12.03.1974
Sameinað þing: 66. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2718 í B-deild Alþingistíðinda. (2478)
224. mál, ráðstafanir til að sporna við raflínubilunum
Flm. (Friðjón Þórðarson):
Herra forseti. Á þskj. 387 hef ég leyft mér að flytja till. til þál. um ráðstafanir til að sporna við raflínubilunum. Till. þessa flyt ég ásamt hv. 2. þm. Norðurl. v., en hún hljóðar svo:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að láta kanna, með hvaða hætti unnt sé að draga úr eða koma í veg fyrir hinar alvarlegu bilanir, sem oft eiga sér stað í raflinum víðs vegar um land í vetrarveðrum.“
Það er kunnara en frá þurfi að segja, að í hinum mikla óveðraham, sem gekk yfir landið í s.l. mánuði, urðu víða gífurlegar skemmdir á rafmagnslínum og stórtjón sigldi í kjölfarið. Línur slitnuðu og staurar brotnuðu í hundraðatali. Samkv. upplýsingum Rafmagnsveitna ríkisins munu hafa brotnað á öllu landinu alls yfir 300 rafmagnsstaurar, þar af yfir 30 á sunnanverðu Snæfellsnesi. Af þessum sökum urðu mjög mörg býli og byggðarlög rafmagnslaus með öllu um lengri eða skemmri tíma, önnur höfðu raforku af mjög skornum skammti. Af þessu er ljóst, að tjónið hefur orðið gífurlegt, bæði hið beina og óbeina tjón. Það má raunar segja, að við getum aldrei byggt svo sterkar línur eða komið upp það sterklegum veitum, að þær standi af sér öll vetrarveður. En hinu er ekki að neita, að þegar svona stórfellt tjón á sér stað, verðum við að hugsa málið og reyna að finna á því einhverja lausn, þannig að öryggi verði meira. Ég veit það, og okkur flm. er það ljóst, að það er áreiðanlega hægara sagt en gert að búa svo um hnútana í þessum efnum, að fullt öryggi verði og að raflínur, sem lagðar eru um landið, standi af sér öll vetrarveður. En hitt er sjálfsagt, þó að málið sé erfitt viðfangs, að leita allra ráða og bragða í þessu skyni.
Það er mikið rætt um þessar mundir um nauðsyn þess að gera stórátök í rafvæðingarmálum, og okkur öllum er ljóst, að orkuþörfin vex hröðum skrefum um allt land. Það má því segja, með fullum sanni, að landsmenn eru orðnir svo háðir rafmagninu, að þeir geti ekki án þess verið stundinni lengur.
Ég leyfi mér að bregða upp dálítilli mynd af því, sem varð m.a. í síðasta óveðri í þessum efnum, og leyfi mér þar að vitna í grein, sem Gunnar Guðbjartsson bóndi á Hjarðarfelli, formaður Stéttarsambands bænda, skrifaði í Tímann hinn 27. f. m., og þó að inn í þá grein blandist að vísu önnur mál og stærri, þ.e.a.s. það er ekki allt hægt að rekja til bilana af völdum óveðurs, þá ætla ég að leyfa mér að vitna í nokkrar setningar úr þessari grein, en hún ber yfirskriftina: „Á að leggja alla byggð á sunnanverðu Snæfellsnesi í auðn með orkusvelti?“ Ég leyfi mér að vitna í þessa grein, með leyfi hæstv. forseta. Þar segir svo:
„Nú er nær allri orkuþörf heimila á þessu svæði mætt með rafmagni, öll lýsing, eldamennska og upphitun húsa, annað hvort beint eða þá með aðstoð rafdælingar á olíukerfi. Úvarps- og sjónvarpsnot, geymsla matvæla o.fl. er háð rafmagni. Enn fremur eru bústörf, svo sem mjaltir, kæling mjólkur, dæling á vatni og margt annað því háð.“
Síðar segir: „Það er óviðunandi að búa í köldum og myrkum húsum um hávetur. Það er óviðunandi að eiga yfir höfði sér að geta ekki mjólkað kýrnar reglubundið vegna orkuskorts. Það er óviðunandi að eiga á hættu að skemma matvæli, þar með talda mjólkurframleiðslu heimilanna, vegna þess að kælitækin verða óvirk. Það er óviðunandi að verða vatnslaus dögum saman og útilokaðir frá að njóta útvarps og sjónvarps. Þannig mætti halda lengi áfram að telja.“
Þessi till., sem hér er flutt, stefnir að því að reyna að auka öryggi í þessum málum. Eins og ég sagði áðan, er vafalaust mjög erfitt eða ókleift að leggja svo sterkar linur, að þær standi af sér öll veður, en að málinu verður þó að hyggja. Sums staðar mætti e.t.v. leysa þetta með lagningu jarðstrengja, þó að ég búist við, að fagmenn telji það óhugsandi vegna hins háa tilkostnaðar. Á öðrum stöðum mætti styrkja línurnar, því að þær eru að sjálfsögðu misjafnlega sterkar. Loks má reyna að hamla á móti í þessu mikla vandamáli með því að hafa varastöðvar í lagi. Það minnir okkur einnig á, hversu hinar minni virkjanir eru dýrmætar. Það er mikils virði að hafa virkjun nálægt sér, þó að hún sé ekki ýkjastór. Þessu megum við ekki gleyma, þó að meginstefnan á síðari áratugum hafi verið að reisa stór orkuver. En vitanlega þarf að meta þetta allt og vega, þar sem fé er að jafnaði af skornum skammti til slíkra framkvæmda.
Ég læt þessi fáu orð nægja til að fylgja þessari till. úr hlaði. Ég veit, að hér er um stórt og erfitt vandamál að ræða, en það er eigi að síður mikilvægt. Þess vegna töldum við flm. rétt og skylt að hefja máls á því, vekja á því sérstaka athygli og hvetja til þess, að allar tiltækar leiðir verði kannaðar til úrbóta, þar sem svo stórfelldir hagsmunir eru í húfi fyrir land og þjóð.
Ég læt þessum orðum mínum lokið, en legg til, að till. þessari verði vísað til hv. allshn., þegar umr. verður frestað.