftir raforku til stóriðju miklu meiri en verið hefur á undanförnum árum. Líklegt má og telja, að unnt verði að selja orku í þessu skyni með mun hagkvæmari kjörum en gert hefur verið til þessa. Hér er um enn eitt atriði að ræða, sem þrýstir á, að orkuöflunarmálum okkar Íslendinga verði hraðað svo sem mögulegt er. Í þessari þáltill. eru ekki gerðar neinar beinar till. um, að stóriðja fylgi í kjölfar þeirra virkjana, sem hún stefnir að, að hrundið verði í framkvæmd. Það er þó engri loku fyrir það skotið, ef orkuskortinum verður bægt frá, að reisa slík fyrirtæki á Norðurl. v. eins og hvar annars staðar á landinu, og engu minni ástæða, ef t.d. er höfð hliðsjón af byggðasjónarmiðum og öðrum þáttum, eins og t.d. að byggja upp hafnarmannvirki og þess háttar. Þessum þætti málsins er nauðsynlegt að gefa gaum í sambandi við framvindu þessa máls, enda þótt ekki sé að því vikið með beinum orðum í sjálfri till. Höfuðatriðið er að taka hið allra fyrsta ákvörðun um næstu stórvirkjun landsmanna, og þeir kostir, sem ég hef hér talið upp með virkjunarmöguleikum í Blöndu og Jökulsá eystri og vestri í Skagafirði, eru svo miklir, að það væri fásinna og gengi glapræði næst að ganga fram hjá þeim og hefja ekki þegar undirbúning að því, að sú stórvirkjun verði reist þar. Þó að ég hafi hér ekki greint á milli þeirra tveggja virkjunarkosta, sem til greina koma á Norðurl. v., þá hlýtur auðvitað að verða að gera það. Þær rannsóknir, sem þegar hafa farið fram, gefa til kynna, að það ætti að vera unnt að skera úr þegar á næsta sumri. Og það er alger nauðsyn að gera það til þess að geta þá þegar sett fullan kraft í það að undirbúa virkjunarframkvæmd á öðrum hvorum staðnum. Með þessari till. er ekki einungis að því stefnt að leysa hin margumtöluðu og hrikalegu orkuvandamál Norðlendinga. Ég lit á þetta sem stærra mál. Þrátt fyrir það er ekki hægt að skilja svo við þetta mál, að á þau sé ekki minnt. Ég skal ekki hér fara að rifja upp neinar þær deilur, sem um þessi efni hafa staðið, eða varpa hnútum að einum eða öðrum í sambandi við framkvæmd mála hvað orkuöflun til Norðlendinga snertir á síðustu árum. En staðreynd er, að þarna er við mikinn vanda að etja, — vanda, sem leita verður allra bragða til þess að leysa í bráð og lengd. Fyrr á þessu þingi voru fluttar till. til þál. um virkjun Fljótaár og virkjun Svartár í Skagafirði af varaþm. Eyjólfi Konráð Jónssyni og fleiri þm. Norðurl. v. Þær till. voru fluttar í því skyni að reyna að hafa áhrif á það, að ráðist yrði í þessar virkjanir nú þegar, vegna þess að þarna er um fullhannaðar virkjanir að ræða. Þar er hins vegar um smávirkjanir að ræða, sem einungis mundu duga til að draga úr þeim orkuvandamálum, sem við er að etja í dag. Með þeim væri þó stigið mjög þýðingarmikið skref til þess að leysa þennan vanda, eins og nú standa sakir. Hins vegar er þar ekki um neina frambúðarlausn að ræða. Með þeirri till., sem hér er flutt, er hins vegar stefnt að því að leysa orkuvandamál Norðlendinga um fyrirsjáanlega framtíð og hafa stórkostleg áhrif í þá átt að leysa orkuvandamál landsins í heild, auk þess sem hún mundi, eins og þegar er rakið hér að framan, veita ómetanlegt öryggi fyrir Norður-, Vestur- og Suðvesturland a.m.k. með tilliti til flutningslina. Hér er því um ákaflega þýðingarmikið mál að ræða, sem snertir alls ekki einvörðungu það kjördæmi, sem ég er fulltrúi fyrir hér á Alþ., heldur miklu víðara landssvæði.
Ég skal ekki lengja þessa ræðu meir. Ég lít svo á, að ákvörðun um næstu stórvirkjun megi ekki dragast. Ég lít svo á, að þeir kostir, sem taldir hafa verið upp í sambandi við virkjunarmöguleika í Blöndu og Jökulsánum í Skagafirði, séu það sterkir og veigamiklir, að naumast ætti að vera áhorfsmál, að Alþingi samþykkti þá till., sem hér liggur fyrir, og að till. yrði síðan hrundið í framkvæmd. Ég vil ljúka þessum orðum með því að óska þess og treysta því fastlega, að svo verði staðið að málum.
Ég legg svo til, herra forseti, að till. verði vísað til hv. allshn. og umr. frestað.