13.03.1974
Efri deild: 77. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2726 í B-deild Alþingistíðinda. (2498)

46. mál, jarðalög

Frsm. meiri hl. (Páll Þorsteinsson):

Herra forseti. Það er orðið alllangt síðan nál. var skilað um þetta frv., og ég vil fyrir mitt leyti stuðla að því, að málið geti fengið afgreiðslu eftir 2. umr. nú á þessum fundi. Ég ætla mér því ekki að bæta mörgum orðum við það, sem ég hef áður sagt til skýringar þessu máli og afstöðu meiri hl. n., en vil þó í fáum orðum drepa á einstök atriði, eftir að ég hef hlýtt á ræðu frsm. minni hlutans.

Í nál. minni hl. n. segir, að megintilgangi frv., sem oftast hefur verið horft á og margir hafa lagt áherslu á í umræðum, er vissulega nauðsynlegt að ná, þ.e. að fyrirbyggja, að jarðeignum sé ráðstafað með óeðlilegum hætti miðað við viðskiptavenjur, svo og að komið verði í veg fyrir brask með jarðeignir í hagnaðarskyni. Þegar svo afdráttarlaust kemur fram hjá minni hl., að málefni það, sem hér er um að ræða, sé nauðsynlegt, hefði mátt ætla, að samstaða hefði tekist í n. um afgreiðslu frv. Það fór þó á annan veg, eins og hv. þd. er kunnugt. Afstaða minni hl. hlýtur því að byggjast á því, að markmiðið með frv. sé í sjálfu sér æskilegt og gott, en að minni hl. geti ekki fallist á þá leið, sem gert er ráð fyrir með frv., að farin verði til þess að ná markmiðinu. Og í ræðu frsm. minni hl. virtist mér það vera aðallega fjögur efnisatriði, sem hann vildi færa fram þessari afstöðu til rökstuðnings: Að umsagnir frá ýmsum fælu í sér athugasemdir við frv. og bentu til þess, að ástæða væri til að athuga allt málið betur; að með frv. væri gengið um of inn á verksvið sveitarstjórna í sambandi við skipulagsmál; að byggðaráðin, sem ráðgert er að koma á fót, séu óþörf — og að Jarðasjóði séu ætlaðar of litlar tekjur eða of lítil fjárhæð samkv. ákvæðum frv. Ég vil leyfa mér að fara örfáum orðum um þessi atriði í því skyni að skýra nánar en orðið er afstöðu meiri hl. til þessara efnisatriða.

Ég verð þá fyrst að rifja það upp, að Búnaðarþing átti frumkvæðið að því, að frv. þetta var samið, að Búnaðarþing 1973 fékk aðstöðu til að athuga frv. mjög nákvæmlega og gera við það athugasemdir, og síðan frv. kom fram nú í vetur, hefur Búnaðarþing verið haldið, og því fór víðs fjarri, að það ræddi um það, að máli þessu yrði frestað. Þvert á móti hef ég ástæðu til að ætla, að áhugi margra búnaðarþingsmanna hafi verið óbreyttur á því að fá þetta frv. lögfest. Ég vil enn fremur rifja það upp, að stéttarsambandsfundur bænda fékk aðstöðu til að yfirfara frv., og hann gerði um það samhljóða ályktun árið 1973. Þessar tvær stofnanir, sem eru skipaðar fulltrúum bænda, sem kosnir eru þó á mismunandi hátt, eru þær stofnanir, sem öðrum fremur eru í fyrirsvari gagnvart félagsmálum og félagsmálabaráttu bændastéttarinnar. Það er því ekki hægt annað en að meta afstöðu þessara stofnana mjög mikils í sambandi við viðhorf bændanna um þetta mál. En einnig liggja fyrir þessu til viðbótar umsagnir frá búnaðarsamböndunum, og þær eru margar jákvæðar. Ég skal aðeins stikla á því stærsta í því efni.

Búnaðarsamband Austurlands segir: ,,Búnaðarsamband Austurlands mælir eindregið með því, að Alþ. lögfesti frv. til jarðalaga, 46. mál, er fyrir þinginu liggur.“ — Búnaðarsamband Dalamanna segir svo: „Stjórn Búnaðarsambandsins hefur yfirfarið frv. og mælir með samþykkt þess.“ — Fyrir hönd Búnaðarsambands Kjalarnesþings sendir erindi Jóhann Jónasson, og hans afstaða fyrir hönd þess búnaðarsambands er þannig: „Frv. til jarðalaga var lagt fyrir síðasta Búnaðarþing, og þar voru gerðar á því nokkrar brtt., sem ég samþykkti þá, og þar sem ég er enn þá sama sinnis, sé ég ekki ástæðu til að bera fram nýjar breytingar.“ — Búnaðarsamband A: Skaftfellinga segir svo, eða niðurstaða í umsögn þaðan er á þessa leið: „Stjórnarfundur Búnaðarsambands Austur-Skaftfellinga, haldinn að Seljavöllum 3. febr. 1974, leggur til, að frv. til jarðalaga, 46. mál, verði samþykkt á Alþingi.“ — Búnaðarsamband Snæfellinga mælir eindregið með því, að frv. til jarðalaga verði lögfest á Alþingi í vetur með þeim fyrirvara, að hert verði nokkuð á ákvæðum eignarnámsheimilda sveitarfélaga og ríkisins á landi, sem er ekki nýtt til búrekstrar. Þá telur stjórn sambandsins, að lengja eigi frest um beitingu forkaupsréttar, sbr. 24, gr., úr 5 sólarhringum í 10 sólarhringa, einnig að framlag verði hækkað í Jarðasjóð úr 12 millj. í 20 millj. Æskilegt væri, að skipuð væri sérstök stjórn fyrir sjóðinn.

Í nál. minni hl. er hent á það, að Búnaðarsamband Vestur-Húnvetninga, Búnaðarsamb. Skagfirðinga og Búnaðarsamband Snæfellinga geri nokkrar athugasemdir við einstök ákvæði frv. Ég hef þegar greint frá því, sem fram kemur frá Búnaðarsambandi Snæfellinga. Um Búnaðarsamband Skagfirðinga er það að segja, að því miður virtist mér, að hv. frsm. minni hl. henti það óhapp að láta sér sjást yfir aðalatriðið í umsögninni, þ.e.a.s. niðurstöðuna, en hún er á þessa leið: „Stjórn Búnaðarsambands Skagfirðinga lýsir yfir eindregnum stuðningi við efni og tilgang frv. og leggur til, að það verði lögfest á Alþ. því, er nú situr, með eftirfarandi breyt.“ Það eru hér svo bendingar um nokkrar breyt. við einstök atriði. Vegna þess að í nál. er einnig minnst á Búnaðarsamband Vestur-Húnvetninga, er það rétt, að þar hafa verið gerðar ábendingar um einstök atriði, en því miður virtist mér þar henda svipað óhapp, þegar hv. frsm. minni hl. gerði að umræðuefni þessa umsögn, að hann lætur sér sjást yfir niðurstöðuna í lok umsagnarinnar, en hún er þannig: „Ég vil að endingu leggja áherslu á afgreiðslu þessa frv. Öllum ætti nú orðið að vera ljós nauðsyn þess að koma betri skipan á þau málefni, sem þetta frv. fjallar um.“ — Ég ætla, þegar þetta allt er athugað, þótt ekki sé lengra farið í umræðum um þetta atriði eða skýringar á þessu atriði, að þá sé ekki hægt annað en draga þá ályktun af því, sem fyrir liggur, að samstaða bændanna um þetta mál sé mjög mikil.

Þá ætla ég að víkja örfáum orðum að öðru efnisatriði, þ.e. skipulagsmálunum. Það er rétt, að í umsögnum frá skipulagsstjóra ríkisins og frá Sambandi ísl. sveitarfélaga og frá ýmsum landshlutasamtökum, er að því vikið, að með þessu frv. kunni að vera um of gengið á það verksvið, sem með eðlilegum hætti eigi að vera hjá sveitarstjórn. Frsm. minni hl. las talsvert mikið af því máli, sem hér liggur fyrir í umsögnum, er þetta varðar. Ég vil ekki lengja umræðurnar með því að fara að endurtaka það, því að það er d. nú þegar kunnugt. En sannleikurinn er sá, að skipulagsmál í sveitum eru nú að óbreyttum lögum í höndum tveggja aðila a.m.k. Í lögum um Stofnlánadeild landbúnaðarins, landnám, ræktun og byggingar í sveitum er beinlínis ákveðið, að Landnámið skuli annast skipulagningu byggða í sveitum landsins, og landnámsstjóri á að gera till. um skipulag byggðarinnar og leita umsagna viðkomandi hreppsnefndar, landnámsnefndar Búnaðarfélags Íslands og Byggingarstofnunar landbúnaðarins, og hann á að leitast við að meta afkomuöryggi og framtíðarmöguleika þeirra jarða, sem fyrir eru í sveitinni, og sveitarfélagsins í heild o.s.frv. Nú hefur það farið nokkuð í vöxt á síðustu árum, að sveitahreppar óski þess að verða skipulagsskyldir, svo sem fram hefur verið tekið í þessum umræðum. Þá falla þau málefni undir verksvið sveitarstjórnar og skipulagsstjórnar ríkisins. En sannleikurinn er sá, að þó að þetta hafi þróast þannig að undanförnu, þá hefur ekki orðið þess vart, svo að mér sé kunnugt, að árekstur eða ágreiningur hafi orðið um þessi mál milli Landnáms ríkisins annars vegar og sveitarstjórna eða skipulagsstjórnar ríkisins hins vegar, enda er verksvið hvers um sig nokkuð afmarkað, þar sem skipulagslögin taka fyrst og fremst til svæða, þar sem búa 100 menn eða fleiri, og í þessum lögum er ætlast til. eins og sagt er blátt áfram í frv., að skipulögð þéttbýlissvæði, þar sem 100 íbúar eða fleiri hafa fasta búsetu:, eru undanskilin ákvæðum þessara laga. Einnig er það svo, að skipulagsstjórn ríkisins og félmrn. hafa viða ákveðið skipulagsskyldu í sveitahreppum á þann veg, að framkvæmdir á bújörðum bænda eru undanskildar. Þetta er augljóst, ef litið er í Stjórnartíðindi og athugaðar þær auglýsingar, sem félmrn. hefur gefið út um þetta efni fyrir ýmis sveitarfélög.

Ég hef hér í höndum eitt hefti af Stjórnartíðindum, og þessu máli til stuðnings ætla ég aðeins að benda hér á eina auglýsingu um þetta efni. Það er auglýsing um staðfestingu félmrn. um skipulag í Nesjahreppi í Austur-Skaftafellssýslu. Það er orðað þannig:

„Að fengnum till. skipulagsstjórnar ríkisins hefur rn. samkvæmt heimild í 4. gr. 2. málsgr. skipulagslaga nr. 19 21. maí 1964, ákveðið, að ákvæði skipulagslaga nr. 19 1964 skuli ná til Nesjahrepps, að undanskildum nauðsynlegum byggingum vegna búrekstrar á lögbýlum.“

Margar auglýsingar af þessu tagi eru orðaðar á þennan hátt, og um það hefur verið haft fullt samráð við hreppsnefndir. Nú virðist mér, að í áliti minni hl. komi fram, að hann vilji halda þessu skipulagi óbreyttu, að Landnámið starfi áfram og hafi með höndum skipulag sveitabyggða, skipulag jarða í sveitum, en jafnframt sé því haldið áfram, að sveitarhreppar gerist skipulagsskyldir og sveitarstjórnir og skipulagsstjórn ríkisins hafi þá jafnframt með höndum þetta verkefni eða hluta af þessu verkefni: Ég fæ ekki betur skilið en að þetta sé það skipulag, sem minni hl. vill helst, að haldist til frambúðar.

Nú er þetta frv. miðað við það, að hluti af þessu verkefni, sem varðar skipulag, færist frá Landnáminu yfir til byggðaráðs á hverjum stað, eða frv. var miðað við það, að þau færðust frá Landnáminu yfir til byggðaráðs, og þá eru höfð í frammi þau rök, að ef hliðstæð verkefni og Landnámíð hefur nú, færist til byggðaráða, þá muni risa upp ágreiningur milli þeirra annars vegar og sveitarstjórnar og skipulagsstjórnar ríkisins hins vegar. Álit okkar, sem stöndum að meirihluta álitinu, er, að þessi ótti sé með öllu ástæðulaus. Byggðaráðin eru skipuð heimamönnum, og það er engin ástæða til að ætla, að fremur komi upp ágreiningur um þessi skipulagsmál. þó að þau geri till. um þau, fremur en reynslan sýnir, að verið hefur eins og þetta er nú, þar sem þau eru að verulegu leyti í höndum Landnáms ríkisins. Í þessari röksemdafærslu út af fyrir sig er því ekki samræmi hjá minni hl. n. En þá ber þess að gæta, að í frv. var gert ráð fyrir því, að byggðaráðin hefðu minna vald í þessu efni eftirleiðis heldur en Landnámið hefur haft og hefur nú, — minna vald. Byggðaráðin eiga að sönnu samkv. frv. að gera till. til sveitarstjórna, en sveitarstjórnir hafa valdið. Ná hefur meiri hl. n., eins og ég gerði grein fyrir í fyrri ræðu minni, þó viljað líta á þetta sjónarmið og ber fram till. um, að nokkuð sé dregið úr því, sem fyrirhugað var um afskipti byggðaráðs af skipulagsmálum, og það verði þá þeim mun ótvíræðara, að þetta verkefni sé fyrst og fremst í höndum sveitarstjórna.

Þá kem ég að þriðja efnisatriðinu, sem ég ætlaði stuttlega að gera að umræðuefni. Eitt af rökum minni hl. eru þau, að byggðaráðin, sem stofna á í hverri sýslu, séu óþörf. Ég hef áður bent á, að n. verður ekki fjölgað með því að koma byggðaráðum á fót, því að landnámsnefndir, sem nú starfa í hverri sýslu, verða jafnframt lagðar niður. Hér er aðeins um það að ræða, að verksvið byggðaráðanna verður nokkru viðtækara en landnámsnefnda er. Ég vil enn fremur ítreka það, að byggðaráðin eiga að öllu leyti að vera skipuð heimamönnum, þ.e.a.s. mönnum búsettum í því héraði, þar sem starfssvið þeirra er, og með því á að reyna að sjá fyrir því, að þeir séu kunnugir högum og háttum í héraðinu. Ég tel þessa skipun byggðaráðanna, að það sé n. í hverri sýslu, eðlilegri og hagkvæmari, a.m.k. í sumum landshlutum, heldur en þetta væri lagt í hendur landshlutasamtaka, sem teygja starfsemi sina yfir mjög víðtæk svæði, a.m.k. sums staðar á landinu.

Fjórða atriðið, sem ég ætla aðeins að lokum að minnast á, er sú skoðun, sem fram kemur hjá minni hl., að tekjur Jarðasjóðs verði of litlar samkv. ákvæðum frv. Ég er sammála því sjónarmiði og við í meiri hl., að Jarðasjóður þurfi út af fyrir sig að hafa svo miklar árlegar tekjur, að hann geti með góðu móti gegnt því hlutverki, sem honum er ætlað samkv. frv., og það er raunar stefnan, sem mörkuð er í frv., því að þar segir berum orðum:

„Jarðasjóði skal ætlað það fjármagn á fjárlögum, að hann geti sinnt hlutverki sínu samkvæmt lögum þessum.“

Þetta er meginstefnan, sem mörkuð er í frv. og við hljótum að vera sammála um. En tekjustofnarnir, sem Jarðasjóður á að fá, eru í fyrsta lagi andvirði seldra ríkisjarða, það á að renna í Jarðasjóð, og í öðru lagi árlegt framlag á fjárl., sem að lágmarki er ákveðið í frv. 12 millj. kr. Ég legg áherslu á þetta: að lágmarki. Það lokar ekki þeirri leið, að strax við setningu næstu fjárl. verði veitt meira fé í þessu skyni. Ef hv. Alþ. metur það þá svo, að þess sé þörf. Það er rétt, að það komu fram ábendingar um, að þessi lágmarksfjárhæð ætti að vera ákveðin nokkru hærri. Er mikið álitamál, hvort það á nákvæmlega að setja þarna 12 millj. eða 15 millj. eða einhverja aðra tölu. En ég held, að það sé ástæðulaust að hindra framgang þessa frv. út af þessu. Reynslan hlýtur að leiða það í ljós, hver fjárþörfin verður, og þá hefur Alþ. það í hendi sér, m.a. við setningu fjárl., án breytinga á þessu frv., ef að lögum verður, að bæta þar úr.

Ég gerði grein fyrir eða skýrði efni brtt. þeirra, sem meiri hl. flytur, í fyrri ræðu minni og vil ekki eyða tíma í að endurtaka það og læt svo máli mínu lokið, nema sérstök ástæða gefist til þess að segja fleiri orð um málið, en vildi fyrir mitt leyti leggja áherslu á, að hæstv, forseti láti þetta mál ná afgreiðslu nú eftir 2. umr., helst á þessum fundi.